Lesbók Morgunblaðsins - 29.04.2006, Qupperneq 9
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. apríl 2006 | 9
geyma ótrúlegt magn upplýsinga um veður og loftslag þá geymir
vatn heimsins ómældar leifar af minningum þeirra lífvera sem
vatnið hefur runnið í gegnum á hringrás sinni. Þar sem hér er
ekki ætlunin að sanna eða afsanna vísindalegar kenningar held-
ur að ímynda sér hvaðan myndirnar í ísnum hans RAXA koma
þá helgar tilgangurinn meðalið.
Ísinn í Jökulsárlóni er talinn vera á bilinu 600–800 ára gamall.
Samkvæmt Oddi Sigurðssyni jarðfræðingi eru kristallarnir í
þessum gamla ís jafnvel hnefastórir. Aðspurður um hvað jökull-
inn geymir segir Oddur: ,,Jöklar vita svo margt.“ Orðalagið er
skáldlegt og hlaðið virðingu fyrir þessum öldungum en þetta er
líka satt, ísinn geymir ókjör upplýsinga um fortíðina sem engan
hefði grunað að nokkru sinni yrði hægt að kalla fram. Þeir sem
fóru inn í ísveggina eftir Gjálparhlaupið árið 1997 gátu horft
marga metra inn í glæran ísvegginn á vissum stöðum. Ísinn var
svo tær að svartar æðar eða mynstur í klakanum héngu eins og
vefir eða dulur í lausu lofti. Þegar ísinn brotnar frá jöklinum þá
draga óhreinindin í sig sólargeislana og bræða holrúm í ísinn.
Þegar hólfin tæmast verður til sérkennilegt gárað yfirborð og
þrívíð mynstur og ef viljinn er fyrir hendi má sjá augu og andlit
sem hafa legið frosin í 800 ár.
Þegar vatnið féll á Vatnajökul fyrir 800 árum fór Guðmundur
góði um landið og blessaði vatnið. Segja má að hugmyndir Emo-
tos um áhrif hugsunar og orða á vatnið séu ekki svo nýjar af nál-
inni. Á 13. öld virðast þetta hafa verið sannindi byggð á aldalangri
reynslu: ,,Nú ferr Guðmundr prestr vestr í fjörðu. Ok er hann var
í Sauðlauksdal, þá vígði hann vatn þat, er kona bar heim í húfu
sinni.“ Guðmundur góði blessaði vatn þar sem sjúkdómar geisuðu
eða skepnudauði var mikill og þóttust menn einatt sjá miklar
breytingar til hins betra í kjölfarið. Reykvíkingar búa enn að
þessu með sína Gvendarbrunna og eflaust myndi ekki saka að
skrifa nokkur falleg orð eða texta á vatnsæðarnar sem liggja
gegnum borgina.
,,Jöklar vita svo margt,“ segir Oddur Sigurðsson og ef það sem
Emoto segir er rétt, að orð, texti og hugsanir hafi áhrif á vatnið
og minningar varðveitist og geymist má segja að það sé sjálf
Sturlungaöldin sem kelfir fram í Jökulsárlónið um þessar mund-
ir. Það spillir ekki upplifuninni af því að fylgjast með jökunum
ryðjast fram og brotna. Orð, textar og hugsanir sem voru á
sveimi á 13. öld og lágu frosin í 800 ár losna nú úr viðjum sínum.
Hvort hugmyndirnar fara aftur á kreik er erfitt að segja. Þarna
brotnar ís og bráðnar frá tímum þegar stórhöfðingjar risu til
valda og ríkir menn og kaldráðir lögðu undir sig heilu landshlut-
ana, útrás og þrá eftir frægð, frama og viðurkenningu endaði
með innrás. Það liggur eitthvað í loftinu og jakarnir bráðna sem
aldrei fyrr.
Heimildir: Sturlunga Saga – fyrsta bindi Guðni Jónsson bjó til prentunar. Íslend-
ingasagnaútgáfan. Reykjavík MCMLIII. bls. 233.
The Hidden Messages in Water. Masaru Emoto. Beyond words publishing 2004._
Morgunblaðið/RAX
Höfundur er rithöfundur.