Morgunblaðið - 11.01.2006, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eigum enn örfá sæti laus í okkar vinsælu golfferðir til
Túnis, þar sem búið og snætt er á fyrsta flokks hótelum og
leikið golf á góðum völlum í þægilegum hita.
Sími 437 2323, fax 437 2321. Netfang fv@fv.is
2006
Bókanir og nánari upplýsingar
hjá Ferðaskrifstofu
Vesturlands í síma 437 2323
eða með netpósti til fv@fv.is.
Brottför 24. febrúar: Verð kr. 149.500
á mann í tvíbýli.
5 sæti laus.
Brottför 7. apríl (páskar): Verð kr. 162.700
á mann í tvíbýli.
9 sæti laus.
Innifalið í verði er flug, flugvallarskattar,
fararstjórn, akstur, gisting á fyrsta flokks
hótelum í 10 nætur með morgunverði og
kvöldverði, 9 vallargjöld á góðum golfvöllum.
Fararstjóri er Sigurður Pétursson golfkennari.
GERT er ráð fyrir að ný Grímseyj-
arferja verði tilbúin í júní í sumar og
leysi þar með af hólmi Grímseyj-
arferjuna Sæfara sem smíðuð var
árið 1978.
Nýja ferjan er smíðuð árið 1992
og keypt frá Írlandi. Breyta þarf
ferjunni áður en hún verður tekin í
notkun og hafa Ríkiskaup boðið út
breytingarnar. Mestu munar um
vélarafl, sem verður 2700 hestöfl í
nýja Sæfara í stað 805 í gamla. Sigl-
ingahraðinn eykst því úr 10,5 mílna
hraða í 14 mílur á klukkustund. Mun
því siglingatíminn milli lands og
Grímseyjar styttast úr 3,5 klst. í 2,5
klst. Nýja ferjan verður tæpum
metra breiðari, eða 10 metrar á
breidd í stað 9,3 metra nú, en álíka
löng og gamli Sæfari. Miklar breyt-
ingar felast í farþegarými, flutnings-
getan verður rúmlega 100 farþegar í
sætum en er nú 92 farþegar á sum-
aráætlun.
Nýja ferjan er með 2.700 hestafla vél en vélin í gamla Sæfara er 805 hestöfl.
Styttir siglingartímann um klukkustund
Ný Grímseyjarferja
TVEIR menn á þrítugsaldri sem
sættu gæsluvarðhaldi vegna rann-
sóknar lögreglunnar í Reykjavík
á fjársvikamáli, sem þeir eru
grunaðir um gegn Og Vodafone,
voru látnir lausir á mánudag.
Þeir eru grunaðir um að hafa
reynt að leysa út vörur hjá birgj-
um Og Vodafone með beiðnum
sem þeir reyndu að falsa.
Annar mannanna var handtek-
inn 29. desember og var úrskurð-
aður í sjö daga gæsluvarðhald
sem síðan var framlengt til 11.
janúar. Hinn maðurinn var sömu-
leiðis úrskurðaður í gæslu-
varðhald en þar sem rannsóknin
var langt komin kröfðust hags-
munir hennar ekki að þeir sætu
inni til 11. janúar. Þriðji aðilinn
hefur ennfremur verið yfirheyrð-
ur vegna málsins en ekki var lögð
fram gæsluvarðhaldskrafa yfir
honum.
Grunaðir látnir
lausir úr gæslu-
varðhaldi
GUÐJÓN Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair Group, segir
ráðgert að þráðurinn í viðræðum
við Félag íslenskra atvinnuflug-
manna (FÍA) verði tekinn upp að
nýju innan tíðar. Eins og fram kom
í Morgunblaðinu í gær hefur stjórn
FÍA afturkallað umboð til samn-
inganefndar félagsins til viðræðna
við Icelandair um atriði er varða
fyrirkomulag leiguflugs eftir að
skýrt var frá efni starfslokasamn-
inga FL Group. Haft var eftir for-
manni félagsins að ekki hefði þótt
við hæfi að halda áfram viðræðun-
um undir þessum kringumstæðum.
