Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.2006, Page 9
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. apríl 2006 | 9
Víða liggja vegamótin, svo tengjast líka tíma-
mótin.
Nýafstaðið er 50 ára afmæli Selfosskirkju, er
vígð var á merkisárinu 1956 þegar lagður var
hornsteinn að Skálholtskirkju.
Væntanlegt er um mitt sumar 10 ára afmæli
Reykholtskirkju, en nú eru liðin hvorki meira
né minna en 800 ár síðan sagnaskáldið mikla,
kirkjubóndinn Snorri Sturluson, kom þangað.
Í haust verða 20 ár síðan þjóðarhelgidómur-
inn, Hallgrímskirkja, var vígð.
Hvítasunnuhreyfingin kom hingað fyrir 80
árum til Vestmannaeyja og 70 árum til Reykja-
víkur, en vagga hennar stóð í Bandaríkjunum
fyrir 100 árum. Já, víða komum vér að tímamót-
um þessa árs.
Í þjóðsöngnum segir séra Mattthías og vitnar
þar í 90. sálm Davíðs:
Fyrir þér (þ.e. Guði) er einn dagur sem þúsund ár
og þúsund ár dagur, ei meir.
Hér hefur verið farið tímamótin í 1000 ár sem
tengjast þjóðkirkjunni, sem væri þá fyrir Guði
sem einn dagur. Þó eigum vér 1000 ár eftir að
þeim atburði sem allir þessir áfangar eru komn-
ir frá. þ.e.a.s. fæðingu Krists í fjárhúsinu í
Betlehem.
Vér förum því þangað rakleitt eins og fjár-
hirðarnir, og fyrir auglit Guðs væri þá ekki að
fara meira en annan dag til viðbótar.
Hér erum vér þá komin, að útidyrum Fæð-
ingarkirkjunnar í Betlehem, sem rís þar stór og
há. Svo eru og dyrnar. En strax má sjá að upp í
þær hefur verið múrað, svo að meðalmaður á
hæð verður að beygja sig mikið til að komast
þar inn. Þetta var gert þegar mestar voru of-
sóknirnar gegn kristnum mönnum og óvinir
kristni áttu það til að fara á stríðsfákum sínum
inn um dyrnar og ráðast gegn þeim er þar voru
inni.
Það er ekki laust við að það sé í samræmi við
þá dýrð sem inni er, og vel við hæfi að lúta höfði
djúpt við inngönguna. Nú tekur við langur
gangur inn að altarinu, þar er beygt til vinstri út
að veggnum. Þar taka við tröppur, nokkur þrep
niður á við, – lengra áfram.
Og viti menn! Þar er þá kominn fjárhúskofinn
með öllum sínum frumleika. Þar sem vér stönd-
um á gólfinu og lítum á það, er þar mynduð
stjarna og inni í henni er áletrun á latínu er seg-
ir og skrifar AÐ HÉR SÉ JESÚS KRISTUR
FÆDDUR.
Vér erum þá í sporum eins og fjármennirnir
forðum, sem séra Einar í Heydölum yrkir um:
Fjármenn hrepptu fögnuð þann
þeir fundu bæði Guð og mann. (Sb. 72)
Þetta er heilög stund í fjárhúskofa Fæðingar-
kirkjunnar, eins og jólin – páskar og hvíta-
sunna. Vér erum í anda við upphafið. Þaðan
kom íslenska kirkjan, stödd í tímans rás. Vér
getum með höfundi Hebreabréfsins sannarlega
tekið undir fyrir augliti Guðs í þeirri óravídd
sem er á milli staðanna og tímanna og sagt:
JESÚS KRISTUR ER Í GÆR OG Í DAG
HINN SAMI OG UM ALDIR. (Hebr. 13.8)
Epilogus
Stjórnarskrá á stoð í kristni
styrk þeim grunni á.
Almenn regla er allra viðmið
eins siðgæðin há.
Kristni í þús-öld þörf var mikil
þakkir vorar tjá.
Þó er mest nú þjóðarnauðsyn
þegnar almennt sjá.
Fjölhyggjan með fár sitt erfitt
fyrirhyggju þarf.
Sjáum – heyrum hryðjuverkin,
hart til stáls er svarf.
Ofbeldið er ógnar valdið,
og með synda arf,
ennþá dugar illt að sigra:
Iðrun – kærleiks starf.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Skálholtsdómkirkja 950 ár eru frá vígslu fyrsta
Skálholtsbiskups í kaþólskum sið 1056.
Morgunblaðið/Jim Smart
Höfundur er biskup.
