Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.2006, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.2006, Side 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. apríl 2006 ! Um daginn sat ég málþing uppi í Háskóla Íslands þar sem umræðuefnið var menn- ing heyrnarlausra. Slíkt mál- þing hefur aldrei áður verið haldið hér á landi og var því um stórviðburð að ræða. Enga fjölmiðla sá ég á svæð- inu og finnst mér það til skammar hversu lítinn áhuga fjölmiðlar (og aðr- ir) sýna menningu heyrnarlausra og heyrnarlausum almennt. Mér finnst heyrandi fólk al- mennt fávíst um landa sína sem ekki heyra. Margir telja að enga menningu sé að finna í samfélagi heyrnarlausra og það hljóti bara að vera leiðinlegt að heyra ekki. En raunin er önnur. Meðal heyrnarlausra blómstrar menning líkt og í öðrum samfélögum og flestir heyrnarlausir sem ég þekki vilja ekki fá heyrn, enda þekkja þeir mun betur inná sitt eigið samfélag heldur en sam- félag heyrandi. Það hlýtur þó að vera erfitt að búa í litlu samfélagi, eins og Íslandi, þar sem tungumál manns er ekki við- urkennt. Ef við viðurkennum ekki tungumálið, getum við þá viðurkennt einstaklinginn sem talar það tungu- mál? Á meðan sænska þjóðin heldur uppá 25 ára afmæli sænska táknmáls- ins sem móðurmáls í Svíþjóð hefur ís- lenska þjóðin ekki enn viðurkennt ís- lenska táknmálið sem móðurmál hérlendis. Heyrnarlausir einstaklingar eru stoltir af uppruna sínum og móð- urmáli, táknmálinu, líkt og við heyr- andi og íslenskutalandi erum stolt af okkar uppruna og íslenskunni okkar. Þar sem aðeins lítill hluti Íslendinga talar táknmál geta samskipti milli þessara tveggja hópa oft verið erfið og því kannski auðveldast að sleppa þeim bara. Heyrnarlausir hafa í aldanna rás bú- ið við kúgun hins heyrandi heims og tel ég lítið lát vera þar á. Vissulega hefur eitthvað breyst til batnaðar en alls ekki nóg. Í könnun sem unnin var fyrir félagsmálaráðuneytið árið 2004 kom fram að heyrnarlausir búa enn í dag við félagslega einangrun – líka hérna á Íslandi. Samskipti heyrn- arlausra við heyrandi eru skamm- arlega lítil og hverju er um að kenna? Eins og áður sagði eru fáir Íslendingar sem tala táknmál og því lítið um sam- skipti utan samfélags heyrnarlausra. Ég tel að í öllum grunnskólum lands- ins ætti að vera boðið uppá táknmál sem valnámskeið, ef ekki bara skyldu- námskeið. Með því gætu allir borgarar þessa lands fengið grunn í íslensku táknmáli og lært að tjá sig við landa sína sem ekki tala íslensku. Táknmál er kennt í örfáum framhaldsskólum og er sú kennsla sem þar fer fram skref í rétta átt. En betur má ef duga skal. Frumvarp til laga um táknmálið sem fyrsta mál heyrnarlausra, heyrn- arskertra og daufblindra hefur enn ekki fengið þá umræðu sem það á skil- ið á Alþingi þrátt fyrir að hafa fyrst verið lagt fram alþingisárið 2003–2004. Lítið sem ekkert hefur komið útúr þeim nefndum sem áttu að skoða mál- efni heyrnarlausra. Heyrnarlausir fá einungis átta mínútna fréttatíma dag hvern. Hversu lengi á þetta að ganga svona? Mér finnst mál til komið að við tökum okkur saman í andlitinu og ger- um eitthvað í málunum. Ég skora á heyrandi Íslendinga að líta í eigin barm og ímynda sér þann veruleika sem blasti við ef tungumál ykkar væri ekki viðurkennt af meirihluta þjóð- arinnar. Viðurkennum alla Íslendinga! Kúgun hins heyrandi heims Eftir Fanneyju Dóru Sigurjónsdóttur fds@hi.is Höfundur stundar nám