Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.04.2006, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 29.04.2006, Qupperneq 10
10 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. apríl 2006 É g sit í flugvél á leiðinni frá Saigon (Ho Chi Minh borg) í Víetnam. Ég er hundfúl, af ýmsum ástæðum. Í fyrsta lagi vil ég ekki fara heim og í öðru lagi er ég að lesa leið- inlega bók. Hún heitir Ingenious Pain (1997) og er eftir Andrew Miller. Sagan gerist á átjándu öld og segir frá manni sem ekki getur fundið fyrir sársauka, né ber hann skynbragð á tilfinningar. Nema svo ferðast hann til Rúss- lands útaf einhverri keppni og hittir þar konu og alltíeinu hvolfast yfir hann bæði tilfinn- ingar og sársauki. Bókin fékk afskaplega góða dóma og mig hafði lengi langað að lesa hana, en fann ekki til þess næði fyrr en þarna í flugvél- inni, eftir að hafa dröslað henni með mér gegnum Suðaustur-Asíu. Kannski er ég ósanngjörn útí þessa frumsmíð Millers og kannski stafar skapvonska mín aðallega af því að ég get ekki sofið, öfugt við vinkonu mína og ferðafélaga sem sefur vært utan að hún vakn- ar á tveggja tíma fresti til að borða. Ég, upp- tjúnuð eftir upplifanir ferðarinnar, sit uppi með þessa bölvuðu lesningu sem veldur mér beinlínis sársaukafullum leiðindum. Bókinni gleymdi ég svo um leið og ég stakk henni í sætisvasann fyrir framan mig, og þessi eilífðarflugferð var mér líka að mestu leyti horfin úr minni þar til ég las skáldsögu Guð- rúnar Evu Mínervudóttur, Yosoy: Af líkams- listum og hugarvíli í hryllingsleikhúsinu við Álafoss. Því þar hitti ég Jóa, strák sem ekki finnur fyrir sársauka. Allt í einu sé ég flug- vélasætið mitt, hálfrökkrið í vélinni, vatns- austur flugfreyjanna og róandi svefn vinkonu minnar í alveg nýju ljósi. Og velti fyrir mér hvað hafi orðið af bókinni sem ég skildi eftir í sætisvasanum með leiðbeiningabæklingnum um flugslys. Sársauki Yosoy er fjórða skáldsaga Guðrúnar Evu Mín- ervudóttur og var að mínu mati bókmennta- tíðindi síðasta árs. Sagan segir frá hryllings- leikhúsinu Yosoy og persónum og leikendum þar, en í hryllingsleikhúsinu eru iðkaðar lík- amslistir ýmsar, allt frá hrollvekjandi hnífa- kasti til klámfenginna leikja með golfkúlur. Þarna er verið að fjalla um líkama og huga, hina klassísku tvíhyggju líkama og anda sem Guðrún Eva vinnur markvisst og fimlega með í þessu breiða verki. Rammi sögunnar er dul- arfullur leikur alþjóðlegra auðmanna, en hann virðist felast í því að koma venjulegu fólki í óvenjulegar aðstæður og sjá hvernig það bregst við. Því dramatískari sem atburðirnir eru, því betra. Þetta bætir enn einu laginu við söguna, því leiksoppurinn, Ólafur Benedikts- son, miðaldra fráskilinn læknir sem sérhæfir sig í sársauka, verður einskonar fulltrúi les- andans, jafnframt því að leika lykilhlutverk sem áhrifavaldur og greinandi sögunnar, því í vangaveltum hans um sársauka birtast hug- leiðingar um tengsl líkama og hugar. Fyrir ut- an kynni hans af starfsfólki hryllingsleikhúss- ins kemst hann í kynni við stúlkubarnið Elínu sem þjáist stöðugt af óskiljanlegum sársauka, og unglingspiltinn Jóa sem getur ekki fundið fyrir sársauka. Í upphafi sögunnar líkir Ólafur sársauka við óperu: „Persónur og leikendur, eða dramatis personae, eru taugaendarnir, frumurnar í skemmdu vefjunum og innihald þeirra og ósjálfráða taugakerfið“ (9). Þetta er auðvitað borðleggjandi að skoða í ljósi skáldsögunnar sjálfrar, sem er einskonar ópera með sínum persónum, leikendum (en Ólafur er tekinn í misgripum fyrir annan mann og þykist eftir það vera