Réttur


Réttur - 01.02.1921, Síða 53

Réttur - 01.02.1921, Síða 53
Um verðfrœði. 53 hlutfall varanna kallast markaðsgildi eða metið í peningum markaðsverð. Vörur sömu tegundar og gæða hafa því sama verð á einum og sama markaði, með því skilyrði þó, að við- skiftaaðilar, falendur og frainbjóðendur, neytendur og fram- leiðendur, þekki gerla markaðsskilyrðin. Markaðsverð.. Látum okkur nú athuga, hvernig mark- aðsverðið er ákveðið og hvernig það verður árangurinn af gildismati viðskiftaaðila. Við byrjum þá á því að hugsa okk- ur einn falanda og einn frambjóðanda, t. d. mann, sem kaupa vill málverk og listmálara. Skilyrði skifta verður þá, að gildismat hvors sé mismunandi, sem sé, að falandi meti meir málverkið en peningaverð þess og vörubjóðandinn, list- málarinn, andvirðið meir en málverkið. Mismunur gildis- matsins getur orsakast af mismunandi skoðun á öðrum hlut- anna eða báðum, en horf okkar við hlutunum ræður skoðun okkar á þeim. Vilji einn maður gefa meira fyrir Iistaverk en annar, þá getur það annaðhvort stafað af því, að sá meti það meira, listaverkið hafi meira listagildi í hans augum, eða pening- arnir séu honum minna virði, sökum auðlegðar hans. Við skulum þá hugsa okkur, að falandi meti listaverkið til jafns við 500 krónur, vilji og geti gefið nefnda upphæð fyrir það, en (málverkasalinn) listmálarinn leggi það að jöfnu við 3000 króna. Er þá fengið skilyrði þess, að viðskifti geti fram farið. Falandi vill sem sé borga mest 500 kr., og seljandi fá minst 3000 kr., en gjarnan meira. Verðið verður þá á- kveðið einhversstaðar milli 500 og 3ja þúsunda, en hvar er eigi auðvelt að segja. Þess eru kaupaðilar einir umkomnir. En þegar kaupaðilum fjölgar, þrengist verðmyndunarsviðið. Setjum svo, að við bætist 2 falendur, annar getur borgað 4000 krónur, hinn 3500. Sá fyrsti, hæstbjóðandinn, er viss að fá listaverkið, en hann verður að greiða meira en 4000 kr. Verðið leikur þá milli 5 og 4urra þús. Séu aftur á móti margir seljendur, myndast verðið milli framboðsverðs þess seljanda, er lægst býður og hins, sem býður næst lægst. Svo er háttað um ílestar vörur, aö fjöldi manna keppir

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.