Morgunblaðið - 18.01.2006, Síða 4
VALSSTÚLKURNAR mæta
gríska liðinu Athinaikos frá
Aþenu í 16 liða úrslitum
Áskorendakeppi Evrópu í
handknattleik. Fyrri viður-
eignin fer fram í Aþenu 11.
eða 12. febrúar, en seinni við-
ureignin í Laugardalshöllinni
viku síðar, 18. og 19. febrúar.
Það er lítið vitað um styrk-
leika gríska liðsins, en það
lagði annað grískt lið að velli í
32 liða úrslitum – GS Elpides í
tveimur leikjum í Aþenu,
34:33 og 31:25. Athinaikos hef-
ur ekki tekið þátt í Evrópu-
keppni á undanförnum árum.
Þá hafa grísk lið ekki náð
lengra en í 16-liða úrslit á
Evrópumótum síðustu árin.
Valur til
Aþenu
Deco í tveggja
leikja bann
DECO, portúgalski miðju-
maðurinn sem leikur með
spænska meistaraliðinu
Barcelona, var í gær úr-
skurðaður í tveggja leikja
bann af aganefnd spænska
knattspyrnusambandsins.
Deco fékk að líta rauða
spjaldið í viðureign Barce-
lona gegn Atletico Bilbao um
síðustu helgi fyrir að toga í
hárið á leikmanni Bilbao.
Portúgalski landsliðsmað-
urinn missir af leik Börsunga
á móti Alaves um næstu helgi
og bikarleik gegn ann-
aðhvort Atletico Madrid eða
Zaragoza í næstu viku en for-
ráðamenn Barcelona hafa í
hyggju að áfrýja úrskurð-
inum.
Hannes sagði við Morgunblaðið ígær að hann vonaðist eftir því
að vera tilbúinn að spila á ný um aðra
helgi. „Þetta eru svona
dæmigerð ökklameiðsli
og ég vona að ég geti
farið að hlaupa aftur á
föstudag eða mánudag.
Það lítur ekki út fyrir
að þetta sé alvarlegt en
það er vissulega slæmt
að detta út einmitt
núna því það hefði ver-
ið meiri möguleiki en
áður á að fá að spreyta
sig í fremstu víglínu,“
sagði Hannes sem hef-
ur aðallega leikið á
vinstri kantinum hjá
Stoke í vetur en einnig
nokkra leiki á þeim
hægri.
Sammy Bangoura, sóknarmaður
Stoke og helsti markaskorari, er
fjarverandi um þessar mundir þar
sem hann spilar með Gíneu í úrslita-
keppni Afríkumóts landsliða og Joh-
an Boskamp knattspyrnustjóri er í
nokkrum vandræðum með sóknina
hjá sér af þeim sökum.
„Já, ég hefði kannski komist aftur
í mína stöðu en ég kvarta ekki. Það
er skemmtilegra að spila en að vera
utan vallar og horfa á, ég hef fengið
fína reynslu með því að spila á könt-
unum og verð vonandi fjölhæfari
leikmaður fyrir vikið,“ sagði
Hannes.
Það hefur verið mikill tröppu-
gangur á liði Stoke sem um tíma var í
hópi efstu liða en hefur sigið niður í
miðja deild eftir slæmt
gengi um jól og áramót.
Ótrúlega köflótt
tímabil
„Við töldum okkur
vera í góðri stöðu fyrir
jólin og stefndum á
sæti í úrslitakeppninni
en svo hefur þetta
gengið illa að undan-
förnu. Tímabilið hefur
annars verið ótrúlega
köflótt hjá okkur, við
höfum unnið fimm leiki
af sex í einni lotu og svo
tapað öðru eins,“ sagði
Hannes. Stoke er í 13.
sætinu en aðeins sex stigum á eftir
Preston sem er í sjötta sæti en það
gefur rétt til að leika um úrvalsdeild-
arsæti.
Hannes kom til Stoke frá Viking
Stavanger í lok ágúst og kann vel við
sig hjá félaginu. „Mér líður mjög vel
hérna og það var alls ekki erfitt að
venjast breytingunni. Þetta er
hörkudeild og mjög jöfn, og flest lið-
in áþekk að getu. Það skiptir litlu
hvort maður spilar gegn liði sem er
ofarlega eða neðarlega,“ sagði
Hannes Þ. Sigurðsson.
milljónir íslenskra króna, fyrir Arn-
ar Þór.
„Ég verð að sætta mig við að
missa fyrirliðann, en ég krefst þess
að Arnar Þór leiki með okkur gegn
Moeskroen á laugardaginn. Ég get
ekki notað sjö fastamenn liðsins
vegna meiðsla og leikbanns. Því er
afar slæmt fyrir okkur að missa
Arnar Þór, sem hefur verið einn
Ástæðan fyrir því að Lokerenlætur Arnar Þór fara núna á
miðju keppnistímabili, er að samn-
ingur hans við liðið rennur út í maí
og getur hann þá farið frá Lokeren á
frjálsri sölu. Hollenskir fjölmiðlar
segja að Twente greiði Lokeren 150
þúsund evrur, sem rúmlega ellefu
mikilvægasti leikmaður liðsins,“
sagði Aime, sem gekk svo langt – að
hóta því að setjast ekki á bekk Loke-
ren í leiknum á móti Moeskroen, ef
Arnar Þór léki ekki með.