í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Í nýlegu verðlaunaverki sínu The Economy of Prestige: Prizes, awards, and the circulation of cultural value fjallar James F. English um hlutverk menningar- og vísindaverðlauna í vestrænum nútímasamfélögum, en fjöldi verðlauna- og viðurkenningarsjóða hefur vaxið ótrúlega á undanförnum árum. Bók Eng- lish hefur hlotið jákvæða dóma, t.d. í hinum virtu tímaritum The New Yorker og TLS, en bók- menntafræðingurinn Elaine Showalter segir í umfjöllun um verkið í TLS að á netsíðu „The International Congress of Distinguished Awards“ sé að finna lista yfir 26 þúsund verðlaun á sviði lista og vísinda, en þar af séu veittar 9.000 viðurkenningar innan kvikmyndageirans eins. Bók English er mótuð af kenningum franska félagsfræðingsins Pierre Bourdieu og í henni leitast hann við að útskýra hvernig viðurkenn- ingarkúltúrinn hafi áhrif á menningarlegt og fé- lagslegt auðmagn. Hvað kosta verðlauna- samkeppnir og hverjir hljóta helst verðlaun? Hvaða áhrif hafa deilur um verðlaunahafa á vægi verðlauna og hvað ræður ferðinni hjá þeim sem kosta verðlaunin og þeim dómnefndum sem jafnan verja löngum tíma á litlu kaupi við að úthluta þeim? Miklum fagurkerum á sviði menningar og lista þykir jafnan lítið til menningarverðlauna koma en andúðin sem þessir einstaklingar sýna verðlaunakerfinu er hluti af tíðarandanum og styrkir kerfið í sessi. Gagnrýni er mikilvægur liður í kynningarferlinu, ekki síst fyrir þá sök að í henni birtist sú hugmynd að sönn list sé hafin yfir pólitíska flokkadrætti, forpokaða fag- urfræði, smekk, skoðanir þrýstihópa eða jafnvel spillingu. Fagurkerarnir, sem telja sig hafa sannleikann einan að leiðarljósi, hefja á loft þá mikilvægu hugmynd að listin sé óháð mark- aðnum, en sú trú er afskaplega mikilvæg eigi listiðnaðurinn sem slíkur að viðhalda sérstakri stöðu sinni og þá um leið viðurkenningarkerfið. English leggur einmitt áherslu á að það sé ekki síður mikilvægt að „rangir“ einstaklingar hljóti mikilvæg verðlaun. Með því erum við minnt á sérstöðu listarinnar sem er auðvitað aldrei lengra frá hugmyndinni um samkeppni en þeg- ar einhver kemur óverðskuldað fyrstur í mark. English telur helst að almenn viðurkenning á félagslegu mikilvægi verðlauna ógni verðlauna- hefðinni því að slík hugsun dragi úr nauðsyn- legri upphafningu fyrirkomulagsins og veiki því það virðingarhagkerfi sem veitendur og þiggj- endur sjá sér hag í að viðhalda. Í ljósi þess að ég var í síðustu viku tilnefndur til menningarverðlauna DV er það síst af öllu vilji minn að grafa undan upphefðarkerfinu með því að reyna að greina úr því vegtylluna. En þar sem ég mun að öllum líkindum þurfa að bíða í önnur fjörutíu ár eftir næstu tilnefningu get ég ekki stillt mig um að velta fyrir mér vægi ís- lenskra menningarverðlauna um leið og ég leit- ast við að skýra þá skyndilegu gengishækkun sem á mér hefur orðið við tíðindin. Eftirfarandi þættir hafa áhrif á táknrænt vægi íslenskra verðlaunaveitinga: 1) Menningarverðlaun DV eru innlend við- urkenning. Í huga íslensks almennings er upp- hefð innflutningsvara. Íslensku bókmennta- verðlaunin vega til að mynda ekki eins þungt og bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs ef Ís- lendingur fær þau. Alþjóðlegur er lykilorð í þessu samhengi. 