Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.2006, Page 15

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.2006, Page 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 8. apríl 2006 | 15 Myndlist Það er ekki oft sem sérstaklega er hugað aðþví að bjóða börnum inn í heim myndlist- arinnar. Í dag verður þó opnuð á Kjarvals- stöðum óvenjuleg sýning sem sérstaklega er sett fram með það að markmiði að kenna börn- um að skoða listina. Sýningin verður opnuð á útgáfudegi nýrrar bókar þeirra Önnu C. Leplar og Margrétar Tryggvadóttur; Skoðum myndlist, en til sýnis eru verk er bókin fjallar um. Í samtali við Morgunblaðið fyrr í vikunni sögðust þær stöll- ur hafa „áhuga á hvernig myndlist er kynnt fyrir börnum, og líka bara áhuga á því að börn- um sé sýnd myndlist yfirleitt. Þetta er kannski fyrsta skrefið, að sýna þeim hvað til er og hvetja þau til að skoða.“ Leiklist Í Borgarleikhúsinu eru byrjaðar sýningar aðnýju á leikriti, Forðist okkur, eftir Hugleik Dagsson. Sýningin er samstarfsverkefni Leik- félags Reykjavíkur og Nemendaleikhúss Listaháskóla Íslands og var frumsýnd í haust og vakti mikla athygli. María Kristjánsdóttir gagnrýnandi sagði í um- sögn sinni um Forðist okkur að: Smámyndir hans (Hugleiks) úr lífi æskunnar í fagra útrás- arvæna íslensk-ameríska veruleikanum eða amerísk-íslenska raunveruleikasjóinu eru allt hryllingsmyndir sem hverfast yfir í brandara.“ María bætti svo við í lokin: „… ég veit að það er mikill fengur að Hugleikur Dagsson hefur gengið til liðs við íslenskt leikhús.“ Drífum okkur. Tónlist Lesbókin mælir að þessu sinni með útgáfu-tónleikum Voces Thules sem verða í Kristskirkju í Landakoti í kvöld kl. 21. Sönghópurinn Voces Thules hefur eytt síðustu tólf árum í að rannsaka verkið Þorlákstíðir sem er íhugunartónlist klaustranna og kemur úr tónlistarhandriti frá því um 1400. Að sögn Sverris Guðjónssonar, eins meðlima Voces Thules, er verkið nokkurs konar óður til dýr- lingsins Þorláks Þórhallssonar sem var biskup í Skálholti á 12. öld. Með geisladisknum hafa einnig verið gefin út listbók og mynddiskur. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir á meðan kirkjurúm leyf Kvikmyndir Það er vel til fallið að mæla með sýningu íKvikmyndasafni Íslands í þetta skiptið. Safnið stendur fyrir sýningu á mynd eftir hinn þekkta sænska kvikmyndaleikstjóra, Ingmar Bergman, í dag kl. 16. Myndin heitir Somm- arnattens leende og er frá árinu 1955. Snemma á ferlinum mættu myndir hans nokk- urri andstöðu bæði meðal gagnrýnenda og framleiðenda en eftir að Bros sumarnætur sló í gegn þögnuðu þær raddir. Hér er komin rómantísk gamanmynd undir áhrifum frá Draumi á Jónsmessunótt eftir Shakespeare. Sögusviðið er herragarður um aldamótin 1900. Fylgst er með hópi fólks sem dvelur undir sama þaki um bjarta sumarnótt. Húsbændur, hjú og gestir eiga áhugaverð samskipti. Með aðalhlutverk fara Ulla Jacobsson, Eva Dahlbeck og Harriet Anderson. Einnig eru Gunnar Björnstrand, Jarl Kulle og Margit Carlqvist í stórum hlutverkum og Bibi And- erson á hér skemmtilegt innlegg. Athygli er vakin á því að myndin er með sænsku tali og engum texta. Sýningar safnsins eru í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Lesbók mælir með… Ingmar Bergman „Snemma á ferlinum mættu myndir hans nokkurri andstöðu bæði meðal gagnrýn- enda og framleiðenda en eftir að Bros sumarnætur sló í gegn þögnuðu þær raddir.