„Við höfum í sjálfu sér lítið um
þetta að segja,“ sagði Guðjón, er
Morgunblaðið spurði hann um
þetta mál í gær. Hann kvaðst þó
gera ráð fyrir því að þráðurinn í
viðræðunum yrði tekinn upp að
nýju innan tíðar.
Inntur eftir því hvort starfsloka-
samningar FL Group hefðu vakið
sterk viðbrögð meðal starfsmanna
Icelandair sagði hann að þeir hefðu
auðvitað verið ræddir meðal starfs-
manna. Hann sagði að sitt sýndist
hverjum, en vildi að öðru leyti ekki
tjá sig um það.
Þráðurinn
tekinn upp að
nýju innan tíðar
NOKKUÐ var um jarðhræringar í
gær en jörð skalf á Reykjanesi og
undir Vatnajökli. Vart varð við
skjálfta um klukkan hálfeitt í fyrri-
nótt við Trölladyngju á Reykjanesi
en skjálftans rétt suður af Kistufelli
á Vatnajökli varð vart um ell-
efuleytið í gærmorgun. Við fyrstu
mælingar var talið að skjálftarnir
hefðu mælst yfir þremur stigum á
Richter-kvarða en við nánari úr-
vinnslu sást að þeir voru heldur
minni, eða um 2,7.
Aðeins örfáir for- og eftir-
skjálftar mældust með þessum
skjálftum og taldi Steinunn Jak-
obsdóttir hjá eftirlitsdeild Veð-
urstofu Íslands skjálftana ekki vera
undanboða frekari jarðhræringa á
svæðinu en þau eru þekkt gossvæði.
Nokkuð um jarð-
hræringar í gær
STARFSEMI heimahlynningar Krabbameins-
félagsins var nú um áramótin flutt frá Krabba-
meinsfélaginu yfir til Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss. Anna Stefánsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri hjá LSH, segir heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra hafa tekið ákvörðun um
þennan flutning, sem sé í samræmi við þá stefnu
LSH að styrkja og þróa enn frekar líknarþjón-
ustu við spítalann. Starfsemin verður í nánum
tengslum við starfsemi líknardeildarinnar í
Kópavogi.
Anna segir að engin breyting verði á starfsem-
inni sem slíkri en þó sé það markmið LSH að
efla alla líknarþjónustu. „Við viljum efla þann
þátt líknarþjónustu að sjúklingar geti verið
heima eins lengi og mögulegt er en þó þannig að
þeir eigi samastað hér hjá okkur ef þeir verða
veikari eða aðstæður breytast þannig að þeir
geti ekki lengur verið heima. Þannig viljum við
efla tengslin á milli þessara tveggja þátta,“ segir
Anna.
Hún bætir við að almennt sé það ósk fólks að
geta fengið að dvelja heima eins lengi og hægt
er, þó það sé misjafnt eftir aðstæðum, og jafn-
framt að geta dáið heima. „Okkar markmið er að
styrkja þessa þjónustu, það getum við m.a. gert
með meiri samfellu og nálægð þjónustuþátta, en
einnig munum við fjölga hjúkrunarfræðingum.“
Eykur öryggi starfseminnar
Helgi Benediktsson, hjúkrunarfræðingur hjá
heimahlynningunni, telur að flutningurinn muni
auka öryggi starfseminnar „Með flutningnum
verðum við starfsmenn spítalans í stað þess að
vera sjálfstætt starfandi. Það verður auðveldara
fyrir okkur að bæta við starfsfólki þar sem
samningar okkar við Tryggingastofnun ríkisins
hafa ekki hentað við heimahlynningu. Að auki
sjáum við fram á að geta þróað okkar starf með
lyflækningasviði II og líknardeild spítalans.“
Aðspurður hvort sjúklingar yrðu varir við
færsluna taldi hann svo ekki vera.