á verkið má greinilega heyra að Rossini ætlaði
sér aldrei að hafa hljómsveit með í verkinu þó
svo hann hafi gert útgáfu fyrir litla hljómsveit
skömmu fyrir dauða sinn af ótta við að einhver
annar myndi gera það að honum látnum. Þessi
hljómsveitarútgáfa er sjaldan flutt. Rossini not-
ar sérstaka eiginleika píanósins til hins ýtrasta
og nær hámarki með sérstakri trúarlegri
prelúdíu í anda J. S. Bach.
Líkt og Sálumessa Verdis ber verkið keim af
óperum tónskáldsins. Rossini samdi fyrst og
fremst gamanóperur iðandi af lífi en í messunni
eru sumir kaflar þar sem tónlistin gæti verið úr
einhverri óperunni. Domine Deus fyrir tenór og
píanó gæti allt að einu verið óperuaría. Tónlistin
fer beint í æð og gerir engar kröfur um að
áheyrandinn hafi heyrt hana áður. Í fyrri hluta
verksins ríkir léttleiki þar sem hann leyfir ein-
söngvurunum að dilla raddböndunum á meðan
kórinn veitir kirkjulegt aðhald. Þetta má glöggt
heyra í upphafi verksins í Christe eleison sem er
án undirleiks og svipar mjög til Palestrina.
Þó svo verkið geri ekki kröfur um að áheyr-
andinn hafi heyrt það áður þá er verðugt verk-
efni að kafa svolítið ofan í það. Einn merkasti
eiginleiki þess er að það er nokkurs konar
blanda af mjög djúpum og þroskuðum trúar-
legum og heimspekilegum tilfinningum annars
vegar og mjög beittri kaldhæðni hins vegar.
Rossini var mikill húmoristi og gleðimaður og
bera óperur hans þess glöggt merki. En alvar-
legu verkin sýna hinn sanna Rossini ef til vill
best. Hann faldi sig á bak við háðið eins og í
þessu verki. Þetta var dæmigert fyrir ítalska
listamenn þess tíma að þeir forðuðust að takast
á við stór vandamál með því að beita kaldhæðni.
Rossini gerir þetta hér til að blanda ekki per-
sónu sinni um of við verkið en í raun er hægt að
segja að þessum mönnum er aldrei eins mikil al-
vara og þegar þeir spauga. Petite Messe sol-
ennelle er að öllum líkindum uppgjör Rossinis
við lífið sitt skömmu fyrir dauða sinn. Þessu til
staðfestingar má vitna í handritið þar sem hann
skrifaði í lokin smá bréf til Guðs en viðhélt enn
trúðsgrímunni og sagði:
„Kæri Guð. Hér er hún fullkláruð, þessi fá-
tæklega litla messa. Er þetta heilög tónlist eða
vanhelg tónlist? Þú veist vel að mér var ætlað að
semja gamanóperu en það þarf ekki meira til en
smá hæfni og eitthvað smávegis frá hjartanu.
Jæja, vertu blessaður og leyfðu mér nú að kom-
ast til himna.“
Kór Langholtskirkju ásamt einsöngvurunum
Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, Sesselju Krist-
jánsdóttur, Jónasi Guðmundssyni og Ágústi
Ólafssyni flytja messuna í Langholtskirkju á
föstudaginn langa kl. 16 og sunnudaginn 23.
apríl kl. 16. Hljóðfæraleikarar eru Anna Guðný
Guðmundsóttir píanóleikari og Steingrímur
Þórhallsson sem leikur á harmonium. Stjórn-
andi er Jón Stefánsson.
G
ioachino Rossini, eða „Svanurinn
frá Pesaro“ eins og hann var oft
nefndur, sýndi strax, átta ára að
aldri, að í honum blundaði mikið
tónskáld og 1810, þegar hann
var átján ára, var ópera hans La
Cambiale di matrimonio sett upp í Feneyjum.
Upp frá því samdi hann að meðaltali tvær óper-
ur á ári og naut mikilla vinsælda, svo mikilla að
hann var talinn þungamiðja ítalsks óperulífs
fyrri hluta 19. aldar og féllu önnur ítölsk sam-
tímatónskáld í skuggann af honum, s.s. Bellini
og Donizetti. Enginn ógnaði honum fyrr en
Verdi tók við af honum um miðja öldina eftir að
hafa samið Gullna þríeyk-
ið sitt. Snilligáfa Rossinis
fólst einkum í því að hann
gat gert grípandi laglínur, stal oft frá sjálfum
sér (sbr. óperuforleikirnir þar sem hann vitnar í
allt að þrjár af eigin óperum) og hann hafði við-
horf atvinnutónsmiðsins og fór því alltaf stystu
leið og breytti aldrei neinu eftir á. Enda sagði
hann sjálfur: „Látið mig fá innkaupalista og ég
skal semja tónverk við hann.“
Það var þó einkum Rakarinn frá Sevilla sem
hélt nafni hans á lofti um víða veröld og enn
þann dag í dag er hún gríðarlega vinsæl. Hana
samdi hann á þrettán dögum, aðeins 24 ára
gamall. Hún er mjög dæmigerð fyrir stíl Ross-
inis. Franska leikskáldið Beaymarchais hafði
samið tvo gamanleiki um Fígaró, annars vegar
Rakarann og hins vegar Brúðkaup Fígarós.
