Lesbók Morgunblaðsins - 29.04.2006, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 29.04.2006, Blaðsíða 3
Á páskunum sýndi Ríkissjón- varpið bandarísku kvikmynd- ina Finding Forrester (2000). Hún fjallar um vináttu ungs skólapilts við rithöfund sem hefur hætt að birta verk sín og hírist einn í íbúð sinni í New York, í hálf- gerðum felum og greinilega með snert af víðáttufælni, eins og sést þegar hann reynir að fara á völlinn og fær kvíðakast. Það sem er áhugaverðast við myndina er hvernig hún gerir út á „einfarann“, magnaða goðsögn í nútímaheiminum. Enda hafa flestallir sem skrifað hafa um myndina verið á einu máli um að Forrester skír- skoti til eins slíks „einfara“, rithöfund- arins J.D. Salinger. Í kvikmyndinni er Forrester mikilhæfur maður sem á bágt. Sérviska hans stafar af áföllum sem hann hefur orðið fyrir í lífinu og hegðun hans er greinilega sett fram sem óeðlileg og næstum sjúkleg, enda er lausn myndarinnar sú að Forrester drífur sig út og tekur þátt í lífinu, þó að um leið sé greinilegt að hann ætlar ekki að kúvenda fullkomlega. En að hvaða leyti á þessi lýsing við Salinger og aðra frægara einfara í nú- tíma menningarlífi? J.D. Salinger er sjálfsagt þekktasti „ein- fari“ nútímans. Hann er vitaskuld þekkt- astur fyrir skáldsöguna Bjargvættinn í gras- inu (1951), eina víðlesnustu bók 20. aldar, en hefur einnig gefið út smásögur og eina skáldsögu um Glass-fjölskylduna. Árið 1965 birtist seinasta útgefna verk hans í blaðinu The New Yorker og síðan hefur ekkert komið á prent eftir Salinger. Hann flutti líka frá New York til New Hampshire og á seinni árum hefur hann forðast fjölmiðla og opinberar uppákomur. Samt hefur frést að hann hafi haldið áfram að skrifa en vilji ekki gefa út þau verk. Að sögn á hann heilan peningaskáp með óbirtum verkum. Hann reyndi að stöðva ævisögu um sig sem kom út árið 1988. Þetta er grunnurinn að goðsögninni um „einfarann“ Salinger: 1) Engin ný skrif hafa birst á prenti, 2) Hann gefur næstum aldrei kost á viðtölum við fjölmiðla, 3) Hann er lít- ið fyrir að sjást þar sem ljósmyndarar eru. Árið 2000 kom út ævisaga dóttur Salingers, Margaret. Þar kemur fram að Salinger sé alls enginn einfari í hefðbundnum skilningi heldur sé líf hans nokkurn veginn eðlilegt, ef hann væri einhver annar en hann er. Hann ferðist mikið, eigi vini um heim allan og sé manna kátastur innan um annað fólk. Þetta vekur auðvitað upp spurninguna um hvort verði að teljast sjúklegt og óeðlilegt, maður sem hefur hlotið frægð og kýs að lifa nokkurn veginn venjulegu lífi eða fjölmiðla- heimur okkar tíma sem þolir illa tilhugs- unina um að hafa takmarkaðan aðgang að frægum manneskjum. Blaðamaður einn skrifaði grein og gagn- rýndi Salinger harðlega fyrir að vera enginn raunverulegur einfari heldur væri enginn vandi að finna heimili hans, hann kæmi iðu- lega sjálfur til dyra og spjallaði við fólk, aðra en blaðamenn. Hann hefði líka tjáð sig við fjölmiðla um málaferli þegar honum hef- ur hentað. Gagnrýnin er öfugsnúin í ljósi þess að J.D. Salinger hefur aldrei útnefnt sjálfan sig einfara eða farið fram á neitt annað en að lifa eðlilegu lífi, utan kastljóss fjölmiðlanna. Klisjur nútímans eru orðnar kröfuharðar þegar fólk er gagnrýnt fyrir að passa ekki nógu vel við staðalmyndina sem aðrir hafa búið til um það. Hvað er að vera einfari? Bandaríska skáldkonan Harper Lee er ann- að dæmi um frægan „einfara“ í bandarísku bókmenntalífi. Hún er fræg fyrir skáldsög- una To Kill a Mockingbird (1960). Sú er næstum jafn mikið lesin um heim allan og Bjargvætturinn í grasinu. Fleiri sögur hefur hún ekki birt, hefur ekki gefið kost á við- tölum og kemur sjaldan fram opinberlega. En fyrir utan þessa hlédrægni lifir Lee ósköp venjulegu lífi og mætir t.d. hvert ár til Alabama-háskóla að hitta stúdenta sem hafa skrifað um bókina. Fátt bendir til ann- ars en að þetta sé ósköp venjuleg kona sem þrátt fyrir að hafa skrifað bók er lítið gefin fyrir ræðuhöld og athygli. Ástæða þess að hún skrifaði ekki fleiri bækur er að hún virðist aldrei hafa haft áhuga á að vera rit- höfundur heldur vildi hún aðeins koma þess- ari einu