Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.2006, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.2006, Side 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. apríl 2006 B ókin Fiskisagan flýgur sem kom út fyrir jól fjallar um íslenskan sjávarútveg á 8. áratugn- um. Þótt uppistaða hennar sé ljósmyndir Krist- ins Benediktssonar og textinn, sem unninn er af Arnþóri Gunnarssyni sagnfræðingi, snúist um þær, er hún auglýst sem sagnfræðirit, ekki ljós- myndabók. Þessi skilgreining kemur á óvart þar sem hún gefur til kynna aukið vægi textans á kostnað myndanna og veldur því að listrænt gildi þeirra víkur fyrir heimildargildi. Heillandi ljósmyndir Kristins af daglegu amstri fiskverkenda og sjó- manna þykja einstakar heimildir um fiskvinnslu Íslendinga. Þess vegna vekur notkun, eða öllu heldur notkunarleysi, á þeim athygli. Framsetning ljósmyndanna í bókinni er að mörgu leyti dæmigerð fyrir viðhorf sagnfræðinnar til þeirra. Ljósmyndirnar gegna hlutverki sjónarvotts, þær eru notaðar til þess að draga upp ákveðna mynd af íslenskum sjáv- arútvegi, sýna hann en ekki túlka. Þá varpa málaferli ljós- myndarans og útgáfunnar áhugaverðu ljósi á stöðu ljósmynd- arinnar innan fræðasamfélagsins sem og almennt. Málaferli Fyrstu fréttir af Fiskisögunni fyrir jól fjölluðu ekki um efni hennar heldur lögbann sem Kristinn fór fram á að yrði sett á útgáfu hennar. Hann hélt því fram að ekki hefði verið farið eftir tilmælum hans um meðferð myndanna við uppsetningu bók- arinnar og að þær hefðu verið klipptar til án hans leyfis. Útgef- endur báru því við að ljósmyndarinn hefði ekki sýnt neinn áhuga á uppsetningunni og ekki svarað fundarboðum þeirra. Á grundvelli þess hve útgáfan var langt komin (bókin komin úr prentun) og þess að hún myndi ekki hindra Kristin í að leita réttar síns var lögbannskröfunni synjað. Ljósmyndirnar í bók- inni eru grundvöllur málaferlanna. Það er framsetning þeirra sem Kristinn er ósáttur við. Um texta hennar er ekki deilt þótt hann byggist að hluta á greinaskrifum Kristins sem eru eign hans samkvæmt höfundarlögum rétt eins og myndirnar. Blaðaskrif um bókina sýna að skoðanir á hlutverki ljósmynda eru ólíkar. Í ritdómi Guðna Th. Jóhannessonar, „Fiskisagan flýgur vonandi sem víðast“ (Fréttabl. 21.9. ’05), kemur fram að hann sjái ekkert athugavert við myndirnar, hann hafi borið þær undir virta ljósmyndara sem sjái heldur ekkert að þeim. Guðna finnst þess vegna miður hvernig komið er fyrir bókinni og lætur að því liggja að framkoma Kristins sé ósanngjörn gagnvart öðrum sem unnið hafi að útgáfu hennar. Kristinn svarar ritdómi Guðna, í greininni „25 ára draumur orðinn að martröð“ (Mbl. 29.9. ’05), með því að segja að spurningin snúist ekki „um hvað Pétri og Páli finnist. Hún snýst um hvað mér finnst og hvernig ég vil sjá mínar myndir settar fram í bók sem þessari. Ég á höfundaréttinn að myndunum …“ Kristni finnst illa farið með myndirnar sínar og segir kápuna „gleggsta dæm- ið um afskræminguna“. Þá ræðir Kristinn tilurð bókarinnar og segist hafa alið með sér draum í 25 ár um að koma íslenskum sjávarútvegi á framfæri við þjóðina sem hafi fjarlægst hann „svo hún þekkir hann rétt af afspurn [og því sé bókin] kærkom- in með sínum texta og myndum til að rifja upp liðinn tíma …“ Guðni virðist líta á Fiskisöguna sem fræðibók frekar en ljós- myndabók. „Frásögnin er fjörug og fróðleg; myndirnar gríp- andi og lýsandi,“ segir hann og virðist því ekki líta á myndirnar sem aðalatriði bókarinnar sem er að hans mati „happadráttur“ og „ætti að vera til á hverju sjómannsheimili og ekki síður í húsakynnum okkar borgarbarnanna sem höfum gott af því að fræðast um það hvernig þjóðartekjurnar verða til“. Viðhorf Guðna til myndanna byggist á því að þær séu lýsandi fyrir frá- sögnina, þjóni frásögninni frekar en að textinn dýpki mynd- irnar (Fréttabl. 