Heimahlynning krabba-
meinssjúkra færð til ríkisins
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
og Sigurð Pálma Sigurbjörnsson
GEORG Páll Skúlason, sem verið
hefur varaformaður Félags bóka-
gerðarmanna, var sjálfkjörinn sem
næsti formaður félagsins.
Eindagi til að skila inn fram-
boðum til formanns í félaginu
rann út 10. janúar sl. Eitt framboð
barst, Georgs Páls, og tekur hann
við sem formaður á næsta aðal-
fundi félagsins. Núverandi for-
maður FBM er Sæmundur Árna-
son.
Georg Páll Skúla-
son næsti
formaður FBM
UM MIÐJAN febrúar næstkomandi
kemur hingað til lands Aleida Guev-
ara March, dóttir argentínska bylt-
ingarsinnans Ernesto Che Guevara,
á vegum Vináttufélags Íslands og
Kúbu. Che Guevara þarf vart að
kynna enda andlit hans eitt þekkt-
asta tákn síðustu aldar og kvik-
myndin Mótorhjóladagbækurnar
(Diarios de Motocicleta), sem byggð
er á dagbókum Guevara, fékk lof-
samlega dóma hér á landi og var af-
ar vel sótt þegar hún var sýnd í kvik-
myndahúsum.
Aleida Guevara er 45 ára barna-
læknir og sérfræðingur í ofnæm-
issjúkdómum. Hún starfar á barna-
spítala í Havana á Kúbu en auk þess
hefur hún látið að sér kveða í pólitík.
Hún þykir búa yfir mannkostum föð-
ur síns, auk þess sem hún líkist hon-
um í útliti, og nýtur mikillar virð-
ingar á Kúbu. Því hefur jafnvel verið
fleygt fram að hún gæti orðið eft-
irmaður Fidels Castro, sem leiðtogi
Kúbu.
Aleida hefur ferðast víða um heim
og haldið fyrirlestra gegn al-
þjóðavæðingu og hernaði en eftir
hana liggur auk þess ritið Chavez:
Venesúela og hin nýja latneska Am-
eríka, sem byggt er upp á samræð-
um hennar við Hugo Chavez, forseta
Venesúela.
Heimsókn Aleidu til Íslands er lið-
ur í ferð um Norðurlöndin í boði Vin-
áttufélaga Kúbu á Norðurlöndum.
Hún mun halda opinn fyrirlestur í
MÍR salnum að kvöldi 15. febrúar
þar sem málefni Kúbu og S-Ameríku
verða að öllum líkindum ofarlega á
baugi.
Dóttir Che
Guevara heldur
fyrirlestur hér
Aleida Guevara, dóttir Ernesto Che
Guevara, mun halda fyrirlestur á
vegum Vináttufélags Íslands og
Kúbu í febrúar næstkomandi.
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar
samþykkti samhljóða lækkun álagn-
ingarstuðla fasteignagjalda á fundi
sínum í gærkvöldi.Álagningarstuð-
ull fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði
lækkaði um 20% í Hafnarfirði úr
0,335% í 0,270%. Þá lækkar lóða-
leiga vegna íbúðarhúsnæðis um
16%, vatnsgjald lækkar úr 0,14% í
0,119% af fasteignamati og holræsa-
gjald úr 0,16% í 0,136%. | 8
Hafnfirðingar
lækka álagn-
ingarstuðla
SAMNINGAR hafa náðst á milli
Starfsmannafélags Reykjavík-
urborgar og Strætó bs. um kjör
starfsmanna þess síðarnefnda. Við-
ræður hafa staðið allt frá því að
Reykjavíkurborg samdi við Starfs-
mannafélagið en nýi kjarasamning-
urinn er í meginatriðum áþekkur
þeim samningi.
Samkvæmt vefsíðu Strætó verð-
ur samningurinn kynntur á næstu
dögum og gert er ráð fyrir því að
hann verði staðfestur með form-
legum hætti að kynningu lokinni.
Samið um kjör
starfsmanna
Strætó bs.