2) Peningar. Hversu miklu er eytt í verð- launapakkann – jafnt í kynningu sem verð- launafé. Verðlaunafé tæplega 110 af 165 virt- ustu verðlaunum í heimi er meira en 100 þúsund dalir (skv. „The International Congress of Distinguished Awards“), en kostnaðurinn við sjálfa verðlaunaveitinguna er alltaf miklu meiri. Peningum fylgir einnig sýnileiki. Einfaldasta leið til að gefa verðlaunum vægi er að ausa í þau peningum. 3) Hverjir hafa hlotið verðlaunin? Vægi verð- launa fer vitaskuld eftir því hverjir vinna þau og svo auðvitað eftir því hvort þessir einstaklingar sjái sér hag í því að taka við verðlaununum (ekki er nóg að senda fulltrúa sinn). 4) Vægi verðlauna vex gjarnan með aldr- inum. Rótgróin verðlaun eru venjulega betri en þau sem eru ný af nálinni (ekki má heldur gleyma því að til þess að verðlaun haldi velli um áratuga skeið verða að fylgja þeim traustir sjóðir). Háar fjárupphæðir geta þó stytt biðtím- ann verulega. Abel-verðlaunin norsku og Dan David verðlaunin frá Ísrael eru til að mynda að- eins fjögurra ára gömul en þegar orðin mjög eftirsóknarverð í vísindaheiminum vegna þess að verðlaunaféð er um milljón dalir í báðum til- vikum (þau síðarnefndu eru einnig menning- arverðlaun). Nóbelsverðlaunin hefðu heldur ekki náð yfirburðastöðu jafnt fljótt og raun bar vitni ef verðlaunaféð væri ekki yfir 80 milljónir króna. 5) Hver er opinber samfélagsstaða verð- launaveitandans? Hér væri forvitnilegt að greina DV-verðlaunin sérstaklega og spyrja um ítök DV í íslensku menningarlífi. Það ætti að styrkja stöðu verðlaunanna að þau hafa nú ver- ið veitt í tæpa þrjá áratugi eða mun lengur en önnur íslensk menningarverðlaun. Sú skoðun margra í íslensku samfélagi að DV sé lágkúru- legt götublað vegur þó án efa þyngra og dregur úr táknlegu vægi verðlaunanna, ekki síður en hamagangurinn í kringum fyrrverandi ritstjóra DV og afsögn þeirra í janúar síðastliðnum. Í stærra samfélagi væri hugsanlega hægt að samræma menningarstefnu blaðsins ritstjórn- arstefnunni, gera hana ögrandi og beitta, en ís- lenskt menningarlíf er afskaplega einhæft og býður upp á lítið svigrúm fyrir menning- arstefnu af því tagi. 6) Hverjir láta sig menningarverðlaun blaðs- ins varða? Það er til marks um stöðu DV- verðlaunanna að þau vekja ekki sama umtal og sömu bræði og t.a.m. tilnefningar í flokki Ís- lensku bókmenntaverðlaunanna. Það má jafn- vel halda því fram að gjá sé að finna milli blaðs- ins og þeirra sem tilheyra mennta- og menn- ingarelítunni en fulltrúar úr þessum hópum fylla gjarnan dómnefndir og eru í hlutverki álitsgjafa. Ef þessi hópur sýnir verðlaununum áhugaleysi má annaðhvort vinna hann á sitt band eða ögra honum opinskátt og reyna þann- ig að draga úr táknrænum ítökum hans. 7) Það er ekki nóg að vera tilnefndur. Hagfræði upphefðarinnar Fjölmiðlar Eftir Guðna Elísson gudnieli@hi.is ’Í ljósi þess að ég var í síðustu viku tilnefndur til menn-ingarverðlauna DV er það síst af öllu vilji minn að grafa undan upphefðarkerfinu með því að reyna að greina úr því vegtylluna.‘ I Við gerð klámmyndar fer ein stelpnanna– ljóshærð með svart flauelsband um hálsinn – í gegnum allar stellingarnar án þess að bregða svip. Áhugaleysi hennar er tælandi. Í gleðskapnum miðjum hvíslar maður í eyra hennar: „Hvað ertu að fara að gera eftir orgíuna?