sögu á framfæri. Vandamálið við fólk eins og J.D. Salinger og Harper Lee er ekki að þau hafi dregið sig til baka frá heiminum heldur að eft- irspurnin er meiri en framboðið, sem er þvert á hið „venjulega“ í fjölmiðlaheimi nú- tímans þar sem lesendur fá oft að vita miklu meira um fólk en þeir kæra sig um. Báðir þessir höfundar eru mikið lesnir, um þá skrifaðar tugþúsundir skólaritgerða um all- an heim hvert einasta ár og þar af leiðandi áhugi á þeim. Og þar sem þau gefa ekki kost á viðtölum hefur eftirspurnin haldið áfram að vaxa og ljóst að viðtal við annað hvort þeirra vekur heimsathygli. Það er ætlast til þess að fólk taki þátt í heimi nútímafjölmiðla og krafan um þátt- töku verður stundum miskunnarlaus. Stund- um minnir áhuginn á „einförunum“ á valda- baráttu. Með því að draga sig í hlé hafa einfararnir náð völdunum frá fjölmiðlunum og skemmtanaiðnaðinum og fyrir þessa aðila virðist tilhugsunin um frægt fólk sem vill ekki vera „celebrity“ greinilega nánast óþol- andi. Frá því sjónarhorni er eðlilegt að búa til orðið „einfari“ yfir venjulegt fólk sem vill fá að vera venjulegt fólk áfram. Sænsku stórstjörnurnar Greta Garbo og Agnetha Fältskog (úr ABBA) eru dæmi um hlédrægar stjörnur. Hvorug þeirra ólst upp við mikla fjölmiðlaathygli og Garbo gafst mjög snemma upp á henni, mörgum árum áður en hún dró sig í hlé frá kvikmynd- unum. Ástæður þess að hún hætti virðast í fljótu bragði skynsamlegar, sjálf gaf hún það út að kvikmyndirnar væru að breytast og ekki í þá átt sem hentaði henni. Samt íhugaði Garbo nokkrum sinnum að byrja aftur að leika og hún fór út meðal manna alla tíð. Það sem var óeðlilegt við hana var 1) að hún neitaði að ræða við fjölmiðla, 2) hún sást utandyra í fötum sem voru ósköp venjuleg fyrir konur á hennar aldri en eru ekki í sama stíl og aldraðar Hollywoodleik- konur af hennar kynslóð kusu að klæðast, og 3) öfugt við allar hinar stjörnurnar stóð Garbo við það sem hún hafði sagt og var hætt þegar hún sagði það. Slík prinsippfesta verkar hrokafull á marga. Hvernig getur manneskja leyft sér að ákveða sjálf hvort hún kemur fram eða ekki? Eða verið svo hrokafull að standa við eigin orð og þykjast þar með betri en aðrir? Þess vegna spretta auðvitað margir upp og finna aðrar orsakir. Að leita uppi skuggahliðar einfaranna er góð aukabúgrein í skemmtanaiðnaðinum. Agnetha úr ABBA er ekki meiri einfari en svo að hún hefur haldið áfram að vinna og veitir öðru hvoru viðtöl. Eina ástæðan fyrir að hún telst til „einfara“ er að hún hefur neitað að halda lífi í ABBA. Í nútímanum eru Rolling Stones viðmiðið, vinsælar hljóm- sveitir eiga helst að lifa í hálfa öld en ekki nokkur ár. Þess vegna þykir mjög undarlegt að ABBA sé alveg hætt og muni aldrei koma saman aftur. Það er eins og fólki finn- ist eðlilegra að frysta nútíðina að eilífu en að leyfa ævintýrunum að ljúka. Einfarar og markaðslögmálin Það sem kannski þykir skrýtnast við ákvörðun Agnethu um að ABBA tilheyri for- tíðinni er að hún gengur þvert á lögmál markaðarins. Augljóslega mætti ennþá græða mikið á ABBA og þó að Agnetha sé vellauðug þykir það sýna mikla öfughneigð að snúa baki við enn meiri gróðamögu- leikum. Hvernig getur manneskja verið heil- brigð sem ekki vill halda lífinu í áttunda áratugnum svo lengi sem upp úr því er fjár- muni að hafa? „Einfarar“ nútímans eru einmitt gjarnan fólk sem hefur að einhverju leyti snúið baki við markaðsmöguleikum og gróðavon. Einn af þekktustu bandarísku einförum samtím- ans er Bill Watterson, teiknari myndasög- unnar um Kalla og Kobba (Calvin & Hobb- es). Hann teiknaði þá félaga í tíu ár en hætti í árslok 1995. Sú staðreynd að hann hætti og hefur ekki selt þá félaga í alls kon- ar varning eða leyft kvikmyndaútgáfu Kalla og Kobba nægir til að hann teljist „einfari“, ásamt því að hann kærir sig ekki um aðdá- endabréf. Hins vegar skrifar hann greinar og sést jafn oft utandyra og hver annar í litla bænum þar sem hann býr. Þessi mismunur á framboðinu og eftir- spurninni þykir greinilega öfugsnúinn í heimi þar sem markaðslögmálin ríkja ein. Hvernig er hægt að hætta með það sem er vinsælt? En það er