21.9. ’05). Viðhorf Kristins til myndanna er tví- bent. Hann lítur á myndirnar sem sitt hugverk, sitt listaverk, en einnig sem mikilvægar heimildir um íslenskan sjávarútveg. Staða ljósmynda sem listaverk og hlutverk þeirra sem sjón- arvottar fer ekki endilega saman. Kannski geta þær ekki verið hugverk Kristins um leið og þær eiga að sýna sjávarútveginn eins og hann var en er ekki lengur. Tengsl ljósmynda og texta Fræðimenn hafa löngum deilt um það hvort myndin byggist á málinu eða málið á myndinni. Roland Barthes segir að þar sem vestræn menning sé menning hins ritaða máls byggist allar myndir á tungumálinu sem slíku, þær beri alltaf með sér ein- hvers konar málboð. Aðrir hafa bent á þá yfirburðastöðu sem myndin og þá sérstaklega sjónin og sjónskynjun hafi gagnvart orðinu. Myndatextar varpa ljósi á sérkennilega stöðu ljós- myndarinnar. Þær þykja nauðsynlegar með allri umfjöllun sem vekja á athygli, gefa henni heimildagildi, sýna það sem gerðist. Myndunum fylgja hins vegar nær alltaf myndatextar sem binda niður merkingu þeirra og stjórna þannig túlkun lesand- ans. Myndirnar eru látnar rökstyðja textann í mörgum til- fellum en þeim er þó ekki treyst fullkomlega. Hið almenna viðhorf til ljósmyndarinnar er að hún segi sann- leikann. Rætur viðhorfsins má að öllum líkindum rekja til tækninnar sem liggur að baki ljósmyndun. Það að vél sjái og fangi myndefnið ruglar okkur í ríminu. Okkur hættir til að gleyma eða við horfum einfaldlega framhjá þeirri staðreynd að einhver smellti af. Hvort ljósmynd geti fangað sannleikann eða raunveruleikann er erfitt að segja. Hins vegar er engum blöð- um um það að fletta að þær eru oft á tíðum notaðar sem vitn- isburður um hann. Í Fiskisögunni sjáum við að staða ljósmyndarinnar sem sjón- arvottur eða handberi sannleikans er sterk. Myndirnar í verk- inu eru notaðar til þess að sýna, ekki túlka, sjávarútveginn. Þar sem Fiskisagan er skilgreind sem fræðibók getur reynst hjálp- legt að skoða notkun fræðanna, og þá sagnfræðinnar sér- staklega, á ljósmyndum. Guðbrandur Benediktsson fjallar um notkun ljósmynda í sagnfræði í MA-ritgerð sinni, Vitnað til for- tíðar. Þar kemur fram að hingað til hafi ljósmyndir aðallega verið notaðar við miðlun sagnfræðinnar, í bókum fyrir almenn- ing og greinum. Guðbrandur bendir á að ljósmyndir hafi lítið verið notaðar sem heimildir og sú notkun hafi einkennst af vitn- isburðarhlutverkinu. Þá hafa þær einnig gegnt hlutverki skrá- setningartækis. Guðbrandur kemst að þeirri niðurstöðu að ljósmyndir séu mikilvægar heimildir sem sagnfræðingum beri að nýta við rannsóknarvinnu þar sem við á þótt þær hafi lengst af verið hunsaðar sem slíkar. Ritgerð hans er ætlað að veita að- ferðafræðilegan grunn fyrir notkun þeirra og opna fyrir um- ræður um ljósmyndir sem heimildir. Hann fellir ljósmyndina inn í aðferðafræði sagnfræðinnar sem samkvæmt honum bygg- ist fyrst og fremst á vinnu með heimildir. Í sagnfræði er heim- ildum skipt niður í flokka eftir gerð þeirra. Fyrst og fremst er gerður greinarmunur á frumheimild og eftirheimild. Frum- heimildir eru hlutir, skjöl og handrit úr fortíðinni sem eru rannsökuð og þá verður rannsóknin, eða skrifin, um hlutina að eftirheimild. Eftirheimild er sem sagt túlkun á frumheimild. Því má hins vegar velta fyrir sér hvort raunverulegur munur sé á frumheimildum og eftirheimildum. Ljósmyndir eru oftast frumheimildir samkvæmt Guðbrandi, heimild um andartakið sem myndin sýnir og um þær ættu að gilda sömu reglur og um aðrar heimildir. Ástæður þess að þær hafa ekki verið notaðar meira en raun ber vitni má eflaust rekja til þess að þær eru samtíðarheimildir, fjöldi þeirra er gíf- urlegur og þær eru útbreiddar meðal almennings. Einnig bendir hann á að nemendur í sagnfræði séu ekkert þjálfaðir í lestri á myndum. Við þetta má bæta spurningunni hvort tregðu sagnfræðinnar varðandi ljósmyndir megi rekja til greinarmun- arins sem gerður er á frumheimild og eftirheimild. Kannski af- hjúpar ljósmyndin vanda sagnfræðinnar þegar kemur að þess- um greinarmun, ef ljósmynd er alltaf túlkun og þarfnast samhengis má spyrja hvort hún sé í raunverulegu sambandi við fortíðina eins og frumheimildir eiga að vera? Hvort hún sé leif fortíðar eða túlkun? Hvort allar heimildir séu ekki eftirheim- ildir, túlkun? Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur fjallar um notkun sagnfræðinnar á ljósmyndum í Fortíðardraumum. Þar koma til Myndin af sjónum Sjómaðurinn Dæmi um nafnlausa mynd. Um sjómennsku og fiskirí í fræðiritinu Fiskisagan flýgur. Eftir Önnu Björk Einarsdóttur abe3@hi.is Ljósmynd/Kristinn Benediktsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.