Lesbók Morgunblaðsins - 29.04.2006, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 29.04.2006, Page 5
venjulegt fólk skildi ekki þessa svokölluðu nú- tímatónlist hans. Atli spurði hann þá hvort hann hefði einhvern tíma komið á tónleika með músíkinni hans en það hafði Gísli Mar- teinn ekki gert. Segja má að þarna sé í hnotskurn ástæðan fyrir því af hverju klassíkin komist ekki ná- lægt poppinu í vinsældum. Klassík, ekki síst nútímaklassík – ef ég má nota það orð – þarf athygli. Klassíkin er eins og skáldsaga; maður verður að nenna að einbeita sér að henni, ekki afgreiða hana fyrirfram sem óskiljanlega. Í skáldsögunni á sér stað framvinda, söguþráð- ur þar sem allt mögulegt kemur fyrir. Sama á við um klassíkina. Upptökuiðnaðurinn hefur hinsvegar gert að verkum að músíkin þarf ekki þessa einbeit- ingu lengur. Við slökkvum á sinfóníu eftir Beethoven þegar við drepum á bílnum. Ekki er lengur nauðsynlegt að kaupa nótnabækur eða fara á tónleika til að njóta tónlistar. Ipod- væðingin og síbyljan í útvarpinu hefur valdið því að við lifum í einskonar tónlistarlegum móðurkviði. Tónlist er orðin hluti af hversdeg- inum og þarfnast ekki lengur sérstakrar at- hygli eða aðstæðna eins og að fara á tónleika. Klassísk síbylja Fyrir nokkrum árum var hér rekin klassísk útvarpstöð þar sem músíkin var meðhöndluð eins og hver önnur síbylja. Aðallega stutt verk, þægileg áheyrnar, voru spiluð og ekkert samhengi var á milli þeirra. Og þegar klassík er leikin í hótellobbíum og lyftum er lögð áhersla á það allra vinsælasta sem gerir engar kröfur til hlustandans. Píanóleikarinn frægi, Liberace, var á svipuðum nótum og fræg er útgáfa hans á fyrsta píanókonsert Tchaikovsk- ys. Konsertinn tekur um 40 mínútur í flutn- ingi, en Liberace stytti hann niður í fimm mín- útur, „með því að sleppa þessu leiðinlega“. Svona umbúðir klassískrar tónlistar hafa í för með sér að fólk gerir ósjálfrátt kröfur um að hún sé eins og poppið. Hún á að skapa stemningu fyrir vinnuna eða félagslífið, til að slaka á heima, til að taka til, o.s.frv. Að það sé eitthvað annað og meira undir yfirborði sætra laglína og notalegra hljóma, er sumu fólki beinlínis framandi. Klámfenginn Bach Af þessum ástæðum er klassíkin í rauninni það sama og popp í hugum margra. Og þar sem poppmyndböndin snúast að mestu um bert hold og dillandi rassa, er stutt í klámvæð- ingu klassískrar tónlistar. Það hefur þegar gerst. Nefna mætti um- deilda uppfærslu á óperunni Brottnámið úr kvennabúrinu eftir Mozart fyrir nokkrum ár- um þar sem súludansarar komu mjög við sögu. Sellóleikarinn heimsfrægi, Janos Starker, hneykslaðist á þessu nýlega í tímaritinu The Strad, en tilefni greinar hans var þó ekki óper- an eftir Mozart, heldur að fiðluleikarinn Lara St. John birtist nakin framan á kápu geisla- disks með tónlist eftir sjálfan fimmta guð- spjallamanninn, Bach. Starker segir að honum þyki það miður þegar hið sjónræna er farið að draga athyglina frá því sem skiptir höfuðmáli, músíkinni sjálfri; að yfirborðið sé orðið að að- alatriðinu.En miðað við þá áherslu á hið sjón- ræna sem einkennir menningu okkar, kemur þetta samt ekki á óvart. Græna herbergið Talandi um hið sjónræna þá er kvikmynda- tónlist oft eina klassíkin sem fólk þekkir. En kvikmyndatónlist samanstendur gjarnan bara af klisjum úr klassískri tónlist. Þannig tónlist er aðeins yfirborðið eitt, sjaldnast nokkuð annað. Af þessum ástæðum getur heilt tón- verk án myndefnis virkað óskiljanlegt þeim sem ekki þekkja klassíkina af einhverju