hann), frumum, vefjum og innhaldi þeirra, sem líkja má við orð og söguþráð verksins, og loks ósjálfráða taugakerfið sem gæti staðið fyrir hinar margvíslegu túlkanir og upplifanir lesenda af verkinu. Ólafur er hér að halda fyrirlestur um sársauka og segir að vandamálið liggi í viðhorfum okkar til líkama annars vegar og hugans hinsvegar: „að mann- eskjan samanstandi af vélrænum og viðráð- anlegum líkama annars vegar og óþægum, viljasterkum huga hins vegar“ (10). Hér er einnig verið að deila á vísindin og þörf þeirra til að skilgreina, en í slíkum skilgreiningum felst ekki aðeins þekkingarleit heldur einnig þörf fyrir stýringu og stjórnun. Ólafur er mjög meðvitaður um takmörk vísindanna en reynir samt hvað hann getur að skilja þessi tvö ólíku tilfelli sem skolar upp í hendurnar á honum: „Ólafur sá sársauka allsstaðar og fann til endalausrar óánægju yfir því að skilja ekki betur sársaukann eins og hann birtist í hug- anum. Hann sér fyrir sér að breytt viðhorf til sambands líkama og hugar sé lykillinn: „Í framtíðinni myndi fólk ekki þurfa að tala um hugann og líkamann eins og þeir væru draug- ur og hundurinn hans, en nútíminn bauð ekki uppá annað en hugtökin eins og þau komu fyr- ir í tungumálinu. Sársaukinn í heilanum var skiljanlegur en sársaukinn í huganum var það ekki. Vitundin um sársaukann var óskilj- anleg“ (27). Hér er Ólafur á slóðum fjölda fræðimanna sem hafa gagnrýnt þessa tví- skiptingu efnis og anda og telja hana óholla bæði einstaklingum og samfélagi. Það eru sér- staklega femínistar sem hafa verið áberandi í þessari umræðu, en aðskilnaður líkama og hugar er iðulega látinn endurspegla það sem talinn er eðlislægur kynjamunur kvenna og karla. Hryllingsleikhús Eins og fram kemur í hugleiðingu Ólafs er þetta að hluta til spurning um sjálft tungu- málið, orðræðuna, sem er föst í þessari tví- hyggjuhugsun. Þegar orðin duga ekki til þarf að búa til óperu, eins og Ólafur gerir til að skýra leikmönnum sín fræði, og eins og Guð- rún Eva gerir til að velta upp sem flestum flötum á þessu vandamáli líkama og hugar, efnis og anda. Hryllingsleikhúsið sjálft, Yosoy, er auðvitað miðpunktur slíkrar grein- ingar, en þar birtast okkur ýmis átök við lík- amann. Yfirleitt eru þau kynferðisleg á ein- hvern hátt, eitt atriðið gengur útá að maður stingur höfðinu á kaf í endaþarm annars, ann- að byggist á gægjuþörf og felst í því að ungt par leikur kynlífsleiki á sviðinu, og í því þriðja, sem Ólafur sjálfur verður aðstoðarmaður í, skýtur ung kona golfkúlum út um hin ýmsu op líkamans, hlutverk Ólafs er að grípa kúlurnar í háf. Ein kona er haldin „þráhyggju í sam- bandi við umbreytingu líkamans“ (112) og hef- ur látið fylla líkama sinn silíkoni, brjóst, rass, varir og kinnbein, svo að hún kemst ekki ferða sinna án aðstoðar. Dularfyllsta atriðið og það sem virðist laust við klám er atriði Sifjar Steinþórsdóttur, en því atriði er aldrei lýst ná- kvæmlega (frekar en öðrum atriðum, það eru bara atriði Jóa sem er lýst nákvæmlega), að öðru leyti en því að það sé einstakt og ótrú- legt. Hér fetar höfundur mjóan stíg en tekst að gefa nægilega mikið í skyn til að lesanda finnist hann ekki svikinn um neitt. Í hryllings- leikhúsinu er því áherslan lögð á líkamann og þann hluta sögunnar sem snýr að honum. Guðrún Eva kallast hér á við hið fræga franska hrollvekjuleikhús, Grand Guignol, sem gerði útá að bjóða áhorfendum uppá ým- iskonar blóðugar sjónhverfingar. Þó slík hroll- vekja höfði til líkamlegra hvata er þó hug- urinn aldrei langt undan, því hér er kallað á vangaveltur um tengsl skemmtunar