Morgunblaðið - 11.01.2006, Page 38

Morgunblaðið - 11.01.2006, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Viðkvæmni er vanmetin í heimi þar sem frumskógarlögmálið gildir. En forréttindin sem fylgja henni eru um- talsverð. Skilaboð úr umhverfinu eru óljós, hlustaðu eftir blæbrigðum, ekki síst þegar þú hlustar á hjarta þitt. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið tekur ofbeldi í sjónvarpi tals- vert nærri sér í dag, meira segja í fréttunum. Einnig er það móttæki- legra fyrir gleði og stórmennsku en ella. Hafðu stjórn á ytri aðstæðum til þess að ná tökum á innri veruleika. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Himintunglin benda til afturhvarfs til barnæskunnar. Að fara eftir reglunum sem við lærðum þá verður manni til heilla: Leyfum öðrum að leika með dót- ið okkar. Okkur er umbunað fyrir góða hegðun. Ekki kasta sandi. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Stundum er ábyrg hegðun besta leiðin til þess að öðlast meira frelsi og sjálf- stæði. Að vera sannur í orði og gerðum frelsar sálina og nærir anda þeirra sem við erum samvistum við. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Hermt er að kettir sofi 80% sólar- hringsins. Það passar ekki fyrir ljónið, en margt bendir til þess að það hvíli sig meira en endranær þessa dagana. Hreiðraðu um þig og gerðu ekkert í kvöld, það er yndislega afslappandi. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Leikgleði er mikilvægur þáttur snilli- gáfunnar. Leikgleði sem reiðir sig á ímyndunaraflið, það er hljóðfæranám, listsköpun eða bara hrein fíflalæti, hentar meyjunni ágætlega. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Tvíhyggjan ræður ferðinni í dag. Myrkrið er hluti af birtunni á sama hátt og birtan er hluti af myrkrinu. Taktu ást og hamingjuleit fram yfir andlát og skatta, ef svo má að orði komast. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er bara þess virði að taka áhættu ef maður teflir djarft í þágu hins dul- arfulla og undursamlega. Ekki taka áhættu til þess eins að græða. Vertu sem barn frammi fyrir hinu óvænta. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Skynjun bogmannsins er næmari en oft áður og hið smáa í lífinu virðist ein- staklega aðlaðandi. Það besta sem lífið hefur upp á að bjóða þarf ekki alltaf að kosta einhver ósköp. Biddu kaupóðan vin að ráðleggja þér. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Virkt ímyndunarafl er frábært ef það stjórnar manni ekki. Það er freistandi að láta sem að maður sé einhver önnur útgáfa af sjálfum sér. Gefðu upp það sem þú veist, annars fer allt í flækju. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þrautseigjan gildir. Hægt er að snúa algerri höfnun upp í andhverfu sína með nægilegri staðfestu. Hertu upp hugann og kljástu við vandkvæði þín eina ferðina enn. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Í dag er ekki rétti tíminn til þess að spila af fingrum fram. Farðu eftir upp- skriftinni, lið fyrir lið. Himintunglin stinga upp á því að fiskurinn endur- skoði peningamálin. Hann kemur auga á vandamálið og lagar það. Stjörnuspá Holiday Mathis Merkúr (hugsun) og Mars (þrár) daðra án afláts í dag og hið sama mun gilda um okkur mannfólkið. Tungl er í tvíbura sem þekktur er fyrir að geta talað og því liggur hinum feimnu jafnvel eitthvað á hjarta líka. Afslappað viðhorf hentar prýðilega í viðskiptum, fólk er að leita eft- ir persónulegri nálgun, jafnvel við að- stæður sem alla jafna teljast ópersónu- legar. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 kvenna, 8 ámæli, 9 bylgjur, 10 guð, 11 synja, 13 býsn, 15 krukku, 18 menntastofn- unar, 21 auð, 22 eyja, 23 eru ekki vissir, 24 hegn- ingarhúsið. Lóðrétt | 2 frumefni, 3 kroppa, 4 þarflaus, 5 svæfill, 6 skepna, 7 hug- boð, 12 verk, 14 tré, 15 kenjar, 16 vera hissa á, 17 fælin, 18 hvell, 19 ósið- ur, 20 snjólaust. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skráp, 4 nýtur, 7 ertan, 8 lokki, 9 dró, 11 funi, 13 maka, 14 leifa, 15 kurl, 17 skot, 20 lim, 22 pakki, 23 játar, 24 reiði, 25 rimma. Lóðrétt: 1 skerf, 2 rætin, 3 pund, 4 nóló, 5 tukta, 6 reisa, 10 reipi, 12 ill, 13 mas, 15 kopar, 16 rukki, 18 kútum, 19 terta, 20 lini, 21 mjór. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Myndlist Aurum | Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir vöruhönnuður sýnir handgerðar fígúrur. Opið mán.–fös. 10–18 og lau. 11–16. Café Karólína | Aðalsteinn Svanur sýnir bleksprautuprentaðar ljósmyndir á segl- dúk til 3. febr. Gallerí + Akureyri | Ingileif og Áslaug Thorlacius til 22. jan. Opið um helgar kl. 14–17. Gallerí Sævars Karls | Byggir brú milli náttúru og borgar – Helgi Már Kristinsson sýnir abstrakt málverk. Til 26. jan. Gallerí Sævars Karls | Myndlistarmað- urinn Helgi Már Kristinsson með einkasýn- ingu. GUK+ | Hartmut Stockter til 16. jan. Hafnarborg | Kári Sveinsson frá Færeyjum og Pétur Bjarnason, myndhöggvari. Til 30. jan. Hallgrímskirkja | Kristín Gunnlaugsdóttir og Margrét Jónsdóttir til febrúarloka. Hrafnista, Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 7. febrúar. Iða | Sölusýning á málverkum Þóru Guð- rúnar Benediktsdóttur til loka janúar 2006. Kaffi Sólon | Dóra Emils – Heyr himna smiður – til 14. jan. Karólína Restaurant | Óli G. með sýn- inguna Týnda fiðrildið til loka apríl 2006. Kling og Bang gallerí | Ég sýni ekkert en í nýju samhengi eftir Erling T.V. Klingenberg & Hreyfingar – Movements eftir Sirru, Sig- rúnu Sigurðardóttur. Til 22. janúar. Opið fim.–sun. kl. 14–18. Listaháskóli Íslands | Ásmundur Ás- mundsson, myndlistarmaður, flytur fyr- irlestur um eigin verk í LHÍ á Laug- arnesvegi 91. Ásmundur (f. 1971) útskrifaðist með mastersgráðu frá School of Visual Arts í New York 1996. Ásmundur stundar oft nokkurskonar þjóðfélagsrýni og skilar frá sér í gjörningum, teikningum, myndböndum og skúlptúr. Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning. Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II – Um rými og frásögn. Sýning á verkum 13 ísl. samtímalistamanna. Til 12. febrúar 2006. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Bernd Koberling til 22. janúar. Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró til 23. apríl Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá fæðingu málarans. Til 19. mars. Nýlistasafnið | Kees Visser, Þór Vigfússon og Ívar Valgarðsson. Til 28. jan. Saltfisksetur Íslands | Margrét Bára með málverkasýningu í Listsýningarsal til 27 jan. Opið alla daga frá 11–18. Yggdrasill | Tolli til 25. jan. Þjóðmenningarhúsið | Á veitingastofunni Matur og menning í Þjóðmenningarhúsinu eru sýnd málverk eftir Hjört Hjartarson. Hjörtur kallar sýninguna Myndir frá liðnu sumri. Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís- lenskri myndlist í Bogasal, til 28. maí. Ljós- myndir Marcos Paoluzzo í Myndasal og ljósmyndir Péturs Thomsen í Myndasal. Til 20. febrúar. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning Borgarskjalasafns „Býarmenningin Tórs- havn 1856–2005“ er í Grófarsal, Tryggva- götu 15, en hún fjallar um þróun og upp- byggingu byggðar í Þórshöfn í Færeyjum. Hönnunarsafn Íslands | Feðginin Erla Sól- veig Óskarsdóttir, iðnhönnuður, og Óskar L. Ágústsson, húsgagnasmíðameistari, sýna verk sín. Safnið er opnið kl. 14–18, lokað mánudaga. Til 20. jan. Þjóðmenningarhúsið | Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá Nóbelsverðlaunaveitingunni til Halldórs Laxness hefur Gljúfrasteinn sett upp sýningu í bókasal Þjóðmenning- arhússins. Þjóðmenningarhúsið | Sýnishorn af ár- angri fornleifarannsókna sem njóta stuðn- ings Kristnihátíðarsjóðs eru til sýnis í and- dyri Þjóðmenningarhússins. Rannsóknirnar fara fram á Skriðuklaustri, Hólum, Þingvöllum, Keldudal, Reykholti, Gásum, Kirkjubæjarklaustri og Skálholti. Auk þess eru kumlastæði um land allt rannsökuð. Þjóðminjasafn Íslands | Boðið upp á fjöl- breytta fræðslu og þjónustu fyrir safn- gesti. Þar eru nýstárlegar og vandaðar sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Dans Dansskóli Jóns Péturs og Köru | Dans- skóli Jóns Péturs og Köru býður upp á námskeið í barnadönsum, Freestyle, sam- kvæmisdönsum, tjútti, mambó og salsa. Boðið verður upp á einstaklingsnámskeið fyrir fullorðna í s-amerískum dönsum. Inn- ritun kl. 12–19 í síma 553 6645 eða á heimasíðu dansskólans, www.dansskoli.is. Kennsla hefst 11. jan. Þjóðdansafélag Reykjavíkur | Opið hús verður miðvikudaginn 13. jan. í sal félags- ins, Álfabakka 14A, kl. 20.30. Gömlu dans- arnir. Allir velkomnir. Fyrirlestrar og fundir Landakot | Fræðslunefnd Rannsóknastofu HÍ og LSH í öldrunarfræðum (RHLÖ) held- ur fræðslufund 12. janúar kl. 15, í kennslu- salnum á 6. hæð á Landakoti. Guðrún Reykdal félagsráðgjafi mun fjalla um ís- lenskar niðurstöður úr Rai Home Care- rannsókn. Sent verður út með fjar- fundabúnaði. Sögufélag | Úlfhildur Dagsdóttir flytur er- indi hjá Félagi íslenskra fræða sem hún nefnir „Brennið þið menningarvitar: flóð og fjara í íslenskum bókmenntum 2005“, þar sem stiklað verður á stóru í jólabókablóði ársins 2005. Fréttir og tilkynningar Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar- og fataúthlutun kl. 14–17. Sími 551 4349. Netfang: maedur@simnet.is Frístundir og námskeið Hússtjórnarskólinn | Náttúrulækninga- félag Reykjavíkur heldur matreiðslunám- skeið í grænmetisréttum laugardaginn 14. jan. Að þessu sinni hefur félagið fengið til liðs við sig Dóru Svavarsdóttur mat- reiðslumeistara frá veitingahúsinu Á næstu grösum. Námskeiðið verður haldið í Hússtjórnarskólanum, Sólvallagötu 12, og stendur yfir frá kl. 11–17. Börn Dansskóli Jóns Péturs og Köru | Hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru er 4 til 5 ára börnum boðið upp á dans, söng og leik. Hjá eldri börnum og unglingum er boðið upp á námskeið í samkvæmisdönsum og Freestyle. Innritun daglega kl. 12–19 í síma 553 6645 eða á heimasíðu dansskólans, www.dansskoli.is. Kennsla hefst 11. janúar. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is 

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.