ráði. Jafnvel eins og ljóð á framandi tungu. Klassísk tónlist er einmitt sérstakt tungu- mál. Og þar sem ekki er sjálfgefið að fólk skilji það tek ég ofan fyrir Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara, er reyndi að veita almenningi innsýn í það með þáttaröðinni Græna herberg- inu. Ég tek líka ofan fyrir Árna Heimi Ingólfs- syni tónlistarfræðingi, en texti hans í tónleika- skrám Sinfóníuhljómsveitar Íslands er yfirleitt til fyrirmyndar. Þeir sem lítið þekkja klassíska tónlist en fara engu að síður á Sin- fóníutónleika, þurfa slíkar útskýringar. Uppgjöf fyrir poppinu? Ég nefndi í upphafi nýjar íslenskar tónsmíðar sem ég hef fjallað um undanfarið. Fábrotið tónmálið gerir að verkum að maður spyr sig hvort sum tónskáld hafi, a.m.k. tímabundið, gefist upp fyrir þeirri poppsíbylju sem nú gegnsýrir umhverfi okkar. Það var ekkert í þessari nýju tónlist sem maður hafði ekki heyrt áður. Hún var svo laus við alla fram- vindu að það var eins og að hlusta á kvik- myndatónlist sem þó vantaði aðalatriðið, kvik- myndina. Eitt verkið líktist helst tónlist úr fimmtíu ára gömlum Hollywoodmyndum, líkt og módernisminn hefði aldrei átt sér stað í tónlistarsögunni. Að semja þannig tónlist er að neita að viðurkenna að við lifum núna á 21. öldinni. Höfnun á sögunni Hér mótmælir kannski einhver og heldur því fram að tónsmíðaaðferðin skipti engu máli, að- alatriðið sé hvað tónskáldið hafi að segja. En það er ekki rétt; í tónlist skiptir höfuðmáli hvernig hlutirnir eru sagðir. Ný tónlist bygg- ist oftar en ekki á ómstríðum hljómum. Hún einkennist jafnvel af merkingarleysi. Er það ekki einmitt endurspeglun firringar og ring- ulreiðar nútímans? Að hafna módernismanum er að hafna sög- unni. Það er eins og að vilja bara hverfa aftur til fortíðarinnar, klæðast í hundrað ára gömul föt. Sá sem semur tónlist í stíl gömlu meist- aranna er að flýja veruleikann. Slík tónlist er yfirborðið eitt, klám, ekki ást. Tímalaus tónlist En nú spyr hugsanlega einhver: Ef ekki á að hafna módernismanum, afhverju þá að hlusta á gamla músík? Kemur hún okkur eitthvað við? Svar mitt er já, hún gerir það. Gömul klass- ík virkar kannski úrelt við fyrstu sýn, en leitin að sjálfskilningi, hvað felst í mannlegri tilveru og hvernig hægt er að umbreyta henni í eitt- hvað meira, skiptir okkur ekkert síður máli núna. Svo ég leyfi mér að nota klisju þá er tón- list gömlu meistaranna tímalaus. Og fæðing tónlistar þeirra var ekki alltaf sjálfsögð. Hún þurfti að berjast fyrir til- verurétti sínum, vegna þess að oftar en ekki var hún á móti ríkjandi gildum. Hún byggðist á spennu á milli þess sem þótti við hæfi og þess sem þótti ekki. Hún var brautryðjenda- tónlist sem ekki hafði heyrst áður. Tónlist Beethovens var af sumum talin óskiljanleg. En eins og áður sagði þá skipti tískan hann engu máli. Að semja músík á gömlu tónmáli er ekki það sama. Spennan á milli hins forna og nýja er ekki fyrir hendi. Það er hægt að læra klisj- urnar, en þær hafa ekki sama gildið í því um- hverfi sem við lifum núna. Nei, aðalatriðið er hvernig hlutirnir eru sagðir. Pastoralsinfónía Beethovens, svo dæmi sé tekið, segir frá ákveðinni náttúruupplifun, og frá manninum sem verður fyrir henni. Debussy skrifaði líka músík sem var innblásin af náttúrunni. En hann sagði frá reynslu sinni á annan hátt. Dulúð einkennir tónlist hans sem er allt öðruvísi en í músík Beethovens. Beethoven notaði annað tónmál og upplifun áheyrandans verður ólík fyrir vikið. Felur í sér frelsun Að mínu mati