og hryll- ings, sem löngum hefur tengst hugmyndum um einskonar skírslu andans. Ekki svo að skilja að hrollvekjan fjalli eingöngu um líkam- ann, en samspil, tengsl og togstreita efnis og anda hafa löngum verið viðfangsefni hroll- vekjunnar. Og Yosoy kallast á við fleiri hroll- vekjur en Grand Guignol leikhúsið, því önnur bók kom fljótlega upp í hugann við lesturinn, skáldsaga sjálfs hrollvekjumeistarans Steph- en King, The Dark Half (1989), eða Myrki helmingurinn. Þar segir frá rithöfundi sem hefur um árabil skrifað skáldsögur undir dul- nefni. Þegar hann ákveður að losa sig við sitt alter ego lifnar það við og hefur ofsóknir á hendur honum. Í ljós kemur að maðurinn er tvíburabróðir hans, sem þó aldrei fæddist, því í móðurkviði runnu líkamar þeirra saman og því var rithöfundurinn alltaf frá upphafi tveir menn, því hann bar í líkama sínum leifar hins. Og Elín á við samskonar vanda að stríða. Undir lok sögunnar kemur í ljós að í líkama hennar er æxli sem er leifar af tvíburasystur hennar, tvíburasystur sem hún sér og sem veldur henni miklum vandræðum, óhamingju og hreinlega sársauka. Ólafur stendur ráða- laus frammi fyrir kvölum barnsins og er enn ringlaðari þegar hann kemst að því hvert vandamálið var. „Þetta er eins og drauga- saga“ (363) segir hann og veltir fyrir sér möguleikanum á líkamsvitund. Hér skella saman tvö ólík viðhorf til líkama og hugar, annarsvegar hugmyndin um hinn algera sam- runa, þarsem líkaminn er hluti af huganum, óaðskiljanlegur frá honum; líkaminn skynjar og býr yfir sinni eigin vitund og upplifunum. Hinsvegar erum við minnt á styrk andans, sálarinnar hreinlega, því sál, sjálf eða hugur, tvíburasysturinnar kvelst í líkama Elínar og veldur Elínu kvölum. Í bókinni er það alveg ljóst að tvíburasystirin er til og að Elín sér hana valda usla án þess að geta nokkuð að- hafst. Hún er því draugur, vitund án líkama – utan þeirra líkamsleifa sem búa í líkama Elínar. Lífræn vél Elín er því einskonar millistig í þessari óperu um líkama og huga, hún stendur fyrir mátt líkamans sem lifandi skynveru en líka mátt hugans til að hafa áhrif á líkamann. Jói er þá birtingarmynd hugmyndarinnar um anda ofar efni: „Jói trúði ekki á óljós orðatiltæki eins og vanhelgun líkamans eða að líkaminn væri musteri sálarinnar. Líkaminn var meira eins og burðardýr heilans. Lífræn vél sem aflaði fæðu og fjölgaði sér til að hið svokallaða innra líf, sem átti sér aðsetur í heilanum, gæti hald- ið áfram“ (288). Jói er að mörgu leyti dæmi- gerður unglingsstrákur, uppfullur af sjálfum sér og ákveðinn í að verða helsta stjarna hryllingsleikhússins. Hann dreymir um bjarta framtíð sem afreksmaður á sviði líkamslista og gengur lengra og lengra í því að misbjóða líkama sínum. Fyrst lætur hann græða í sig stálhólf fyrir hnífa hnífakastara Yosoy. Hnífa- kastarinn Gunnar er sá sem ‘uppgötvar’ Jóa, þegar hann sér hann gera sér að leik að brenna húð sína. Samband þeirra verður mjög náið og það er ljóst að Jói lítur á Gunnar sem föðurímynd, en í upphafi sögunnar kemur í ljós að foreldrar Jóa eru skilin, Jói hafði alist upp hjá móður sinni sem nú er flutt til Flórída með nýjum manni en Jói kýs að verða eftir á Íslandi hjá föður sínum. Samband þeirra feðga er greinilega ekki náið og Gunnar því hentugur staðgengill. En eitthvað sárnar Jóa við Gunnar og snýr frá honum og reynir að finna upp eigin atriði í staðinn. Það felst í því að vekja sér sár á brjósti svo að sjáist í hjart- að. Þetta er þó ekki nóg því Jói vill ganga enn lengra og ákveður næst að opna gat í höfuð- kúpuna til að sýna heilann