Réttur - 01.02.1921, Blaðsíða 58
58
Réttur.
staðar 15 — 20°, sumstaðar 20 — 25° dag og nótt, árið í kring.
Petta fer auðvitað eftir því, hvað ræ^tað er í hverju húsi.
En eitt er þar víðast haít með eins og til uppfyllingar.
Það er »Krisantheum<i. Það er prestakragi, margfalt stærri
og fegurri, en sá sem við ræktum.
En aðaibyggingin er enginn fjáfhúskofi. Það eru sjö hús
samföst og innangengt úr einu í annað, og öll stór, en sitt
hitastigið í hverju. Par eru að vísu ræktuð blóm, en einkum
tré og runnar og stórvaxnar jurtir. í miðju gnæfir höll við
himin. Hún er 18 — 20 álna há, og svarar sér vel að iengd
og breidd og þakið er hvelft eins og himininn. í þessum
húsum eru samankomin tré frá flestum löndum jarðarinnar,
þar á meða! margar tegundir pálma og mjög ólíkar. Hæstu
pálmatrén nema því nær við himin, en sum dvergvaxin,
nærri stofnlaus og verða aldrei há. Þar er allmikið af tré-
kendum burknum, og þarf stundum aðgætni til að sjá, hvað
pálmar eru, og hvað burknar. Par eru margar kaktustegundir,
er ein kaktusplantan nál. 14 álnir á hæð, enda er hún meira
en 200 ára gömul. Tegundir, sem hér heima eru ræktaðar í
jurtapottum eru þar margra álna há tré og Ijómandi falleg.
Par er teinungur einn grannur, varla tveggja álna hár, en
mjór er mikiJs vísir, og þessi er fárra ára gamall. Þetta er
tré það, sem hæst verður á jörðinni. Við höfum lesið um
það í landafræðinni. Pað er gúmmítréð, sem vex í Ástralíu,
og verður meira en 450 fet á hæð. Hve hátt skyldi því tak-
ast að lyfta hvelfingu glerhallarinnar í Oautaborg? Par eru
vafningsviðir þeir, er flækja frumskógana, og gera þá nær ófæra.
Þetta er örlítið sýnishorn af því, sem þarna er saman kom-
ið. En öllu er þannig fyrir komið, að sem mest líkist frum-
skógi, og alstaðar eru blóm með, einkum »prestakragi«.
Skamt fyrir innan dyr aðalhallarinnar er tjörn með tæru
vatni og blómskrúð á bökkunum í kring, en í tjörninni synda
gullfiskar. Þeir eru allfjörugir, þegar æti er kastað í tjörnina,
en ekki eru það stórar bröndur. Sumir á stærð við hornsíli,
en sumir nokkru stærri. Þeir eru rauðgulir að lit. Fyrir inn-
an Ijöruina er stuttur gangur og blótn til beggja handa við