Réttur - 01.02.1921, Blaðsíða 34
34
Réttur.
Hervaldsandi auðvaldsmanna
(Capitalistic Jingoism).
Fyrra tímabil.
Arið 1886 fundust auðugar gullnámur í ýmsum hlutum
Suðui-Afrí u, og með þeirri uppgötvun byrjaði nýr þáttur í
sögu þjói ar vorrar. Suður-Afríku-lýðveldið átti fyrir hönd-
um að rísa á fáum árum úr aumasta örbirgðar ástandi til auðs
og velmegunar, og að verða land, sem á allan hátt hlaut að
vekja og æsa ágirnd og græðgi auðugra gróðabrallsmanna.
Innan fárra ára framleiddi Suður-Aíríku lýðveldið meira gull
en flest önnur löud í heimi. Níoa-flæmin, sem hingað til
höfðu legið auð og ber, voru nú þakin stórum borgum með
hugsandi og iðandi íbúum, er safnast höfðu saman frá öllum
áttum og hornum heimsins. Búar, sem hingað til höfðu
stundað kvikfjárrækt og veiðar, urðu nú að taka að sér eitt
af erfiðustu hlutverkum í heimi, nefnilega forráð flókinna
stjórnarmála og að stjóma fjölmennum námulýð, sem skyndi-
lega hafði safnast saman undir sérstaklega óvenjulegum kring-
umstæðum Og hvernig leystu þeir hlutverk þetta af hendi?
Við tlæium eftirfarandi I nur úr ágætlega skrifuðum bækl-
ingi eftir Olive Schreiner, sem hefir dýpri þekkingu á hinu
verulega ástandi í Suður-Afríku en nokkur annar maður, sem
skrifað hef r um sama efni:
• Eg skýt þvi til allra göfugly dra og réttlátra manna, hvort
heldur eru stjói umálamenn eba hugsandi menn, hvort hið
litla !ý veldi veróskuldi ekki þá saniúð vora, sem allar vitrar
sálir veita þemi, er verða að fást við ný og flókin málefni,
og sem undantarin reynsla mannkynsins hefir ekki markað
leiðina fyrir. Og einnig því, hvort að, ef vér snertum yfir-
leitt á þessu efni, oss beri þá ekki nauðsyn til að gera það
í þeim frjálslynda, óhlutdræga og sannleiks elskandi anda,
sem ali mannkyn heimtar að vér sýnum við hvert þaö mikil-
vægt þjóófélagsatriði og erfiðleik', sem vér snúum athygli
vorri að?
f*að er stundum sagt, að þegar maður stendur á brún