“ Dagbókarbrot Úr Bréfum Vestur-Íslendinga (2002). Helgi Pálsson skrifar til Páls Pálssonar á Krossi, 5. apríl 1905. Jæja, kæri bróðir, þessar línur fara bæði fá-ar og ómerkilegar því ég hef ekkert til að setja saman sem þú mundir vilja eyða tíma í að lesa og þess vegna ætla ég að hafa þær fáar. Þú segir að þú munir ekki til Ameríku og ert þú því sjálfráður að öllu leyti, en móðir vor var búin að biðja mig um farbréf og það ætla ég að senda henni, en svo segir þú að hún muni ekki koma. Jæja þá, best þið séuð sjálfráð, en þá sjáumst við líklega aldrei í þessu lífi framar því það verður fyrir mér eins og Kára Sölmund- arsyni að hann hafði ekki skap til að hlaupa inn í eldinn til Skarphéðins. Svo er fyrir mér, ég hef ekki skap til að fara heim til Íslands aftur. Lesarinn Hjartað býr enn í helli sínum eftir Guðberg Bergsson Las bókina, sem kom út 1982, aftur núnaum daginn. Hjartað kemur enn á óvart, veldur enn óþægindatilfinningu. Bókin er dökk (grá) stúdía á „myrk- um“ hvötum og þrám – og bælingu þeirra. Hjartað væri hægt að kenna við kjallarabókmenntir en hvoru megin við hana eru, Tómas Jónsson – met- sölubók (1966), kjallarabók allra tíma, og hin maka- lausa Sú kvalda ást sem hugarfylgsnin geyma (1984). Í Hjartanu fylgir lesandinn nafnlausri, rótlausri og „kynvilltri“ (með öfugum formerkjum!) andhetju í sadó- masókískri ódysseiju milli forstofukytra og kjallaraherbergja úti í bæ. Aðrar persónur eru skringilegar – karlar hinsegin, konur grótesk- ar – gjarnan tvöfaldar ef ekki tvöfaldaðar og eins og fengnar að láni úr Undralandinu henn- ar Lísu. Enda gæti ævintýri (lífs-hlaup) nafn- lausa mannsins allt eins verið draumur, frá upphafi til enda. Guðbergur er einn þessara sjaldgæfu höfunda sem toga og teygja á mörk- um bókmenntanna. Geir Svansson Geir Svansson KRISTJÁN Steingrímur er frum- legur málari og hefur sérstöðu sem slíkur í íslenskum myndlistarheimi. Hann hefur í gegnum árin ítrekað komið fram með persónulega, vel ígrundaða og áhugaverða sýn á málverkið, stöðu þess og mögu- leika, án þess þó nokkurn tíma að missa sjónar á fagurfræði þess. Kristján kom fram sem listamaður á tímum nýja málverksins, sem aftur fékk fljótt að víkja fyrir list sem sóttist eftir að útiloka per- sónulega tjáningu í handbragðinu. Þessir tveir pólar hafa reynst mörgum listamönnum ljár í þúfu og áhrifa þeirra gætir m.a. í verk- um Kristjáns sem stundum ein- kennast af dúalisma og hneigjast í tvær áttir samtímis, í átt til hug- myndalistar, skrásetningar og reglu annars vegar og rómantíkur og innsæis hins vegar. Hér kemur bakgrunnur hans í Þýskalandi einnig inn í myndina, bakgrunnur sem ef til vill hefur litast af list af- burðasterkra listamanna, af ex- pressíónískum verkum málarans Anselm Kiefer og hugmyndafræði listamanna eins og Reinhard Mucha sem einmitt sameinar skrá- setningu og innsæi. Kristján Stein- grímur hefur einnig notað skrá- setningarkerfi í list sinni, tölur GPS-staðsetningarkerfis sköpuðu dúalískt mótvægi við óræða og þokukennda litafleti innsæis og til- finninga og í málverkum sínum af Kárahnjúkum er það