Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.2006, Page 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. apríl 2006 | 3
Rétt í þessu var gerð leit í klefanum.
Fangaverðirnir voru að leita að bruggi.
Þeir vita vel að ég er ekki að brugga,
en sögðu að þetta væri alltaf gert fyrir páska.
...
En ástin mín …
Það er nýr dagur!
Nýtt ljós!
Sólin fyllir klefann birtu
og ást þín streymir til mín.
Því brýt ég hlekki hugans
og fleygi mér í faðm þinn,
hoppa yfir hliðið,
þýt um þröngan farveg,
skarð á milli fjalla,
hitti þig við læk einn
eða litla kaffistofu.
Þú brosir einsog engill.
Ég greiði lokka þína.
Við hlæjum uppi á heiði,
en þá fer ský um himin
og varpar skugga á veggi.
Ég stend í klefa mínum
og stari út í tómið,
en ást mín streymir til þín
sem lækur út í lífið.
Himinninn svo glaður,
falleg fjöll í fjarska.
Guð þú varpar ljósi
á veröld mína og von,
heimur minn og hugur
æðrulaus
án ótta …
Stjörnur hlæja á himni,
horfin næturský.
Góða nótt þú kemur
í vökunni til mín.
...
Mikið eirðarleysi …
Ekkert um að vera.
Enginn ágreiningur um það:
Föstudagurinn langi er langur.
Talar einhver um það?
Nei, sumt þarf ekki að ræða.
Fíladelfía færði okkur páskaegg númer fjögur,
fallega gert af þeim.
Ég borða mitt á morgun.
Gott að þessi dagur er á enda.
...
Miðvikudag fyrir páska
hvarf rakhnífur rakarans.
Hann kom hingað til að klippa okkur,
raka af okkur peninga,
einsog einn orðaði það.
Nú er rakarinn sannfærður um
að einhver okkar hafi stolið af sér rakhnífnum.
Það er búið að leita hjá öllum,
mörgum sinnum hjá sumum.
Hér snýst allt um rakarann,
einsog það hafi ekki verið frelsarinn
sem reis upp á þriðja degi
heldur rakarinn.
Ég sagði varðstjóranum
að þetta væri virkilega vanhugsað atriði.
Ég held að hann hafi verið sammála.
...
Ég set Palla Rós. á fóninn
og talandi um rós
þá er engin rós án þyrna.
Góður málsháttur,
finnst mér.
Þegar við erum orðin þroskuð
og klár í lífinu
þurfum við ekki að stinga okkur meira.
Nú fæ ég mér smók,
slaka á
og horfi á páskaliljuna
sem jesúkonan með gítarinn
færði mér í gær …
Hún er falleg
og minnir á þig.
Sígarettan er búin.
Ég hlusta á Palla,
horfi á páskaliljuna
og hugsa til þín.
Takk fyrir daginn.
Góða nótt páskaliljan mín.
Ég brosi út að eyrum
og blikka þig blítt.
þú ert mér svo mikils virði.
Við erum sammála um það.
Ég og páskaliljan.
Ástarstjarna yfir Litla-Hrauni
Páskaljóð
Eftir Einar Má Guðmundsson
Höfundur er rithöfundur.