Réttur - 01.02.1921, Page 52
52
Réttur.
semin vex með auknum forða og er mest, þegar öllum þörf-
um er þægt, en lokanytsemin fer þverrandi og verður = 0,
þegar heildarnytsemin er mest. Af þessu má ljóst vera, að
lokanytsemin ræður nytsemi fullnægjuefnanna, en lokanytsem-
ina skapa þarfir þær, er fullnægjuefnin geta fullnægt, styrkur
þarfanna, mat mannsins og forðamagnið.
Sumar þarfir eru seinþægðar, aðrar fljótþægðar. Flestir
verða fljótt mettir, en glysgirni manna og ágirnd verður seint
og illa fullnægt. Fyrir því hverfur skjótt þarfleiki þurftar-
eyris eða nauðsynjavöru, en nytsemi munaðarvöru þverr hægt.
Margir hlutir eru nytsamir á líðand; stund, aðrir verða það
með tímanum. Pess vegna nefnist nytsemi þeirra síðarnefndu
framtíðarnytsemi, hinna nútíðarnytsemi. Ennfremur getur nyt-
semin verið afleidd. Til þess að hlutur hafi »pósitiva« loka-
nytsemi, er ekki nauðsynlegt, að hann sé fullnægjuhæfur í
sinni núverandi mynd. Par nægir, að hann sé útgengilegur
og fyrir hann fáist hlutur fullnægjufær. Svo er um nytsemi
starfsafls mannanna, nytsemi óunninna efna, véla o. fl. Þarf-
leiki fullnægjuefna þessara er afleiddur og háður verðmæti
þess, er fyrir þá fæst eða kann að fást.
Skiftagildi. í hverju því mannfélagi, þar sem viðskifti
fara fram, fá hlutirnir sérstakt gildi, sem kalla má skiftagildi.
Gildi þetta byggist á nytseminni og er fyllilega háð henni.
Pegar menn skiftast á vörum, bera þeir þær saman, meta
þær og virða. Þannig gefur hvor aðili hvorri vörutegund-
inni ákveðið gildi eða mæti, sem hann byggir algerlega á
nytsemd þeirri, er hann hyggur hvora vöruna hafa. Við skul
um hugsa okkur að bóndi nokkur bjóði fiskimanni smjör og
kjöt fyrir fisk. Bóndi ræður með sér, hversu mikið af smjöri
og kjöti hann vilji láta afhendis fyrir fiskinn. Fiskimaðurinn
hugleiðir aftur á móti, hversu marga fiska hann vilji láta
fyrir smjörið og kjötið. EF vöruskifti eiga sér stað, þá er
hlutfall varanna í skiftunum háð mati beggja. Mat eða virð-
ing einstaklinganna er mismunandi, en í viðskiftalífinu skap-
ast ákveðið hlutfall fyrir hverja viðskiftilega vörutegund gagn-
vart hverri þeirri vöru, sem látin er afhendis. Petta viðskifta-