í sér. Með því vill hann undirstrika tilvist heilans sem hann álít- ur hinn endanlega leyndardóm líkamans: „Hann var svo flókinn að engum hafði tekist að finna almennilega út úr því hvernig hann virkaði og hann geymdi allt sem var í heim- inum og allt sem var ekki í heiminum, per- sónuleikann, hugsanir, sársaukann og meira að segja Guð“ (288). Þrátt fyrir að Jói beri þessa virðingu fyrir leyndardómum heilans, lítur hann svo á að heilinn sé bara líffæri og hafnar hugmyndum Ólafs sem reynir að út- skýra fyrir Jóa að málið sé ekki endilega að- skilnaður líkama og hugar: „Ég er ekki að tala um líffærið,“ segir Ólafur, „við hugsum ekki með heilanum, við hugsum í heiminum“ (290). En Jói skilur ekki varnaðarorð Ólafs, ekki fyrr en á örlagastundu, þegar hann stendur á sviðinu, búinn að stinga allan líkama sinn prjónum. Þá rennur upp fyrir honum merking orða Ólafs, að við hugsum í heiminum. Og skyndilega hellist sársaukinn yfir hann. Spurning um stillingu En hvað meinar Ólafur með þessari hug- mynd? Ég skil hana þannig að hún súmmi upp þá greiningu á líkamanum sem gengur í gegn- um skáldsögu Guðrúnar Evu, greiningu sem gengur útá að skoða líkamann í heiminum: samfélaginu og menningunni. Hryllingsleik- húsið, klámið, sársaukaleysi Jóa og sársauki Elínar, allt eru þetta hliðar á sömu grunn- hugmyndinni: líkaminn er aldrei bara summa líffæra, né er hann aðskiljanlegur frá ein- hverjum draugslegum anda. Líkaminn er allt- af hluti menningarinnar, afurð menningar- innar sem færir hann í form, skilgreinir hann – meðal annars með því að aðskilja hann frá huganum. Líkaminn er mótaður í menning- unni, bæði bókstaflega, í tískustraumum ólíkra líkamsímynda, og í yfirfærðri merk- ingu, í þeim hugmyndum sem er hlaðið ut- anum hann. Þannig er líkaminn klassísk upp- spretta myndmáls í bókmenntum, til dæmis, en tilfelli þeirra Elínar og Jóa bjóða bæði uppá klassíska túlkun fjölskylduátaka. Elín er dóttir einstæðrar móður, og eignast lítinn bróður sem heift tvíburasysturinnar beinist sérstaklega að. Það þarf engan bókmennta- fræðing til að túlka þetta þannig að Elín sé einfaldlega afbrýðisöm út í bróður sinn og noti ímynduðu tvíburasysturina sem blóraböggul. Á sama hátt má sjá sársaukaleysi Jóa sem vörn hans gegn sársauka sem foreldrarnir valda honum, og ekki þarf heldur mikið ímyndunarafl til að sjá hómóerótíska und- irtóna í samskiptum hans við Gunnar, en slíkir komplexar bæta þá enn við varnarbrynju ung- lingspiltsins. Þó slík túlkun liggi kannski beinast við og bjóði uppá einföldustu leiðina til að skilja hið margslungna og margradda verk Guðrúnar Evu hlýtur hún alltaf að vera mikil einföldun á verkinu. Vissulega eru þessir tónar með í óperunni, en þeir ná aldrei að yfirgnæfa aðra þætti verksins. Þannig byggir Guðrún Eva á ótrúlega áhrifamikinn hátt upp margskonar sambönd og samskipti sem öll eru á sinn hátt einskonar stúdía í líkamanum og tengslum hans við hug- ann, menninguna eða bara heiminn. Hugsað í heiminum Morgunblaðið/Golli Guðrún Eva Mínervudóttir Í Yosoy kallast hún á við hið fræga franska hrollvekjuleikhús Grand Guign- ol, sem gerði út á að bjóða áhorfendum upp á ýmiskonar blóðugar sjónhverfingar. Skáldsagan Yosoy eftir Guðrúnu Evu Mín- ervudóttur vakti mikla athygli síðastliðið haust. Hún er einskonar stúdía í líkamanum og tengslum hans við hugann, menninguna eða bara heiminn, segir í þessari grein. Eftir Úlfhildi Dagsdóttur varulfur@centrum.is Höfundur er bókmenntafræðingur. Hryllingsleikhús og oflæsi á líkamstjáningu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.