Mozart hafði samið óperu við Brúðkaupið og í
henni kemur fram hörð þjóðfélagsgagnrýni en
ópera Rossinis er öll á léttu nótunum. Fyrir
þennan léttúðleika hefur hann oft verið gagn-
rýndur og mörgum fundist tónlist hans of ein-
föld, sérstaklega eftir að Wagner og Strauss
fóru að semja. En það er einmitt í einfeldninni
þar sem styrkur hans liggur, enda var hann
fyrst og fremst gamanóperutónskáld. Tónlistin
er mjög einföld og beinskeytt og áheyrandinn
grípur hana strax. Þetta er nokkuð sem skorti í
tónlist forvera hans og samtímatónskálda en
óperupersónur þeirra virka oft líflausar í
samanburði við hans.
Rossini kom sér fyrir í París og samdi þar Vil-
hjálm Tell sem hann taldi mesta afrek sitt enda
eyddi hann sex mánuðum í smíði hennar. Henni
var vel tekið en Rossini ákvað að hætta að skrifa
leikhústónlist og taka sér frí frá tónsmíðum 37
ára gamall. Síðustu þrjá áratugi ævi sinnar lifði
hann ríkmannlega, borðaði vel, helgaði sig sæl-
keralífinu (fann meira að segja upp réttinn
Tournedo Rossini), giftist hverri fallegu sópran-
söngkonunni á fætur annarri og varð hrókur
alls fagnaðar í skemmtana- og menningarlífi
Parísar. Ekki er vitað fyrir víst hvers vegna
hann hætti að semja óperur en það eina sem
hann samdi síðustu 39 ár ævi sinnar var hið
stórbrotna Stabat Mater, nokkur sönglög og
svo Petite Messe solennelle sem hann samdi
fjórum árum fyrir dauða sinn og kallaði sjálfur
„Síðustu höfuðsynd elli minnar“.
Verkið er skrifað fyrir kór, fjóra einsöngvara,
píanó og harmoníum. Það vekur undrun að
Rossini, sem var svo snjall að skrifa kröftuga og
dillandi tónlist fyrir hljómsveit, skyldi skrifa
undirleikinn fyrir píanó þegar allir aðrir skrif-
uðu fyrir stærri og stærri sinfóníuhljómsveitir
sbr. Berlioz. Ef til vill hafa aðstæðurnar við
frumflutninginn haft sitt að segja en hann var í
einkaboði greifynjunnar Louise Pillet-Will í
París 1864. Daginn eftir flutninginn var almenn-
ingi leyft að hlýða á verkið og fékk það fínar við-
tökur en flestir litu á það sem uppkast að stærra
verki með stórri hljómsveit. Tónlistargagnrýn-
andi Parísarblaðsins Le Siécle taldi að þegar
Rossini væri búinn að skrifa út hljómsveitar-
partinn væri hann kominn með verk með svo
miklum eldmóði að það myndi bræða marmar-
ann í dómkirkjunum. En það er einmitt píanó-
undirleikurinn sem gerir verkið sérstakt því
messur í þessu formi eru fáheyrðar. Sé hlustað
Rossini og
Petite Messe
solenelle
Kór Langholtskirkju ásamt einsöngvurunum
Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, Sesselju Krist-
jánsdóttur, Jónasi Guðmundssyni og Ágústi
Ólafssyni flytja Petite Messe solennelle eftir
Gioachino Rossini í Langholtskirkju á föstu-
daginn langa kl. 16 og sunnudaginn 23. apríl
kl. 16. Messuna samdi Rossini fjórum árum fyr-
ir dauða sinn og kallaði sjálfur „Síðustu höfuð-
synd elli minnar“.
Gioachino Rossini Hann ákvað að hætta að skrifa
leikhústónlist og taka sér frí frá tónsmíðum 37 ára
gamall. Síðustu þrjá áratugi ævi sinnar lifði
hann ríkmannlega, borðaði vel, helgaði sig sæl-
keralífinu (fann meira að segja upp réttinn
Tournedo Rossini), giftist hverri fallegu sópran-
söngkonunni á fætur annarri og varð hrókur alls
fagnaðar í skemmtana- og menningarlífi Parísar.
Eftir Jón Stefánsson
klang@kirkjan.is
Höfundur er kórstjóri.