Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.2006, Qupperneq 8
8 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. apríl 2006
Prologus
1000 ár síðan sveinbarn fæddist 1006
Aldir líða – tíminn skundar skeiðin,
skylt að tengja það sem er og var.
Óslitin er kristni-kirkju leiðin,
kynnir tímamót sín víðast hvar.
Tvíþætt lengst af lausnarans var kirkja,
lýsandi með höfuðstöðvar tvær.
eina heild sig aftur valdi að virkja,
vígslubiskupsstólar urðu þær.
Sjá í þús-öld komu stórar stundir
stillir sig við þær ár komið hér.
Fyrir árum þúsund – þær um mundir,
þá hann Ísleifur vor fæddur er.
Fyrstur hann um fimmtugt kirkju þjóðar,
fór af stað með – komna til vor nú.
Líf vort þar er ljósið heimsins óðar,
lausnari vor Jesús – kristin trú.
950 ár frá vígslu fyrsta Skálholtsbiskups
í kaþólskum sið 1056
Lag: Dag í senn
Skálholts sól á himin – víðan hringinn
Hvítá framhjá rennur – stórfljót það.
Kristin trú fer áfram Árnes-þingin,
útfrá þessum höfuðkirkju stað.
Fyrsti biskup kirkju vorrar valinn
var það Ísleifur Gissurarson.
Allra mesti uppfræðari talinn,
æsku gaf hann kærleik, – trú og von.
Biskups feðga forráð þjóðin metur
fyrstir leiddu kirkju vora af stað.
Gissur kirkju gefur biskupssetur,
gjafmildur hann! Skálholt vottar það.
Þjóðar – kirkju Krists var tengiliður,
kær var Gissur fólki – margt bar til.
Vopnaburður nú fyrst lagður niður
ný kom tíund – fátækum í vil.
Brynjólfs fjögur hundruð ára’ er hátíð,
er hún sviprík ævi þessa manns.
Starfsmikill fékk lærdómstign hjá landslýð
lengst við munum stjórnarvisku hans.
Biskup Jón á birtingarkraft mestan,
bók hans – ræður eftir meistarann.
Innblásinn hann sagði sannleik bestan
synda lausn í Kristi trúin fann.
Hugann grípur lotning ljós í muna
er lít ég Hvíta-Krists stað geisla af náð!
Skálholtsbiskup lengst með leiðsöguna
leiðir stiftið sitt af ráði og dáð.
Þjóðkirkjan er það í raun og veru
því að stiftin samtengd – mynda heild.
Þegnar hér á landi almennt eru
evangelisk-lútersk kirkjudeild.
900 ár frá vígslu fyrsta Hólabiskups 1106
Hólastifti – hið forna – og nýja
Lag: Ó, fögur er vor fósturjörð.
Þá Hólastifti stofnað var,
þar stórri köllun mætum
er ellefu við aldirnar
vér árum sex þar bætum.
Það stiftið biskup Gissur gaf
með Guði Norðlendingum.
Í fjórðung stærstum stjórn lét af,
úr stólsins verkahringum.
Þar fyrstur hann kom – herra Jón,
við ,,helga nafnið kenndur,
var Ögmundsson, með engla tón
af erkibiskup nefndur.
Þar varð að finna stifti stað
til starfa: – biskups setur.
Rétt Hóla-gjöfin gat leyst það.
Þeir gátu ei hentað betur.
Brátt fjölsótt ,,heima að Hólum“ var,
og hefð til kirkju að sækja.
Þar kristna miðstöð menningar,
var mikil þörf að rækja.
Og kirkja þurfti kennilýð,
þá kennsla hófst í skóla.
Svo bókagerð var góð og tíð.
Sjá, – Guð vor leit til Hóla.
Sín kynnir biskup kirkjumál
og kenningu af lífi og sál
Í Kristi sigrum synd og tál
með sannri trú og náð.
Í heimsókn biskup fer og fær
hann finnur lausnir – gefur þær
hans traust og hald er Kristur kær
og kristin hjálparráð.
