Réttur - 01.02.1921, Blaðsíða 44
44
Réttur.
isandinn (Imperialism) í Suður-Afríku gengið hönd í hönd
við svik og bióðsúthellingar. Hversu heilnæm sem áhrif
valdafíknarinnar eru í öðrum stöðum, þá hefir hún ekki haft
neina aðra tilhneigingu í þessu landi og um öll þessi ár en
að reyna að þvinga þjóðlíf vort og þjóðerniseinkenni inn í
útlendar rennur og mót, og að innsigla þessa þvingun með
tárum og blóði. Petta eru vissulega vegamót í tilveru afrík-
önskunnar um alla Suður-Afríku. Nú eða aldrei! Nú eða
aldrei verður að leggja undirstöðuna undir víðtæka þjóðern-
isstefnu. Járriið er rauðglóandi og það verður að hamra
það meðan það er heitt ....
.... Skilnaðarveggurinn er horfinn. Látum oss standa
hver með öðrum eins og karlmenn. Hættan er ekki enn þá
horfin; þvert á móti. Þörfin fyrir sameinaða nýlendu- og
lýðveldispólitík hefir aldrei verið meiri. Nú hefir hið sálar-
fræðislega augnablik runnið upp; nú hefir fólk vort vaknað
um alla Suður-Afríku; ný glóð lýsir upp hjörtu vor. Látum
oss nú leggja undirstöðusteininn undir verulegt Suður-Afríku-
samband í hreinan jarðveg af þjóðernistilfinningu, sem grip-
ur yfir alt.«
Slík orðatiitæki hleyptu hrolli í hervaldsmennina, ekki af
því, að þau væru ódrottinholl, því það voru þau vissulega
ekki, heldur af því þau sýndu það og sönnuðu, að innrás
Jamesons hafði ýtt við Afríkumönnum, og að sökum þessa
niðurlags hervaldsmanna þá leist þeim svo á, að í framtíð-
inni ættu þeir von á fleiri og verri ósigrum. Það varð
áreiðanlega að taka tillit til afríkönsku nýlendumannanna, ef
það átti að hugsa um, að reyna að innlima Iýðveldið.
Hervaldsmennirnir voru um tíma vongóðir um, að þeir
mundu fá meiri hluta í þingi Höfðanýlendunnar undir hin-
um endurbættu lögum um kjördæmaskipunina. Almennar
kosningar fóru fram 1898 með þeirri niðurstöðu, að Búa-
flokkurinn fékk lítinn meiri hluta, en síðar, undir nýrri kjör-
dæmaskipun, sem hervaldsmennirnir neyddu í gegn, var meiri
hluti þessi töluvert aukinn.
I stað þess að viðurkenna hreinskilnislega, að sigur Búanna