Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 4
EM Í HANDKNATTLEIK
4 C FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VILHJÁLMUR Halldórsson kom
til liðs við íslenska landsliðið í
handknattleik í Luzern í Sviss í
gærkvöldi. Hann var kallaður inn
í landsliðið eftir að Jaliesky
Garcia fór til Þýskalands í fyrra-
kvöld þegar í ljós kom að meiðsli
hans voru alvarlegri en talið var.
Vilhjálmur var ásamt samherjum
í danska liðinu Skjern í æfinga-
búðum á Kanaríeyjum.
Ekki er loku fyrir það skotið að
Garcia skjóti upp kollinum á nýj-
an leik á meðal íslensku lands-
liðsmannanna áður en keppnin í
Sviss er úti eftir því sem næst
verður komist. „Það getur vel
verið að Garcia komi aftur,“
sagði Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, í gærkvöldi.
Roland Eradze markvörður
meiddist á öxl á æfingu í gær-
morgun og er óvíst með þátttöku
hans á EM. Einar vildi ekkert
segja um málið og heldur ekki
hvort Björgvin Gústavsson mark-
vörður yrði kallaður til Sviss í
stað Rolands. „Það kemur í ljós,“
sagði Einar og ætlaði greinilega
ekki að tala af sér. Hann bætti
því þó við að íslenska landsliðið
mætti kalla inn tvo leikmenn í
hópinn kæmist það í milliriðla í
viðbót við þá fimmtán sem þegar
hafa verið skráðir. Þar koma Vil-
hjálmur, Garcia og Björgvin til
greina.
Vilhjálmur
mættur –
Roland er
meiddur
PÓLVERJAR byrja keppnina í A-
riðli EM vel, lögðu Úkraínu 33:24
í gær, og Slóvenar lögðu Sviss-
lendinga við lítinn fögnuð heima-
manna, 29:25. Pólverjar höfðu
frumkvæðið frá upphafi. Úkra-
ínumenn stóðu þó í þeim á upp-
hafsmínútunum, en ekki miklu
lengur, og Pólverjar voru 19:13
yfir í leikhléi og eftirleikurinn
auðveldur.
Svisslendingar byrjuðu vel á
móti Slóvenum og voru 4:6 yfir
eftir tæplega 12 mín. Þá kom fínn
kafli hjá Slóvenum, sem gerðu
níu mörk gegn tveimur mörkum
heimamanna og staðan 13:8.
Þrátt fyrir að ná að minnka mun-
inn í eitt mark, 16:15, í upphafi
síðari hálfleiks náðu heimamenn
ekki að fylgja því eftir og sigur-
inn ekki í hættu hjá Slóvenum.
Óskabyrjun
Pólverja
BÁÐUM leikjunum í D-riðli lauk
með sömu markatölu í gær.
Portúgalar komu virkilega á
óvart og náðu að stríða Króötum
verulega þó svo þeir hafi tapað
21:24. Í síðari leik riðilsins unnu
Rússar lið Norðmanna með sama
mun, 24:21. Rússar voru yfir all-
an tímann á móti Norðmönnum.
Staðan var 12:10 í leikhléi.
Portúgalar gerðu fyrsta mark-
ið í leiknum við Króata en í kjöl-
farið fengu þeir á sig fimm mörk
í röð. Þeir létu samt ekki bugast
og með því að gera fjögur síðustu
mörkin í fyrri hálfleik náðu þeir
að jafna, 11:11. Króatar voru of
sterkir fyrir Portúgala en ljóst að
baráttan milli þeirra og Norð-
manna verður væntanlega hörð.
Sama
markatalan
Ég er gríðarlega ánægður meðhvernig leikmenn liðsins tóku á
þessu verkefni, þeir töluðu ekki bara
um hlutina, þeir framkvæmdu og
gerðu það sem gera þurfti, liðsandinn
og baráttan voru í einu orði sagt frá-
bær,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálf-
ari íslenska landsliðsins, eftir sigur-
inn og hann ljómaði af gleði enda liðið
komið yfir fyrstu hindrunina í C-riðli
Evrópumótsins. En í kvöld mætir ís-
lenska liðið Dönum, sem sigruðu
Ungverja í gær.
