Morgunblaðið - 11.01.2006, Side 37

Morgunblaðið - 11.01.2006, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 37 DAGBÓK eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Traustur kaupandi óskar eftir 250-300 fm einbýlishúsi á einhverju framantaldra svæða. Staðgreiðsla í boði. Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson. EINBÝLISHÚS Í VESTURBORGINNI, SKERJAFIRÐI EÐA FOSSVOGI ÓSKAST Ráðgjafaskóli Íslands er fyrir þá sem starfa við, eða ætla sér að starfa við, ráð- gjöf fyrir áfengis- og fíkniefnaneytendur og fjölskyldur þeirra, t.d. ráðgjafa, félagsráðgjafa, sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga og lækna, og er ætlað að tengja saman persónulega reynslu, starfsreynslu og menntun á þessum sviðum. Eftirfarandi er m.a. tekið fyrir í náminu: • Grunnþekking á alkóhólisma og fíkn í önnur efni en áfengi. • Vinsun, inntaka, meðferðarkynning og mat á skjólstæðingi. • Ráðgjöf (einstaklings-, hóp- og fjölskylduráðgjöf) og tækni til inngripa. • Meðferðarstjórnun, meðferðaráætlanir, skýrsluhald. • Inngripatækni í áföllum. • Forvarnir og fræðsla. • Samstarf við aðra fagaðila. • Siðfræði, lögfræðileg álitamál, trúnaðarmál. • Sérstakir hópar (þjóðerni, menning, kynhneigð, kynferði, alnæmi og fatlanir). • Líffræði og efnafræði áfengis og annarra vímuefna (lögleg, ólögleg, sniffefni og nikótín). • Sálfræðileg, tilfinningaleg og persónuleg álitamál, þroski skjólstæðinga. • Tólf spor, erfðavenjur og heimspeki sjálfshjálparhópa. Umsóknarfrestur um skólavist á vorönn 2006 er til 15. janúar. Upplýsingar og eyðublöð fást hjá: Ráðgjafaskóla Íslands, pósthólf 943, 121 Rvík, netfang stefanjo@xnet.is, sími 553 8800, fax 553 8802 og á www.forvarnir.is. Ungmennafélag Akureyrar var stofnað6. janúar 1906, eða fyrir réttum 100árum. Um það þarf ekkert að deilaenda óteljandi heimildir um það. Hins vegar er það skilgreiningaratriði hvort fé- lag, sem lá niðri í um fimmtíu ár, og er svo end- urvakið, sé sama félagið,“ segir Gísli og bætir við: „Ég ætla ekkert að hafa skýra skoðun á því í sjálfu sér – ef ég kemst hjá því.“ Engar stórveislur verða í tilefni aldarafmæl- isins. „Við höldum upp á þetta í tengslum við aðalfund og þannig, en það er nú þannig að við reynum að halda friðinn við alla og íþrótta- félagið Þór hérna á Akureyri er alltaf með stóra hátíð á þessum degi. Þrettándinn hjá félaginu er með álfabrennu, álfa, tröll og púka og þannig og við erum ekkert að fara í samkeppni við okkar góðu granna,“ segir Gísli. Eins og Gísli segir þá var UFA stofnað hinn 6. janúar árið 1906 og er samkvæmt því 100 ára um þessar mundir. Starfsemi félagsins lagðist þó af en 5. apríl árið 1988 var það endurvakið – eða stofnað á ný – og hefur starfað síðan. Ung- mennafélag Íslands, UMFÍ, var stofnað tveimur árum á eftir UFA, meðal annars fyrir atbeina stofnenda UFA, en þar fóru fremstir Jóhannes Jósefsson og Þórhallur Bjarnason. Sjö voru stofnfélagar UMFÍ, fimm úr Eyjafirðinum, einn úr Reykjavík og einn austan af Fljótsdalshéraði. Gísli segir starfsemi UMFA blómlega. „Aðal áherslan hjá okkur er á frjálsíþróttir auk hefð- bundinnar mannræktar sem á að fylgja ung- mennafélagshreyfingunni og raunar íþrótta- hreyfingunni allri. Hún hefur raunar breyst mikið í tímanna rás enda þegar UFA var stofn- að var guðstrú og bindindi eitt af höfuðdyggð- unum og síðan sjálfstæðisbaráttan ein af aðal- ástæðum þess að þessi félög urðu til. Hún á auðvitað ekki heima í nútímanum, en þjóðrækni á að sjálfsögðu að vera og endalaus guðstrú og bindindi líka,“ segir Gísli, sem segir íslenskt samfélag glíma við alvarlegri vágesti í þessum málum, en að varla sé til betri forvörn en íþrótt- ir. Ungmennafélög víða um land héldu á sínum tíma uppi miklu menningarstarfi, leiklist og ann- að var þeirra tíma skemmtun og oftar en ekki á vegum ungmennafélaganna. En tímarnir breyt- ast og ungmennafélögin með. Fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið á Ak- ureyri árið 1909 og af því tilefni verður Lands- mótið haldið á Akureyri árið 2009, og verður það í umsjá UFA og UMSE. Landsmótið í Kópavogi á næsta ári er líka afmælismót því þá eru 100 ár liðin frá stofnum UMFÍ en 2009 verða 100 ár liðin frá því fyrsta Landsmótið var haldið. Íþróttir | 100 ár frá stofnun Ungmennafélags Akureyrar, elsta ungmennafélags landsins Ekki deilt um stofnun félagsins  Gísli A. Pálsson er formaður Ungmenna- félags Akureyrar sem var stofnað á þrett- ándanum, 6. janúar, ár- ið 1906. Hann er fædd- ur og uppalinn í Hörgárdal, trésmiður að mennt en vinnur sem þjónustufulltrúi hjá Vátryggingafélagi Íslands, VÍS, og hefur gert í tæplega tvo áratugi og „ég spjalla mikið við bændur í starfinu“ segir Gísli. Hann segist hafa verið alæta á allt sem bauðst í íþróttum og síðan í félagsstarfi fyrir íþróttahreyfinguna og nú síðast formaður UFA í tvö ár. Fjöldinn er valdið, láglaunafólk HVAÐ er að ske í okkar þjóðfélagi? Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku fátækari og millistéttin er að detta út. Alltaf sama tuggan. Nei! Ekki nema við viljum það. Hættum að sitja hver í sínu horni og kvarta. Það heyrir það enginn. Stöndum nú upp í sameiningu og notum vald okkar sem er fjöldinn og setjum yfirvaldinu stólinn fyrir dyrnar í þessu óréttlæti. Það er talað um öryrkjana eins og vanheilsan sé þeirra val, það vildi ég líka óska að rétt væri, þá vildi ég að staðan væri öðruvísi hjá mér en hún er í dag. Og eins á við um eldra fólkið og fleiri. Ef ríkisstjórnin heldur svona áfram eins og hún hefur unnið frá kosningum, fellum við hana. Og gef- um öðrum kost á að standa sig í valdi fjöldans. Ef þeir standa sig ekki þá vita þeir nákvæmlega bíður þeirra. Það var mikið rætt um ræður for- setans og forsætisráðherrans á heimilum landsins, sérstaklega hjá okkur láglaunafólki. Ein setning til forsetans: líttu þér nær, herra for- seti, það er fátækt í þínu landi! Herra forsætisráðherra, orð gera engum gagn, framkvæmdir væru betur þegnar. Og hafa þar fólk sem veit hvað er að toga síðustu krón- urnar úr veskinu sínu fyrir nauð- synjum í þessa nefnd þína. Svo er mér spurn; hvernig getur maður með 500–700 þús. kr. í laun á mánuði samið fyrir láglaunafólk um 100–170 þús. kr. á mánuði? Þegar hann þarf ekki að lifa á svona skíta- launum. Áfram þjóð, ekkert gull- fiskaminni í næstu kosningum. Stöndum saman. Ólína Sigurðardóttir. Jólakort í óskilum JÓLAKORT er í óskilum og er það stílað á Ingibjörgu Guðmundsdóttur með áletruninni Elsku Inga, ég þakka þér öll árin á Hæli o.s.frv. og undirskrift er líklega Halldór. Þeir sem kannast við þetta geta haft sam- band í síma 553 1612. Stjörnukisi er týnd HÚN er 6 mánaða svört læða. Hún týndist frá Rauðarárstíg 22 sl. laug- ardag. Hún er með græna ól en ómerkt. Þeir sem hafa orðið hennar varir vinsamlega hafið samband í síma 694 8022. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Be7 4. Rf3 Rf6 5. Bg5 0-0 6. Dc2 c6 7. e3 Rbd7 8. cxd5 Rxd5 9. Bxe7 Dxe7 10. Be2 He8 11. 0-0 Rxc3 12. bxc3 e5 13. a4 e4 14. Rd2 Rf6 15. Hfb1 Bg4 16. Bf1 Had8 17. c4 c5 18. dxc5 Bc8 19. Rb3 De5 20. h3 Dg5 21. Kh1 He5 22. Hd1 Hde8 23. Hd6 Dh4 24. Had1 Hf5 25. H1d2 Rg4 26. g3 Staðan kom upp á rússneska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Moskvu. Stórmeistarinn Vadim Zvjag- insev (2.659) hafði svart gegn Sergei Volkov (2.614). 26. ... Dxg3! 27. hxg4 27. fxg3 hefði verið svarað með 27. ...Hxf1+ 28. Kg2 Rxe3+ 29. Kh2 Rxc2 og svartur fengi unnið endatafl. 27. ... Dh4+ 28. Kg1 Dxg4+ 29. Bg2 Hg5 30. f4 exf3 31. Hd8 f2+! og hvítur gafst upp enda er liðstap óumflýjanlegt. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Borgarnes. Norður ♠DG7 ♥K983 ♦Á54 ♣ÁK3 Vestur Austur ♠109632 ♠K8 ♥G72 ♥– ♦KG9 ♦10873 ♣92 ♣DG108764 Suður ♠Á54 ♥ÁD10654 ♦D62 ♣5 Suður spilar sex hjörtu og fær út tromp. Fjöldi spilara hittist á Hótel Borgarnesi um síðustu helgi til að taka þátt í árlegri bridshátíð á vegum Bridsfélags Borgarness. Spiluð var sveitakeppni á laug- ardag og tvímenningur á sunnu- dag. Sveit Orkuveitu Reykjavíkur undir forystu Páls Valdimarssonar vann sveitakeppnina, en með hon- um spiluðu Ragnar Magnússon, Þröstur Ingimarsson og Hermann Lárusson. Sveit Jóns Sigurbjörns- sonar varð í öðru sæti. Tvímenn- inginn unnu frændurnir Bogi Sig- urbjörnsson og Birkir Jónsson, sem stungu sér fram fyrir Ómar Olgeirsson og Páll Þórsson á loka- sprettinum. Spilið að ofan kom upp í sveita- keppninni. Víða varð suður sagn- hafi í sex hjörtum, en slemman vannst aðeins á tveimur borðum. Hin „eðlilega“ spilamennska er að henda spaða í lauf og spila svo einhvern tíma litlum tígli á drottn- inguna – sem ekki gengur. Kristján Blöndal fann leið til að vinna slemmuna með tíg- ulkóngnum í vestur. Hann fékk út tromp, sem hann átti á níu blinds, og spilaði strax spaðadrottningu – kóngur og ás. Kristján tók öll trompin nema eitt og austur henti strax fjórum laufum, en vestur tveimur spöðum. Þetta voru upp- lýsandi afköst og Kristján túlkaði þau réttilega – austur hlaut að eiga sjölit í laufi og vestur fimmlit í spaða. Skiptingin lá því fyrir og í ljósi þess að austur hafði ekkert meld- að á 7-4 í láglitunum, taldi Krist- ján líklegt að tígulkóngurinn væri í vestur. Hann henti því tígli í laufkóng og trompaði lauf. Sendi svo vestur inn á spaða og lét hann spila frá tígulkóng í lokin. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Skagafjörður | Árlegir þrettánda- tónleikar karlakórsins Heimis í Skagafirði voru haldnir í félagsheim- ilinu Miðgarði sl. laugardagskvöld. Þá kom í fyrsta skipti fram með kórnum ung söngkona fædd í Úkra- ínu, Alexandra Chernyshova. Alex- andra söng þrjú lög með kórnum við frábærar undirtektir fjölmargra gesta sem fylltu félagsheimilið við þetta tækifæri. Auk hennar voru einsöngvarar með kórnum bræð- urnir Sigfús og Pétur Péturssynir. Söngur þeirra og kórsins í heild var vandaður og góður enda var þeim vel þökkuð góð skemmtun í lok tón- leikanna. Á söngskrá voru 15 lög bæði erlend og innlend og í lokin bættust við tvö aukalög. Undirleik- ari var Thomas Higgerson og stjórn- andi Stefán R. Gíslason sem báðir hafa starfað með kórnum um árabil. Það hefur skapast sú hefð að hafa heiðursgest á þrettándatónleik- unum. Hann var nú Halldór Ás- grímsson forsætisráðherra. Halldór flutti tölu á samkomunni, fór víða um sviðið og sleppti pólitíkinni en sagði þess í stað nokkrar gam- ansögur m.a. af stjórnmálamönnum og var vel fagnað eins og öðrum sem fram komu á samkomunni. Alexandra Chernyshova hefur bú- ið hér á landi í rúm tvö ár og haldið nokkra tónleika. Hún fluttist hingað í Skagafjöð sl. sumar þegar maður hennar Jón Rúnar Hilmarsson var ráðinn skólastjóri á Hofsósi. Það er ljóst af söng hennar og viðtökum áheyrenda á tónleikunum að koma hennar í héraðið er kærkominn lið- styrkur við það mikla og öfluga tón- listarlíf sem fyrir er í Skagafirði. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Alexandra Chernyshova þenur raddböndin á tónleikunum. Góður liðstyrkur við sönglíf Skagfirðinga ÞÓRGUNNUR Jónsdóttir ljóðskáld, sýnir myndverk og ljóð í Listagjá Bæjar- og héraðsbókasafnsins á Selfossi í janúar. Þetta er önnur einkasýning hennar. Verkin á sýn- ingunni eru unnin með vatnslitum á rekavið af ströndinni á Stokkseyri og Eyrarbakka, auk steina héðan og þaðan af landinu. Þórgunnur nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og var einnig í einkatímum hjá Barböru Árnason listmálara. Ljóðabækur eftir Þórgunni eru: The Wheel of Time, Janus London 1997, Mystic Journey, Pen Press 2004, Barnabók eftir Þórgunni: Helga og hunangsflugan, Mál og menning 1992. Sýningin er opin á opnunartíma Bæjar- og héraðs- bókasafnsins á Selfossi alla virka daga frá 10–19 og á laugardögum kl. 11–14. Þórgunnur sýnir á Selfossi Eftir Örn Þórarinsson fréttaritara

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.