tekur raunveruleg tónlist, eins og ég skilgreini hana, glundroða nútíma- tilvistar í formi ómstríðra hljóma og óreglu- legrar hrynjandi og umbreytir honum. Hún felur í sér frelsun. Tónlist sem hafnar þessum glundroða og hefur það eitt að markmiði að skapa notalega stemningu er fölsk, flótti frá veruleikanum, klámfengin yfirborðsmennska. Þrátt fyrir að byggjast á gömlum merg, þá hefur klassísk tónlist því gríðarlega þýðingu fyrir líf nútímamannsins. Hin útópíska hugsun sem einkennir hana kemur okkur öllum við. Verksmiðjupoppið er hinsvegar aðalsmerki okkar tíma, vegna hinnar tæknilegu umgjörð- ar sem það er klætt í. Þrátt fyrir það grund- vallast megnið af því á klisjum og endurtekn- ingum. Og ef eitthvað er frumstætt og því gamaldags, þá er það einmitt heilalausar end- urtekningar, sem breitt er yfir með klámi. Stærsta írónían er samt sú að hinni svoköll- uðu nútímatónlist, sem þróaðist beint úr klass- íkinni, er hafnað af þorra almennings sem óskiljanlegri, einmitt vegna þess að hún bygg- ist á eðlilegri þróun á eldra tónmáli. Nú hafði ég ekki hugsað mér að gera lítið úr tónskáldunum okkar af yngri kynslóðinni. Margt eftir þau er sérlega fallegt og vel heppnað; það sem ég gagnrýni er fyrst og fremst yfirborðsmennskan í sumum nýjum verkum. Ég vona bara að ungu tónskáldin okkar gefist ekki upp fyrir kláminu og því sem það stendur fyrir.  Þessi grein er aðallega byggð á bókinni Who Needs Class- ical Music? eftir Julian Johnson, auk upplifunar minnar á nokkrum tónleikum sem ég hef farið á undanfarið. Greinin eftir Janos Starker heitir No Sex Please – We are Classical. tónlistar Höfundur er tónlistargagnrýnandi á Morgunblaðinu. Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. apríl 2006 | 5 Stundum vek ég hana um niðdimma nóttu þegar stjörnurnar hafa verið máðar út og tunglið sést varla og leiði niður stíginn fram á bryggju. Við syndum út að flekanum og finnum hann við snertingu, fimmtíu eða sextíu sundtök frá landi. Álút sitjum við og hlustum. Hreyfingin í vatninu allt um kring, bindur okkur saman í tvöfaldan hnút barns og föður. Eyrun nema sérhvert hljóð nærri leðurblökum sem blindar sjá, en myrkur nærir þeirra mikla hungur. Nágrannarnir sjá hana gjarnan í skóginum. Á hnjánum strýkur hún mosa þar sem hann vex í skugganum. Hún undrast tungur fuglanna, litaða blómhlíf hornviðarins, rákina er markar kantinn á steini sem hefur verið velt. Í morgun þegar hún vaknaði sá hún fyrsta leiftur magnolíutrjánna. Hún geymir blómknappana þegar þeir falla, purpuralit blöð sem skreppa saman og upplitast á grasflötinni. Við ætluðum alltaf að segja henni frá regnboganum, hvernig hann verður til og hvernig hann leysist upp í skugga, hvernig við yrðum hjá henni engu að síður. Við ætluðum að segja henni það áður en þeir komu um kvöldmatarleytið og girtu af allt sýnilegt. Hún spyr hvort við sjáum þá góma stjörnurnar, eldhúslampann andlit okkar, og við segjum já. Handa barni sem er að missa sjónina Dan Masterson er fæddur 1934. Hann er höfundur ljóðabókanna On Earth As It Is (1978), Those Who Trespass (1985), World without End (1991) og safnritsins All Things, Seen and Unseen (1997). Ljóð Mastersons hafa birst í mörgum af virtustu bókmenntatímaritum Bandaríkjanna og jafn ólík skáld og Anne Sexton, James Wright og James Dickey hafa lofað ljóðlist hans. Ljóðið „Handa barni sem er að missa sjónina“ er að finna í fyrstu bók Mastersons. Guðni Elísson þýddi. Eftir Dan Masterson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.