“ II Þessi texti er úr bókinni Cool MemoriesI (Svalar minningar) eftir Jean Baudrillard. Hann vekur með einföldum hætti athygli á því furðulega andrúmi sem einkennir klámmyndir, það er eins og leik- ararnir séu fjarverandi þótt þeir séu þarna í öllu sínu veldi, þeir eru viðstaddir á und- arlega ópersónulegan hátt og leikstíllinn einkennist af fálæti. Hugsanlega er þetta varnarháttur manneskju sem afhjúpar sig algjörlega, setur sjálfa sig á svið með þeim hætti að hún getur ekki verið nein önnur en hún sjálf (og er því ekki leikari í eiginlegum skilningi), grímulaus og án hlutverks í öll- um skilningi þeirra orða, hreint viðfang raunverulegra aðstæðna, sem er ekki hægt að dylja sem neitt annað en það, og auðvit- að myndavélarinnar og glápsins. Það er ekki nema von að leikararnir reyni að hafa hugann við það sem gerist eftir að orgíunni er lokið, við möguleikana handan hins raun- verulega svalls. III Það er einhver skyldleiki með klám-myndum og raunveruleikaþáttum. Klámmyndir eru raunveruleikaþættir vegna þess að fólkið sem tekur þátt í þeim er ekki leikarar. Og raunveruleikaþættir eru klám vegna þess að þeir miðast að því að afhjúpa fólk algjörlega, girða niður um það fyrir allra augum, rjúfa varnir þess allt þar til að fálætið eitt er eftir, helbert tómlætið, hel- blár kuldinn sem streymir til okkar í gegn- um skjáinn. IV Við lifum á tímum menningar án ná-lægðar, raunveruleika án ímyndunar, gjörða án afleiðinga, kerfis án greiningar. Hvað ertu að fara að gera eftir orgíuna? Neðanmáls Að baki hverjum trefli er hnakki. Þetta tel ég fullljóst og margsannað.Hitt er svo annað að mér finnst Gillzenegger, guðblessihann, kominná síðasta söludag. Hann stamar of mikið. Treflar mega stama. Hnakkar mega það ekki. Svo er þessi bók hans víst líka leiðinleg. Sem er leiðinlegt, fyrir hann og alla aðra. Kannski er ég samt bara þreyttur. Ljót ljóð. Ég hata enn þá fegurðina. Og er ósammála Sölva Birni um flest sem kom fram í Lesbókargreininni. En það ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart. Ég hafði sjálfur gríðargaman af ömurlegu ljóðakeppninni, þó ég geti reyndar líka lofað því að hún verður aldrei nokkurn tímann endurtekin. En mér finnst líka ágætt hún fari fyrir brjóstið á fólki. Fólk er alltof vant að virðingu sinni, og mætti alveg þola að leika sér aðeins meira. Ég veit reynd- ar ekki til þess að til sé sú skilgreining á list að hún sé „ekki ömurleg“. Mér finnst rosalega mikið af list stórkostlega ömurlegt. Og það á líka við um list sem ég dáist að, hef gaman af. Ég myndi t.d. aldrei endast til að lesa Sol- iloquy eftir Kenny Goldsmith frá byrjun til enda, en það breytir því ekki að það er sjálfsagt magnaðasta ljóðverk sem ég hef heyrt af, mögulega að und- anskilinni Eunoia Christians Bök (að ekki sé reyndar minnst á óskrifaða vír- usabók hans, sem ég ætla reyndar ekki að segja neitt frá). Kenny Goldsmith hefur sjálfur lýst því yfir að eitt af markmiðum hans sé að skrifa leiðinleg- asta mögulega texta. Flarf-skáldin eru mjög svipuð því sem ömurlega ljóða- samkeppnin skilaði af sér, nema bandarískari, og mér finnst þeir með því meira spennandi sem er að gerast í ljóðheimum, af því sem ég þekki í öllu falli. Og mér finnst þeir skemmtilegir í ömurð sinni, stórskemmtilegir. Sama gildir um sigurljóðin þrjú, ég dáist að þessu rusli. Ursonata Kurt Schwitters er ekki skemmtileg, hún er stórkostlega ömurleg, en mikið djöfull er hún líka skemmtileg í flutningi Christians Bök. Eiríkur Örn Norðdahl Fjallabaksleiðin www.fjallabaksleidin.blogspot.com Trefill, hnakkar og list Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ísland 2020. Lesbók Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.