Morgunblaðið - 11.01.2006, Síða 21

Morgunblaðið - 11.01.2006, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 21 DAGLEGT LÍF Í JANÚAR  VERÐKÖNNUN | Neytendasamtökin kanna verð á nikótínlyfjum 45% verðmunur á munnsogstöflum ÞÓNOKKUR verðmunur var á milli apóteka þegar Neytenda- samtökin gerðu verðkönnun á þrjátíu og tveimur tegundum mis- munandi nikótínlyfja hinn 4. jan- úar síðastliðinn. Í tuttugu og tveimur tilvikum var Lyf og heilsa með hæsta verðið og lægsta verðið var oftast í Skip- holts apóteki eða í sextán tilvikum og hjá Lyfjaveri í fjórtán tilfellum. Algengur munur 25–30% Þegar könnunin er skoðuð kem- ur í ljós að algengur munur á lægsta og hæsta verði er 25–30% en mestur er verðmunurinn 45% á 36 stykkjum af tveggja milli- gramma munnsogstöflum frá Nicotinell. Neytendasamtökin könnuðu verð á mismunandi stærðarein- ingum af plástrum, tyggjói, tungu- rótartöflum og munnsogstöflum frá Nicorette og Nicotinell. Nánari upplýsingar fást á vef Neytenda- samtakanna, www.ns.is.  HEILSA Glúten í morgun- korni MATVÆLASTOFNUNIN í Svíþjóð hefur látið efnagreina 18 tegundir af morgunkorni í þeim tilgangi að kanna glúteninnihald þess. Niðurstöður efnagreininganna sýndu að Kellogg’s Cornflakes inni- heldur það mikið glúten að þeir sem eru með glútenóþol ættu ekki að neyta þessarar vöru. Frosties reyndist einnig innihalda of mikið af glúteni fyrir þennan hóp. Þetta kemur fram á heimasíðu Umhverf- isstofnunar. Glútenóþol er þarmasjúkdómur sem einungis er hægt að meðhöndla með mataræði. Einstaklingar með þennan sjúkdóm verða ávallt að forðast kornvörur sem innihalda glúten. Glúten er samheiti yfir pró- tein sem finnast í korntegundum eins og hveiti, rúgi og byggi. Tíðni glútenóþols á Íslandi er áætluð um 0,1% en út frá því er hægt að áætla að um 300 ein- staklingar á landinu sé með slíkt óþol. Hingað til hafa kornflögur (unnið úr maís) verið hluti af glútenfríu fæði, þar sem glúteninnihald þess hefur mælst undir þeim mörkum sem skilgreind eru fyrir glútenfrí matvæli. Eftir að niðurstöður nýrra efnagreininga lágu fyrir hefur ver- ið vakin athygli á því að fundist hafa leifar af glúteni í Kellogg’s Cornflakes og Frosties og því ekki óhætt fyrir fólk með glútenóþol að neyta þeirra. Glútenið í þessum vörum kemur úr maltextrakti sem notað er við framleiðsluna og í fréttatilkynn- ingu frá Umhverfisstofnun segir að maltextrakt sé ýmist dökkur, sír- ópskenndur lögur eða duft, unnið úr korni, oftast nær byggi, sem er bleytt og látið spíra og síðan hitað og malað. Við þetta breytist sterkj- an í korninu í sykur. Maltextrakt getur innihaldið leifar af glúteni. Allar kornflögurnar sem voru rannsakaðar innihéldu malt- extrakt, en aðeins í Kellogg’s vörum komu fram leifar af glúteni. Svo virðist að það sé vegna ákveð- innar framleiðsluaðferðar sem not- uð er við maltextraktið í þessum vörum. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson www.ust.is www.slv.se www.foedevareallergi.dk/                       ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar Dalvegi 28 – Kópavogi Sími 515 8700 BLIKKÁS –

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.