Fjórir leikmenn létu mest að sér
kveða í íslenska liðinu: Ólafur Stef-
ánsson, Snorri Steinn Guðjónsson,
Guðjón Valur Sigurðsson og mark-
vörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson
fóru fremstir í flokki að þessu sinni og
var sérstaklega gaman að sjá Ólaf
láta til sín taka í sóknarleiknum –
hann gaf tóninn og þeir Snorri og
Guðjón Valur tóku við keflinu í fram-
haldinu. Sigur íslenska liðsins er gríð-
arlega gott veganesti fyrir næstu
verkefni liðsins. Varnarleikurinn var
mun betri en gegn Frökkum í æfinga-
leikjum um sl. helgi og í kjölfarið náði
Birkir Ívar Guðmundsson sér vel á
strik í íslenska markinu
Fyrri hálfleikur frábær
„Við áttum að ganga frá þeim mun
fyrr í síðari hálfleik en fyrri hálfleik-
urinn var alveg frábær hjá okkur og
leikurinn hraður og skemmtilegur,“
sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari ís-
lenska landsliðsins, og var að sjálf-
sögðu mjög sáttur við byrjun íslenska
liðsins á EM. „Það var kafli um miðj-
an síðari hálfleik sem var ekki nógu
góður hjá okkur. Við fórum illa með
tækifærin á þeim tíma, gerðum mikið
af mistökum sem hefðu átt að enda
með mörkum.“
Gamli góði Óli
Þjálfarinn hrósaði öllum leikmönn-
um liðsins en taldi að nokkrir þeirra
hefðu leikið gríðarlega vel þegar mest
á reyndi. „Snorri Steinn Guðjónsson
var gríðarlega góður í þessum leik,
hann skoraði mörk á mikilvægum
augnablikum í síðari hálfleik – þegar
mest blés gegn okkur. Snorri sýndi
hvers hann er megnugur. Óli (Ólafur
Stefánsson) var einnig í sérflokki –
gamli góði Óli mættur til leiks – og
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði úr
þeim færum sem hann fékk. Ekki má
gleyma markverðinum Birki Ívari,
hann varði mikið í fyrri hálfleik, sem
varð til þess að við fengum hraðaupp-
hlaup.“
Viggó var ánægður með upphafs-
kafla leiksins þrátt fyrir að íslenska
liðið hafi verið lengi í gang og gert
mistök. „Við höfum átt það til að vera
lengi í gang en ég var ánægður með
hvernig strákarnir unnu sig út úr
þeim vandamálum sem þeir glímdu
við. Spennustigið er alltaf hátt í svona
leik – fyrsti leikurinn á stórmóti – og
skiljanlegt að eitthvað fari úrskeiðis.
En fyrri hálfleikurinn var gríðarlega
góður að mínu mati hjá okkur, mark-
varslan og vörnin frábær, og ég held
ég geti sagt að allt liðið hafi leikið eins
og það gerir best. Vissulega eiga sum-
ir leikmenn eitthvað meira inni, Arn-
ór Atlason náði ekki að skora en ég
veit að hann mun eflast í næstu leikj-
um okkar,“ sagði Viggó en hann var
afar ósáttur við mark sem Serbar
skoruðu undir lok fyrri hálfleiks –
beint úr aukakasti þegar ein sekúnda
var eftir af leiknum. „Stórfurðuleg
ákvörðun hjá eftirlitsdómaranum að
dæma gilt mark þegar hvorugur
dómari leiksins dæmdi mark. Ég get
ekki skilið þessa ákvörðun þeirra og
það var einnig undarlegt að Serbarnir
fengu að vera í 15 mínútur inni í klefa
í hálfleik á meðan við vorum reknir af
stað eftir 10 mínútur. Svona á ekki að
gerast á móti sem þessu, enda var það
tekið skýrt fram á fundi fyrir mótið að
liðum sem mættu of seint til leiks í
síðari hálfleik yrði refsað. En það
gerðist ekki.“
Viggó svaf illa nóttina
fyrir leikinn
Viggó viðurkennir að hann hafi ver-
ið spenntur fyrir fyrsta leikinn og
ekki sofið vel nóttina fyrir leikinn
gegn Serbum. „Ég var spenntur og
aðeins órólegur. Við lékum illa gegn
Frökkum um síðustu helgi og mér
fannst vera þreyta í liðinu. Ég held að
við höfum haft rétt fyrir okkur því í
þessum leik var allt annað að sjá til
liðsins. Serbarnir léku afar gróft í síð-
ari hálfleik og ég skil ekki af hverju
rauða spjaldið fór ekki á loft í tvígang,
þar sem rifið var í skothöndina á Guð-
jóni Val og Alexander Pettersson.
Það er bara ein refsing við slíkum
brotum – rautt spjald. Óli (Ólafur
Stefánsson) er einnig lemstraður eftir
ljótt brot sem var viljaverk og ég hef
áhyggjur af slíkum hlutum.“
Vujovic: Íslendingar skynsamir
Á fundi með fréttamönnum eftir
leikinn í gær sagði Veselin Vujovic,
þjálfari Serbíu/Svartfjallalands, að
hann myndi ekki eftir því að lið frá
Júgóslavíu eða Serbíu hefði fengið 36
mörk á sig. Hann sagði að varnarleik-
ur íslenska liðsins hefði verið góður
og leikmenn hefðu einnig brugðist
rétt við þegar varnarmenn Serbíu
hófu að leika vörnina langt úti á velli.
