Morgunblaðið - 18.01.2006, Side 1

Morgunblaðið - 18.01.2006, Side 1
2006  MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR BLAÐ C SERBAR ÓÞEKKT STÆRÐ SEGIR VIGGÓ / C3 FORSVARSMENN knattspyrnusambands Sádi Arabíu hafa orðið við ósk sænska knattspyrnu- sambandsins að konum verði leyft að horfa á vináttulandsleik sem fram fer í Riyadh í þessari viku. Þegar ljóst var að konum yrði ekki leyft að mæta á leikinn var því mótmælt harkalega í Svíþjóð, og var skorað á sænska knattspyrnu- sambandið að mæta ekki til leiks með liðið þar sem að konur mættu ekki vera á meðal áhorf- enda. Leikvangurinn sem leikið verður á er mun minni en sá sem upphaflega átti að nota og var talið að það væri gert til þess að geta úti- lokað konur – en fjölmargir stuðningsmenn sænska landsliðsins ætla að mæta á leikinn. Laila Freivalds, utanríkisráðherra Svía, þurfti m.a. að svara fyrirspurnum frá þingmönnum um málið enda var Svíum brugðið er þeir fengu fréttir af gangi mála. Konur fá að horfa á Svía B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N AB L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A BJARNI Guðjónsson hafnaði í gær tilboði belgíska knattspyrnuliðsins Lokeren og á hann ekki von á því að fá annað tilboð frá félaginu. „Tilboðið var einfaldlega með þeim hætti að ég sá mér ekki fært að rífa fjölskylduna upp frá Plymouth á Englandi. Ég átti satt best að segja von á mun betra tilboði þar sem þjálfari liðsins hafði mikinn áhuga á að fá mig til liðsins. Hann hefur ekkert með samningamálin að gera og því fór sem fór. Ég er því í sömu stöðu og áður, samningur minn við Plymouth rennur út í sumar og ég er að leita að öðru félagi,“ sagði Bjarni en hann segir að skoskt félag sé inni í myndinni hjá sér og einhver hreyf- ing er á enska markaðinum. „Það er að mörgu að hyggja fyrir mig og það kemur vel til greina að koma heim til Íslands á ný ef þetta gengur ekki upp. Konan mín er í háskólanámi og ég hef áhuga á að mennta mig meira en ég gerði áður en ég fór út í atvinnumennskuna,“ sagði Bjarni. Forráðamenn norska knattspyrnuliðsins Strömsgodset hafa hug á að skoða Bjarna en þjálfari Strömsgodset, Dag-Eilev Fagermo, og umboðsmaðurinn Kjetil Osvold staðfestu þetta við norska blaðið Drammens Tidende í gær. Liðið féll úr úr- valsdeildinni 2001 og var í 8. sæti 1. deildar á síðasta tímabili. Bjarni sagði að það væri ekki efst á baugi hjá sér að fara til Noregs til reynslu eins og Fagermo hefur óskað eftir. „Ég hef ekki rætt við félagið og satt best að segja er það ólíklegt að ég fari þangað til reynslu,“ sagði Bjarni í gær við Morgunblaðið. Bjarni hafnaði Lokeren ARNAR Þór Viðarsson landsliðs- maður í knattspyrnu skrifaði í gær undir þriggja og hálfs árs samning við hollenska úrvalsdeildarliðið Twente að undangenginni læknis- skoðun hjá félaginu. Twente greið- ir Lokeren 150.000 evrur fyrir Arn- ar, sem jafngildir rúmlega 11 milljónum íslenskra króna, en samningur hans við Lokeren átti að renna út í sumar. Arnar er 27 ára gamall og á 43 A-landsleiki að baki. Hann hóf feril sinn með FH en gekk til liðs við Lokeren árið 1997 og hefur spilað 240 leiki með því í efstu deild og verið fyrirliði undan- farin fjögur ár. ,,Ég er virkilega ánægður með þessa niðurstöðu og hlakka bara mikið til að takast á við þessa nýju áskorun. Mér fannst ég ekki getað annað en tekið tilboðinu frá Twente enda ekki víst að svona tækifæri komi aftur. Twente er að mörgu leyti svipaður klúbbur og Lokeren en hollenska knattspyrnan stendur framar og það verður gaman að fá að spreyta sig í þessari sterku deild,“ sagði Arnar Þór við Morgunblaðið í gær. Arnar fékk grænt ljós á félaga- skiptin frá forráðamönnum Loker- en í gær og mætir á sína fyrstu æfingu hjá Twente í dag en liðið tekur á móti stórliði Ajax á sunnu- daginn. Arnar segir að hugsanlega verði hann í hópnum sem mætir Ajax en hann segir það koma betur í ljós eftir að hann hittir þjálfarann í fyrsta sinn í dag. Arnar samdi við Twente Rætt hefur verið um að MargrétLára gangi til liðs við þýska liðið næsta haust en hún sagði við Morgunblaðið að það væri ennþá galopið. „Málin skýrast kannski eitthvað betur eftir þessa ferð. Ég ætti að finna eftir þessa dvöl hvernig ég myndi falla inn í þeirra hóp og um- hverfi,“ sagði Margrét Lára, sem er aðeins 19 ára en hefur gert 13 mörk í 18 A-landsleikjum og 71 mark í 54 leikjum með Val og ÍBV í úrvals- deildinni. Potsdam er núverandi Evrópu- meistari og leikur til úrslita um UEFA-bikar kvenna annað árið í röð í vor – mætir þá öðru þýsku liði, Frankfurt, í úrslitum. Liðið er efst í 1. deild, hefur ekki tapað leik og er með 23 stig eftir 9 leiki, en Duis- burg og Frankfurt eru með 22 stig hvort. Duisburg eftir 10 leiki en Frankfurt eftir aðeins 8. Tólf lið leika í deildinni og því eru spilaðar 22 umferðir. Á vef Potsdam kemur fram að Bernd Schröder þjálfari liðsins vilji fá Margréti Láru í sínar raðir í sumar. Margrét Lára fer til Potsdam MARGRÉT Lára Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu úr Val, fer á miðvikudaginn í næstu viku til þýsku Evrópumeistar- anna Turbine Potsdam og dvel- ur þar í átta daga við æfingar. Þjóðverjarnir buðu Margréti Láru utan en þeir hafa fylgst grannt með henni frá því Valur mætti þýska liðinu í átta liða úr- slitum UEFA-bikarsins í haust og vilja fá hana í sínar raðir. Margrét Lára Viðarsdóttir Morgunblaðið/Golli ÍBV tryggði sér sæti í undanúrslitum í bikarkeppni kvenna í handknattleik í gærkvöld ásamt Haukum. Hér brýst leik- maður ÍBV inn af línunni og skorar eitt af mörkum liðsins en Eyjakonur fögnuðu tíu marka sigri í Digranesi, 29:19.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.