Réttur


Réttur - 01.02.1921, Page 40

Réttur - 01.02.1921, Page 40
40 Réttur. Þeir byrjuðu með hinum auðvirðilegustu og andstyggileg- ustu aðferðum, að grafa fæturna undan stjórnmálastefnu Búa, til þess að ná yfirtökunum á stjórn og löggjöf námuhérað- anna. Peir höfðu talið sjálfum sér og öðrum trú um það, að Búar væru í heild sinni rotnir og spiltir, og hervæddust því vopnum peninganna til þess að steypa þeim af stóli. Lionel Phillips skrifar lð. júní 1894 í þessum anda til Beit í Lundúnum: »Eg get tekið það fram hér, að, eins og þér auðvitað vit- ið, þá óska eg ekki eftir neinum stjórnarfarstegum réttindum, og eg held, að þjóðfélagið í heild sinni sé ekki metorða- gjarnt í því tilliti. Eg býst við að þrætan um eignarhald (bewaar plaatsen) verði úrskurðuð okkur í vil, en með um 25000 punda kostnaði. Pað er ráðgert að verja töluverðu fé til að fá betra þing (Raad), en menn verða að minnast þess, að fjáreyðsla til kosninga hefir með nýútkomnum lögum ver- ið gerð glæpsamleg, og verður því að fara mjög gætilega með það mál.« (Transvaal Green book, No. 1 of 1896). Pann 15. Júlí 1894 skrifaði hann aftur tit sama manns: »Tromp okkar er 10,000 til 15,000 punda sjóður til að bæta þingið. Til allrar óhamingju þá hafa félögin (Gull- námufélögin, H. H.) engan spæjarasjóð. Eg verð að finna einhver úrræði. Við kærum okkur ekki að skjóta sundur vor eigin skýli-« (Transvaal Green bokk No. 1 of 1896). Hér sjáum vér í svip bak við tjöldin og verðum þess varir, hvernig auðmennirnir höfðu þegar 1894 reynt að draga nið- ur og spilla þjóðlífi voru með aðferðum, sem jafnvel komu beinlínis í bága við glæpalöggjöf landsins, svo maður sleppi að segja nokkuð um snefil af siðferðistilfinningu hjá þeim. Og tókst þeim að ná tiigangi sínum? Var þjóðin og þing- ið eins rotið eins og þeir héldu og eins og þeir reyna enn þá að fá heiminn til að trúa? Mishepni þeirra er hið bezta og fullkomnasta svar við þessum rógi. Ef auðmönnunum tókst ekki að ná tökum á þjóðfélaginu með mútum og spillingu í slórum stíl, þá var samt sem áð- ur trompspil hervaldsmanna ennþá eftir. Hr. Lionel Phillips

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.