nokkurs kon- ar hnitakerfi sem bindur express- íónískt málverkið niður og hemur tilfinningaríka efnisnotkun sem ella myndi vera túlkuð á annan hátt. Nú sýnir Kristján málverk og teikningar í Safni við Laugaveg. Kristján hefur tekið agnarlitlar örður úr jarðveginum, stækkað þær upp í smásjá og teiknað eftir smásjármyndinni á pappír og fræs- að á striga. Hér bregður svo við að hið reglubundna hnitakerfi er að- eins til staðar í einu verki. Það gefur til kynna þá tækni sem er milliliður listamannsins og efnivið- ar hans og birtir listamanninn sem vísindamann og skrásetjara. Eng- inn slíkur milliliður er til sýnilega staðar í hinum verkunum sem fyrir bragðið spila á opnari hátt með ímyndunarafl áhorfandans. Tvö stór málverk eru afar fínlega fræs- uð, sprungurnar minna í senn á fyrirbæri í náttúrunni og sprungur í yfirborði gamalla málverka. Minni málverk birta heillandi hreyfingu og línuspil og hið sama má segja um teikningar Kristjáns, en áhorfandinn nýtur þess að fylgja línuspili hans eftir með aug- unum, línuspil án upphafs og endis, án miðju eða kjarna, línuspil sem birtir fyrst og fremst sjálft sig. Að mínu mati hefur Kristjáni hér tek- ist að innlima dúalismann í verk sín, það kerfi sem áður birtist í töl- um, bókstöfum eða reglubundnu mynstri hefur nú tekið á sig nýja mynd og er orðið samtvinnað vinnuaðferð listamannsins. „Kerf- ið“ birtist nú í teikningunni sjálfri, í því hvernig Kristján dregur upp línur eftir smásjánni, línur án markmiðs sem saman skapa eina heild. Hin ljóðræna, fínlega og afar fallega mynd sem þessi verk skapa minna á jákvæðan hátt á verk Bernds Koberling en fyrst og fremst í þeirri sameiningu náttúru og menningar sem einnig einkenn- ir málverk Koberlings. Fyrirbærin sem teiknuð eru og fræsuð eru af Kristjáni eru óþekkjanleg en engu að síður minnir uppbygging þeirra á náttúruleg fyrirbæri og gerir þau aðgengileg. Hvítur bakgrunnur og hvítir veggir skapa síðan hverfult sjónarspil þar sem línur og yfir- borð spila saman í ertandi sjón- blekkingu og að lokum fer allt rýmið að spila með verkum Krist- jáns, jafnvel fíngerðar sprungur sem ég hef aldrei tekið eftir áður í gólfi Safns koma í ljós. Málverk Kristjáns má einnig tengja við listamenn á borð við Cy Twombly sem einatt spila með merkingu og merkingarkerfi að ógleymdum Kristjáni Davíðssyni sem Kristján Steingrímur hefur vitnað til í verk- um sínum. Að mínu mati njóta verk Kristjáns góðs af því að sleppa við hinn sýnilega og aug- ljósa skrásetningarþátt, hinn sýni- legi dúalismi er nú innlimaður í verkið og gerir það að einni órjúf- anlegri heild, togstreitan hefur vik- ið fyrir opnu rými. Sjónleikur á hverfulu yfirborði Ragna Sigurðardóttir Morgunblaðið/Ómar „Hvítur bakgrunnur og hvítir veggir skapa síðan hverfult sjónarspil þar sem línur og yfirborð spila saman í ertandi sjón- blekkingu og að lokum fer allt rýmið að spila með verkum Kristjáns, jafnvel fíngerðar sprungur sem ég hef aldrei tekið eftir áður í gólfi Safns koma í ljós,“ segir m.a. í umsögn um sýningu Kristjáns Steingríms í Safni. MYNDLIST Safn við Laugaveg Kristján Steingrímur Til 8. apríl. Opið mið.–fös. frá 14–18 og 14–17 laugardaga. Málverk og teikningar

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.