Réttur


Réttur - 01.02.1921, Síða 60

Réttur - 01.02.1921, Síða 60
60 Réítur. er leikið á fiðlu af mikilli list. Eru það sænsk .þjóðlög og þjóðdansar. Baðstofan er ramlega viðuð að bitum og sperr- um, og sýnast viðirnir dökkir af elli. Manngengt er undir bitana, og myndarbragur á öllu. Súð er á sperrum, en veggir tjaldaðir skrautofnum dúkum, Vafalaust er þetta eftirmynd af sænskum sveitabaðstofum, eins og þær hafa verið myndarlegastar. Mér finst að plöntu- baðstofuhjúin í Gautaborg muni hafa alist upp í baðstofu svipaðri þessari, einhversstaðar upp í sveii. Eg hefi engar sannanir fyrir því, en er það ekki sennilegt? Eg stend á skipsfjöl og horfi mót norðri. Á hvítasunnu- morgun réttir Fjallkonan hvítan Öræfajökulfald úr hafi. Há- tíðlegri hvítasunnumorgun hefi eg ekki séð. Fjallkonan kann að halda hvítasunnu. F*að kunna fáir betur. Hvað er fegurra en hvít og hrein mjöllin. Og svo veit eg að eldur býr undir. Ög nú minnist eg þess, að hátíðabúningur fslenzkra kvenna var logagull undir hvítum feldi. Bað er fegursti þjóðbúning- ur í heimi. Hann er runninn undan hjartarótum Iands og þjóðar, og má aldrei leggjast niður. Auk þess var hann að miklu leyti íslenzkur baðstofuiðnaður og sýnir Ijóst hvílíkir vermireitir ram-íslenzkrar menningar baðstofurnar íslenzku hafa verið. Eg er kominn heim og horfi yfir heiðar og dali. Reykur- inn frá Reykjahverunum svffur í loft upp, hægt og hátignar- lega. Eg minnist þess að einn þeirra heitir Baðstofuhver. Hann á að hafa komið upp í baðstofunni á Reykjum. Rar fékst hitinn ókeypis, en baðstofan var of lítil. Hverinn sprengdi hana af sér, annars hefði hann kafnað. Við vitum að hverahitinn getur breyít eyðimörk íss og snjóar í skrúðgrænt engi með nautgæfu heyi, því það hafa menn séð. En hugsið ykkur nú, að yfir baðstofuhver væri komin bað- stofa, sem honum hæfði. Hún væri úr gleri með hárri hvelf-

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.