Morgunblaðið - 12.02.2006, Qupperneq 4
4 | 12.2.2006
Í
slenska óperan frumsýndi Öskubusku eftir Rossini með bravör og
er það í fyrsta sinn sem óperuútgáfan af klassíska ævintýrinu er sett
upp hér á landi. Sesselja Kristjánsdóttir er í hlutverki Öskubusku
en það er ,,hönkinn“ Garðar Thór Cortes sem er prinsinn. Að sjálf-
sögðu. Konurnar í salnum tóku andköf þegar hann söng sig inn í hjarta
almúgastúlkunnar. En það var ekki beinlínis sauðsvartur almúgi í sætum
áhorfenda á frumsýningarköldið; Geir Haarde utanríkisráðherra og
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra voru meðal
virðulegra og spariklæddra gesta. Fulltrúar fjölmiðla sátu stillilegir í
hörðum sætunum; eins og nýi DV-ritstjórinn Páll Baldvin Baldvinsson
og Þór Jónsson, varafréttastjóri á Stöð tvö, sem var óperulegur með
snakahvítt bindi um hálsinn. Garðar Cortes faðir kynþokkafyllsta manns
landsins og stjörnunnar á sviðinu, skartaði hins vegar hárauðu bindi af
tilefninu. Í hléinu drakk fólk freyðivín og nartaði pent í konfekt og m.a.
sást til Agnars Jóns Egilssonar leikara og leikstjóra og Magna R. Magn-
ússonar fyrrverandi stórkaupmanns í ástsælu spilaversluninni Hjá
Magna ásamt fínni frú sinni. Rauði ,,dregillinn“ m.ö.o. slitna nælontepp-
ið sem þekur fermeter fyrir utan Óperuhúsið okkar er til skammar.
Flugu finnst að leggja eigi í landssöfnun til styrkar kaupum á alvöru
glamúrdregli sem leggja ætti upp gangstéttina á Ingólfsstræti, frá Hverf-
isgötu til Laugavegar. Þá gætum við stjörnurnar tiplað eftir honum og
veifað til fólksins og ljósmyndaranna.
Það telst til tíðinda í íslenskum listheimi þegar listamennirnir og bræð-
urnir Sigurður og Kristján Guðmundsynir halda sýningar en þeir opn-
uðu á Næsta bar sem er vinsæll samdrykkju- og stefnumótastaður menn-
ingarfólksins. Engar fréttatilkynningar birtust um viðburðinn og því
aðeins á færi þefnæmra listunnenda eins og Flugu, að þefa slíkt uppi. En
það gerðu líka menningarskvísan Birna Þórðardóttir og bræðurnir og
borgarbörnin Hans Kristján og Einar Árnasynir.
Listamaðurinn Birgir Örn Thoroddsen, sem nýlega tók sig til og skipti
um nafn og heitir nú Curver Thoroddsen, opnaði 30 ára yfirlitssýningu á
Nýlistasafninu í tilefni þrítugsafmælis síns. Sýningarstjórinn var ekki af
verri endanum, sjálfur Ragnar Kjartansson, a.k.a. ,,Rassi Prump“.
Fjöldi manns virti spekingslega fyrir sér samansafn af skyndibitaumbúð-
um í hrúgu og póstkortum sem Curver hefur sent sjálfum sér en hann
er m.a. þekktur fyrir gjörninga ýmis konar; skemmst er að minnast
Hamborgaratúrsins og Megrúnarkúrsins. – Verð að benda ykkur á
að frönsk menning fæst nú á aðeins 990 krónur í Rúmfatalagernum
en um er að ræða úrval ,,olíumálverka“. Hum … sjálfsagt einnig til
lágmenning í Frakklandi. Það var einhvers konar menning ríkjandi
í Kringlunni á laugardeginum þegar nær öll þjóðin var saman kom-
in til að gera reyfarakaup á ,,grand finale“ útsalanna. Þarna hefðu
frambjóðendur prófkjaranna átt að vera á bás til að selja kjósendum
í kauphug atkvæði. Söngvarinn Jónsi var þar glaður í bragði með
frúna og krílið. Hann var í svörtum fötum.
Fjölmiðlasprellarinn Guðmundur Steingrímsson Her-
mannssonar stóð í matarinnkaupum um kvöldmatarleytið á laug-
ardaginn, eins og við hinar miðbæjarrotturnar sem verslum
stundum í dýru búðunum í tímaleysinu. Í beljandi rigningu öslaði
Fluga Austurstrætið í geggjaðri svartri, síðri regnkápu. Hvers
vegna kaupa aðrir rennblautir Íslendingar ekki meira af ,,grúví“ regn-
fatnaði? Ég get staðfest að það getur verið ofur skvísulegt og meira að
segja pínu latex-legt, ef vill ... | flugan@mbl.is
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Kolbeinn
Bjarnason og
Ólafur Ragnar
Grímsson. Lj
ós
m
yn
di
r:
S
ka
pt
i H
al
lg
rí
m
ss
on
Ævintýri almúgans
… fjöldi manns virti spekingslega fyrir sér samansafn af skyndibitaumbúðum í hrúgu og póstkortum …
FLUGAN
Í NÝLISTASAFNINU var
30 ára yfirlitssýning
Curvers Thoroddsens.
MYRKIR MÚSÍKDAGAR voru að
hluta haldnir í tónlistarhúsinu
Laugarborg í Eyjafirði.
Jóhannes Rúnar Jóhannsson,
Vilborg Ólöf Sigurðardóttir,
Inga Helga og Markús Klinger.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Ingi Kristján Sigmarsson
og Íris Edda Nowenstein.
Ragnheiður
Eiríksdóttir
og Curver
Thoroddsen.
Hlynur Sigurðsson, Marinó
Sigurðsson og Axel Valur Diego.
Anne Werner, Berglind
Ágústsdóttir og Elíza
Geirsdóttir Newman.
Lilja Hallgríms-
dóttir og Jón Hlöð-
ver Áskelsson.
Þórarinn Stefánsson og
Bjarni Kristjánsson.
Anna María
Cortes, Krystyna
María Cortes
Gunnarsdóttir og
Garðar Cortes.
Ingimar Jónsson og
Sigríður Sandholt.
Margrét Friðriks-
dóttir og Herdís
Óskarsdóttir.
Katarina Th.
Guðmundsdóttir
og María
Aðalsteinsdóttir.
Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI var
óperan Öskubuska eftir
Gioachino Rossini frumsýnd.