Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 29
lifun 29
Gulrótamúffur
12–16 múffur
2 egg
100 g púðursykur
300 g hveiti
½ tsk. engifer
1½ tsk. kanill
½ tsk. salt
2½ tsk. lyftiduft
¾ dl appelsínusafi
½ dl matarolía
2 dl hrein jógúrt
5 msk. döðlur, saxaðar
200 g gulrætur, fínrifnar
Hrærið egg og sykur létt og ljóst. Blandið
hveiti, lyftidufti, salti og kryddi saman við og
bætið við til skiptis jógúrt og mjólk, hrærið
eins lítið og hægt er. Hrærið gulrótum og
döðlubitum saman við deigið. Setjið í 12–16
múffuform, annaðhvort smurð eða pappírs-
klædd. Hvert form á að vera fyllt að um
þremur fjórðu. Bakið við 180°C í 25–30 mín-
útur, eða þar til múffurnar hafa lyft sér vel og
tekið góðan lit.
matur
Kúrbítssúkkulaðikaka
1 kaka u.þ.b. 10 sneiðar
3 egg
2 dl púðursykur
3 msk. olía
5 dl hveiti
2 msk. kakó
1½ tsk. lyftiduft
1 tsk. kanill
¼ tsk. salt
2½ dl eplamauk
4 dl rifinn grænn kúrbítur (súkkíní)
1 dl súkkulaðibitar – 70% súkkulaði
Þeytið saman egg, sykur og olíu. Blandið eplamauki út í og því næst
öllum þurrefnum. Rífið kúrbítinn og blandið saman við deigið ásamt
súkkulaðibitunum Setjið deigið í smurt aflangt form eða hringform.
Bakið við 180°C í 60–70 mínútur eða þar til prjónn sem stungið er í
kökuna kemur hreinn út.
Þessi kaka er virkilega gómsæt með ekta súkkulaðibragði: Þar sem
kakan inniheldur litla fitu er hún í hollari kantinum sem er auðvitað
ánægjulegt. Þetta er kaka sem hægt er að baka fyrir börn og full-
orðna þegar löngun í eitthvað gómsætt grípur mann.