Réttur


Réttur - 01.02.1921, Page 54

Réttur - 01.02.1921, Page 54
 54 Réttur. um að selja þær, og enn fleiri um að kaupa. Á heimsmark- aðinum er svo hátiað í aðaldráttum, að annarsvegar er fjöldi seljenda, hins vegar kaupenda. Hæstbjóðandi falandi og lægst bjóðandi frambjóðandi marka svigrúm verðmyndunar- innar. Verslunarviðskifti geta því að eins fram farið, að hæsta tilboð sé hærra en lægsta falboð; falli saman tilboð og falboð, mun lítið verða úr viðskiftum. Hvorugur sér hag í skiftum. Ef varan, sem látin er föl, fullnægir að eins eða ekki að fullu þörfum hæstbjóðanda, verður hann að bjóða hærra í hana en næstbjóðandi. Verðið liggur þá milli fal- verðs þessara tveggja falenda. Vilji hæstbjóðandi greiða 100 kr.., en lægstbjóðandi 90 kr., feikur verðið á milli 100 og 90. Sé vörumagnið meira en handa einum og seljendur aðrir fúsir að láta vöruna við lægra verði, þá keppa þeir um að lækka verðið, og hugsuin við okkur falendum skipað í flokka eftir falverði þeirra, þá getur falverð 2., 3., 4. eða 5. kaup- anda ráðið verði vörunnar. Ef lægstbjóðandi framleiðandi. á svo miklar vörubirgðir, að hann geti birgt alla eftirspyrjend- ur upp, verður hann að láta forða sinn falan við lægsta verði, vilji hann koma honum öllum út. Verðið myndast þá í bilinu milli framboðsverðs hans og næsta frambjóðanda að ofan. Nú eru kaupendur að meiru og við hærra verði, þá hækkar verðið og framboðsverð 2., 3. og 4. framleiðanda ræður þá eftir atvikum verði vörunnar. En meðan til eru seljendur, sém eigi hafa komið vöru sinni út, þótt þeir séu fúsir að láta hana afhendis við lægra verði, þá verður enn verðfall, og meðan eftir eru kaupendur, sem þurfa meiri vör- ur og vilja gefa meira fyrir þær, verður enn falverðslækkun. En þegar svo er komið, að allir hafa fengið fullnægju sína og allir komið vörum sínum út, þá skapast markaðsverðið hjá þeim, sem síðast eiga kaup saman. Á heimsmarkaðinum myndast verðið auðvitað ekki eins og á uppboði. Viðskiftaaðilar hver og einn afla sér svo ræki- legrar vitneskju, sem kostur er á, um markaðsskilyrðin, um forðamagnið, framboð og fölun. Síðan geta þeir sér til um niðurstöðuna og liaga kaupum og sölum eftir því.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.