„Ég held að íslenska landsliðið hafi
ekki getað gert slíka hluti þegar ég
lék með landsliðinu. Þeir voru mjög
skynsamir í leik sínum,“ sagði Vujo-
vic.
Eins og áður segir stóð íslenska lið-
ið sig afar vel í leiknum í gær og allir
lögðu sitt af mörkum. Vignir Svav-
arsson skoraði tvívegis úr hraðaupp-
hlaupum og Einar Hólmgeirsson kom
á óvart með liprum mörkum úr hægra
horninu. Sigfús Sigurðsson og Róbert
Gunnarsson héldu varnarmönnunum
við efnið á línunni og Alexander Pet-
tersson sýndi fína takta. Hreiðar
Guðmundsson fór í markið undir lok
leiksins og varði þrjú skot og því er
óhætt að segja að íslenska liðið hafi
fengið fljúgandi start á Evrópumeist-
aramótinu. Arnór Atlason á mikið
inni og fékk að leika mikið þrátt fyrir
að hafa gert nokkur mistök.
Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari var ánægður með
sína menn eftir sigurinn á Serbíu/Svartfjallalandi
„Liðsandinn
og baráttan
voru frábær“
FRUMSÝNING íslenska lands-
liðsins í handknattleik á Evrópu-
meistaramótinu í Sviss í gær
tókst vel og 36:31-sigur liðsins
gegn Serbíu/Svartfjallalandi var
mjög sannfærandi. Um tíma var
munurinn á liðunum níu mörk en
Íslendingar gerðu mistök í síðari
hálfleik sem Serbarnir nýttu sér
vel. Munurinn var aðeins þrjú
mörk, 32:29, þegar þrjár mín-
útur voru til leiksloka en ís-
lensku leikmennirnir skoruðu
fjögur mörk gegn tveimur á
lokakaflanum og innbyrtu
gríðarlega mikilvægan sigur.
Ólafur Stefánsson náði sér vel á strik í leiknum gegn Serbum
og fór oft á kostum við að hrella þá.
!"#$
(#
)*!+
,*-*
,
( . /
0
1
2
1
0
2
'3-3
3-3
4
1
+5363 7/ #/89:8
BIRKIR Ívar Guðmundsson
15/1 (þar af 6 aftur til mót-
herja): 7/1 langskot, 2/1 eftir
gegnumbrot, 5/4 af línu, og 1
víti
Hreiðar Guðmundsson 3
(þar af 3 aftur til mótherja):
1/1 langskot, 2/2 af línu.
Daniel Saric 7 (þar af 5 aft-
ur til mótherja): 3/2 langskot,
1 úr horni, 3/3 af línu.
Arpad Sterbik 7/3 (þar af
5/2 aftur til mótherja): 1 lang-
skot, 1/1 gegnumbrot, 2/2 af
línu, 3/2 víti.
Þannig
vörðu þeir
SNORRI Steinn Guðjónsson var í miklum ham
leiknum í gær og var valinn besti leikmaður
lenska liðsins. Fékk hann armbandsúr og súk
laði að launum frá mótshöldurum. Snorri sko
aði alls níu mörk og var hann maðurinn á bak
við mörg önnur mörk í leiknum.
„Þegar við sýnum okkar bestu hliðar held
að við séum virkilega gott lið. Við vissum að
Serbarnir myndu leika framarlega gegn okk
á lokakaflanum og þeir voru afar grófir og
lömdu hressilega á okkur. Við sáum þetta ge
ast í æfingaleik sem þeir léku gegn Slóvenum
þeir þola ekki mótlætið. Sum brögðin sem þe
nota eru ruddaleg og það fengu nokkrir úr o
ar liði að kenna á því. Byrjunin á leiknum var
frekar erfið, bæði liðin gerðu mikið af mistök
en við náðum réttum takti í fyrri hálfleik me
góðri vörn og mörkum úr hraðaupphlaupum
Það skiptir miklu máli í svona leik að fá einfö
mörk og sparar kraftana að þurfa ekki að sti
upp í hverri sókn gegn erfiðri vörn. Við vilju
sjá um það sjálfir að koma okkur í milliriðil o
það gerum við aðeins með því að vinna þessa
leiki. Ekkert lið vill vera í þeirri stöðu að þur
að stóla á úrslit úr öðrum leikjum. Við getum
lokið þessu verkefni með því að spila áfram m
þessum hætti og vinna báða leikina sem eru
framundan,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson
„Voru
afar
grófir“
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson í Sviss
seth@mbl.is