einmitt það sem „einfar- arnir“ hafa gert og það er varla hægt að segja það sé neitt dularfullt við J.D. Sal- inger, Harper Lee eða Bill Watterson annað en það að þau neita fjölmiðlum um viðtöl og jafnvel þó að umtalsverðir fjármunir séu í boði. Til að vera „einfari“ er nóg að snúa baki við gróða, mæta sjaldan í viðtöl og kæra sig ekki um að lesa upp úr bókum sínum. Þann- ig einfari er Salinger og þess vegna er hann stundum talinn upp ásamt fólki sem átti raunverulega við geðræn vandamál að stríða, eins og auðjöfrinum Howard Hughes. Hvort snýr öfugt? Til eru líka „einfarar“ sem hefur tekist að sveipa líf sitt nokkurri dulúð og ekki aðeins með því að sýna dularfullt áhugaleysi á að tala við blaðamenn. Þar á meðal eru Thomas Pynchon rithöfundur og kvikmyndagerð- armaðurinn Terence Malick sem eiga það sameiginlegt að fáar ljósmyndir eru til af þeim og auk heldur hefur reynst erfitt að grafa upp staðreyndir um ævi þeirra. En fæst bendir til þess að þeir séu einfarar að öðru leyti en því að forðast fjölmiðla og öf- ugt við aðra einfara hafa þeir forðast fjöl- miðla strax frá upphafi. Malick er þó fyrst og fremst óvenjulegur að því leyti að á ferli hans hafa verið löng hlé og vegna þess að hann tekur engan þátt í að kynna myndir sínar og fæst ekki til að veita viðtöl. Pynchon er líklega ein mesta ráðgátan af „einförunum“. Lengi vel var svo lítið um hann vitað og ekki bætir úr skák að bækur hans eru ekki beinlínis einfaldar í lestri. Lengi vel var svo orðrómur á kreiki að Pynchon væri ekki til í alvörunni og annar höfundur fælist á bak við nafnið. Ein kenn- ingin var sú að J.D. Salinger og Pynchon væru sami maður. En nú hefur Pynchon bú- ið í New York í mörg ár. Þar á hann konu og son á táningsaldri og lifir nokkuð hvers- dagslegu lífi. Bækur hans eru ekki margar en hafa komið út með reglulegu millibili og hann hefur skrifað í blöð þegar honum hefur þótt mikið liggja við, m.a. til stuðnings Salman Rushdie á sínum tíma. Hann hefur meira að segja talað fyrir sjálfan sig í The Simpsons. Kvikmyndatökuliði tókst að mynda Pynchon í Manhattan gegn vilja hans. Þegar hann reyndi að mótmæla því var hann spurður um sérvisku sína og þá sagði hann: Einfari er tilbúið hugtak um fólk sem vill ekki tala við blaðamenn. Fátt bendir til þess að Thomas Pynchon eigi við nein vandamál að stríða heldur sé það aðeins vilji hans að verk hans tali fyrir hann. Í fjölmiðlaheimi nútímans hefur hann þurft að ganga ansi langt til að standa fast við þetta prinsipp, m.a. þurft að halda heim- ilisfangi sínu leyndu. Kannski þykir honum dulúðin ekki leiðinleg og það má kallast öf- ugsnúið í nútímanum þegar allir eru á út- opnu. En hin raunverulega spurning er auðvitað hvort þessir „einfarar“ séu ekki fullkomlega heilbrigðir en fjölmiðlaheimur nútímans hins vegar galinn og ekki síst sú krafa hans að allir sem öðlast hafa frægð fyrir vinnu sína séu stöðugt í kastljósinu. Kannski eru ekki til neinir „einfarar“, heldur aðeins goðsögn um þá, búin til af fjölmiðlaheimi sem neitar að trúa því að heilbrigt fólk vilji ekkert með hann hafa. Goðsögnin um einfarann Hvernig skal frægt fólk hegða sér? Það eru skýrar reglur til um það. Ein er sú að það á að sækjast eftir athygli og því ber að gjalda fjölmiðlunum það sem þeirra er. Frægðin á að kosta og fátt ber vott um meiri ósvífni en ef manneskja sem verður fræg vill halda áfram að vera venjuleg. Brot gegn þessu boð- orði hefur leitt til þess að til er orðin mann- gerð sem nýtur mikillar athygli fyrir að vilja enga athygli: Einfarinn. Höfundur er bókmenntafræðingur. Eftir Ármann Jakobsson armannja@hotmail.com Hlédrægir öfuguggar í síbyljunni Einfarar J.D. Salinger, Greta Garbo, Thomas Pynchon og Agneta Fältskog. ’Þetta vekur auðvitaðupp spurninguna um hvort verði að teljast sjúklegt og óeðlilegt, maður sem hefur hlotið frægð og kýs að lifa nokkurn veginn venju- legu lífi eða fjölmiðla- heimur okkar tíma sem þolir illa tilhugsunina um að hafa takmark- aðan aðgang að frægum manneskjum.‘ Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. apríl 2006 | 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.