Réttur - 01.02.1921, Síða 38
38
RéUnr.
Sérhver athugull áhorfandi komst fljótt að því, að banda-
lagið milli Afríkumanna og auðvaldsmanna hlaut að rofna
fyr eða síðar. Djúprætt og hrein þjóðernistilfinning, samfara
brennandi sannfæringu, eru grundvallaratriði stjórnmálastefnu
Afríkumanna, og það var augljóst, að það hlaut að koma í
ljós, er til lengdar lét, að það yrði aldrei hægt að nota
þessa stjórnmálastefnu til að vinna að beinlínis fjárhagslegum
hagsmunamálum.
En það var líka annað atriði. Hér var líka sú afmyndun
af ættjarðarást, sem kalla má hervaldsstefnu (Jingoism). Það
er einskonar stjórnmálastefna eða flokkur, án nokkurrar ákveð-
innar sannfæringar eða verulegrar trúar, sem blæs sjálfan sig
út með stóryrðum og með frauði af mikillátum hugmyndum
og grundvallaratriðum. F*að er stjórnmálastefna samt sem áð-
ur, sem langbest leikur við sjálfselsku manna og ólöglega
ásælni eftir eignum annara. Hún lifir best á sjálfslofi, þeirri
fýsn, sem er svo djúpt innrætt í mannlega náttúru. Með
einu orði: það er stjórnmálastefna, sem er beinlínis andstæð
sönnum trúaranda, alheims mannúðar hugmyndum og þeirri
auðmýktar- og hógværðartilfinningu, sem er hinn náttúrlegi
grundvöllur allrar siðmenningar.
Hér fundust því sannarlega frumefnin til varanlegs banda-
Iags, bandalags milli auðvaldsins með hinum miklu peninga-
legu áhrifum þess, eu laust við hverja einustu háleita hug-
mynd eða grundvallaratriði annars vegar, og (Jingoism) her-
valdsins ófrjós, tóms og sálarlauss, ineð sterkar birgðir af
íburðarmiklum huginyndum og aðalatriðum, sem bygð voru
á hinum eigingjörnustu eftirlöngunum hins vegar.
Hvert fyrir sig var sérstaklega vel lagað til að fylla upp
eyðurnar hjá hinu, og mynduðu þannig náttúrlegt bandalag,
sem var óðum að verða afarhættulegt öllum bestu og varan-
legustu hagsmunamálum mannkynsins um allan heim.
Pessi hernaðarstefna auðvaldsmanna er það tré, sem vor
óhamingjusama Suður Afríka verður að cta svo beiska ávexti
af í dag,
Herra Rhodes, með þeirri svikafullu tvöfeldni, sein er svo