Þá Reykjavík varð biskups bær
er bústað herra Geir þar fær.
rétt síðan aldir eru tvær
við Alþing Dómkirkjan.
Svo tímamóta árið á
víst einnig biskupsstóllinn sá.
Hátt metum stóla þessa þrjá
og þjóðkirkjuskipan.
Öxin – jörðin úthellt geyma
eldrautt þeirra blóð.
Minningu um merka feðga,
man vor frjálsa þjóð.
Biskupi var kær sín kirkja,
kær sem land og trú
Fann í vanda frelsi Íslands
frelsishetja sú.
En vor harka hörku magnar
hefur reynslan sýnt.
Sú er alröng leið til lausnar
leiðrétta er brýnt.
Hryðjuverk sem víti er til
varnaðar um heim.
Líknarverk er lífsins nauðsyn,
lof sé öllum þeim.
Það var Guð sem gerði í Kristi
guðsdóms sátt við heim.
Alla menn þá mistök hendir
miskunn Guð á þeim
Geislar út frá gildistöku
Golgötu á stað
Hár er turn við Hólakirkju
hann ber vott um það.
200 ára biskupsstóll í Reykjavík
er fyrsti biskup Íslands í lúterskum sið
flytur aðsetur sitt í höfuðstaðinn 1806
Lag: Hver á sér fegra föðurland
Hjá landnámsbæ kom byggð í Vík,
nú borgin orku og sögurík
við úthaf nyrst – ei nein er slík,
þess Ísland njóta má.
Þá kirkjan ein heild orðin var
og íbúðar þörf stjórnunar.
var nærtæk miðstöð menningar
og mátti stað þar fá.
Í höfuðborg er biskupinn
er blessar þjóðar söfnuðinn
Hann leiðir, kirkjuleiðtoginn
um lífsins gildin sér.
Í biskups stofu á staðsett hann
sitt starfslið – biskupsritarann
er kirkju sinni og kristni ann
og kaus að vinna hér.
Við Guðbrand kennd er bóka bók
strax blessun mesta veitti
sem hann í prent að Hólum tók
að hluta þýddi og skreytti.
Ef eigi jafn-vel, jafn-skjótt þýtt
það játað Guðs Orð væri
er óvíst hvort vel íslenskt – frítt –
og ylhýrt mál sig bæri.
Er níu alda tímatal
senn taldi Hólastifti
þá Austurbyggðum bauðst það val
að breyttust svæða skipti
Svo Hólabiskups umsjón er
með Austurland og firði.
Hans áhrif sem og athöfn hver
er afar mikils virði.
Forn – mikil gjöf var Gissurar
ný – gerðist skikkan meiri.
Merk þátta skil sú skipan var,
en skyldan söm – við fleiri.
Að sá Guðs orði í sálu manns,
er sólar ávöxt beri,
í orði og verki – hugsun hans
svo hugarfar Krists veri.
Siðbreytingin
Átök og sáttargerð (2. Kor. 5.19)
Siður breyttist – bót var nauðsyn
breyting samþykkt var.
Kaþólsk lúthersk kirkju nefndin
kynnti sættirnar:
Þær af öllum einum rómi
undirritaðar.
Upprunans nú tíðrædd trúin
tengdi deildirnar.
Fimmtán aldir – öld og hálf var
eftir Krists burð hér.
Sjöunda dag sérstan þar!
sjá í nóvember,
var Jón Arasonur settur,
– synir og hans tveir –
höggstokk á þeim dauða að deyja
dóminn fengu þeir.
Áfangaár eftir
Krists burð
Árið 2006 með stór tímamót þriggja biskupsstóla í kirkju þjóðar
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonHóladómkirkja 900 ár eru frá vígslu fyrsta
Hólabiskups 1106.
Dómkirkjan í Reykjavík 200 ára biskupsstóll í
Reykjavík. Fyrsti biskup Íslands í lútherskum sið
flutti aðsetur sitt í höfuðstaðinn 1806.
Eftir Pétur Sigurgeirsson