Arnar Grétarsson getur ekki leik-
ið með Lokeren, þar sem hann hefur
ekki náð sér fullkomlega eftir
meiðsli og þá tekur Rúnar Kristins-
son út leikbann í leiknum gegn
Moeskroen.
Forseti Lokeren reynir nú allt til
að róa Aime og sagðist vera tilbúinn
að kaupa tvo leikmenn í stað Arnars
Þór. Bjarni Guðjónsson er inni í
myndinni, en viðræður við hann eru
á byrjunarstigi.
Morgunblaðið/Kristján Bernburg
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur
ákveðið að yfirgefa Lokeren í Belgíu og halda til Hollands.
Þjálfarinn óhress
að missa Arnar Þór
AIME Anthuens, þjálfari Lokeren, er ekki ánægður með að missa
Arnar Þór Viðarsson frá liðinu, en hann er á leiðinni til FC Twente í
Hollandi. FC Twente er frá borginni Enschede, sem er í austur Hol-
landi – við landamæri Þýskalands. Liðið er nú í neðri hluta hol-
lensku deildarinnar og eru forráðamenn Twente ákveðnir að styrkja
liðið fyrir lokabaráttuna.
Eftir Kristján Bernburg
GUÐMUNDUR E. Stephensen
vann báða leiki sína í einliðaleik af
öryggi, 3:0, þegar lið hans, Malmö
FF, lék við toppliðið Eslövs AI í
sænsku úrvalsdeildinni í borðtennis í
fyrrakvöld. Það nægði þó ekki því
Eslövs vann leikinn, 5:3, og er á
toppnum ásamt Halmstad með 23
stig en Malmö FF er í fjórða sæti
með 17 stig.
MATTHÍAS Vilhjálmsson og Há-
kon Hallfreðsson, leikmenn með 2.
og 3. flokki FH í knattspyrnu, fara á
morgun til enska úrvalsdeildarliðs-
ins Everton og æfa þar í eina viku.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari meist-
araflokks, og Ingvar Jónsson, þjálf-
ari 2. flokks verða einnig með í för.
FH-INGURINN Bjarni Þór Við-
arsson, sem er 17 ára, leikur með
vara- og unglingaliðum Everton en
hann gekk til liðs við félagið 2004.
HEIMIR Guðjónsson, aðstoðar-
þjálfari meistaraflokks FH og fyrir-
liði liðsins undanfarin ár, er líka á
förum til Englands. hann fer til Ars-
enal til að fylgjast þar með þjálfun.
AHN Jung-hwan, knattspyrnu-
maðurinn sem skoraði sigurmark
Suður-Kóreu gegn Ítalíu í heims-
meistarakeppninni 2002 og var fyrir
vikið hótað brottrekstri frá ítalska
félaginu Perugia, er á leiðinni til
reynslu hjá enska úrvalsdeildarlið-
inu Blackburn. Ahn leikur með Metz
sem er neðst í frönsku 1. deildinni.
WAYNE Rooney og Alex Fergu-
son hjá Manchester United verða
ekki ákærðir af enska knattspyrnu-
sambandinu fyrir að rífast við Steve
Bennett dómara í hálfleik þegar lið
þeirra mætti Manchester City í úr-
valsdeildinni á laugardaginn. Tals-
maður sambandsins sagði að í
skýrslu Bennetts um leikinn hefði
ekkert verið minnst á þetta atvik.
FRANSKA liðið Mónakó hefur
gert samning við Manuel Dos Sant-
os, varnarmann hjá Benfica. Kapp-
inn er 31 árs og gerði félagið við
hann 18 mánaða samning. Hann
þekkir til hjá félaginu, lék þar 1995–
97 áður en hann fór til Montpellier
og Marseille. Hann er þriðji leik-
maðurinn sem Mónakó kaupir á
árinu en áður höfðu ítölsku sóknar-
mennirnir Marco di Vaio og Christ-
ian Vieri verið keyptir til félagsins.
CRISTIANO Ronaldo, leikmaður
Manchester United, var í gær úr-
skurðaður í þriggja leikja bann
vegna brots á Andy Cole, leikmanni
Man. City í leik sl. laugardag. Hann
mun missa af bikarleik gegn Burton
í kvöld, deildarleik gegn Liverpool á
Old Trafford um helgina og deilda-
bikarleik gegn Blackburn á miðviku-
daginn 25. janúar.
FÓLK
„Slæmur
tími til að
meiðast“
HANNES Þ. Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, meiddist á
ökkla á æfingu hjá Stoke City síðasta föstudag og er frá keppni í
bili. Hann missti af leik liðsins gegn Watford í 1. deildinni á laugar-
daginn og gegn Tamworth í bikarkeppninni í gærkvöld og þá er ljóst
að hann verður ekki með í næsta deildaleik sem er gegn Hull á
laugardaginn.
Hannes Þ.
Hannes Þ. Sigurðsson frá keppni með
Stoke City vegna ökklameiðsla
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is