Morgunblaðið - 12.02.2006, Qupperneq 6
6 | 12.2.2006
L
jó
sm
yn
di
r:
Á
rn
i S
æ
be
rg
Þ
egar nemendur Gunnars Kvaran sellóleikara leggjast í tónleikaferðalög
er ekki óalgengt að hluti af undirbúningi þeirra felist í því að hringja í
kennarann sinn og biðja hann um að gera sér greiða; að lána þeim
hvítan og stóran kassa, sem líklega er sá eini sinnar tegundar hér á
landi. „Auðvitað er bara sjálfsagt mál að lána þeim kassann,“ segir eigandinn
með áherslu. „Mér finnst mjög gott að hann sé notaður því hann var mjög dýr í
innkaupum á sínum tíma.“
Kassinn sem um ræðir er í raun sellóferðataska sem kona Gunnars, Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari, gaf honum fyrir um 15 árum. Taskan er sérsmíðuð
í Bandaríkjunum undir vörumerkinu Take off og eins og nafnið bendir til er
henni ætlað að vernda dýrmæt hljóðfærin fyrir hnjaski á flugferðum. „Þessi
ótrúlegi kassi er miklu sterkari en venjulegir sellókassar og í honum er útbún-
aður, loftpúðar sem hægt er að blása upp til þess að fá jafnvægi á hljóðfærið inn
í töskunni,“ útskýrir Gunnar. „Að utan er hann járnbentur og geysilega öflugur
og rammgerður. Hins vegar er hann helmingi þyngri en venjulegar sellótöskur
og þess vegna mjög óhentugur til að daglegra nota.“
Ekki er vanþörf á slíkum viðbúnaði þegar taka á hljóðfærið með til útlanda,
ef marka má Gunnar, sem er mikill reynslubolti í þessum efnum. „Maður er
alltaf á barmi taugaáfalls ef maður notar venjulegan sellókassa,“ segir hann. „Ég
veit um fleiri dæmi þar sem fólk hefur lent í því að hljóðfærið var mölbrotið
þegar það var tekið upp eftir flugferðina. Þá hefur því annaðhvort verið hent
inn í farangursgeymsluna, ekki verið skorðað nógu vel eða einhverjir þungir
hlutir farið ofan á það í fluginu. Og þó ekki komi nema ein sprunga á búkinn á
svona hljóðfæri, rýrnar verðgildi þess gífurlega jafnvel þó hægt sé að gera við
það. Sé gripurinn upp á tíu milljónir getur hann auðveldlega hrapað niður um
þrjár, fjórar milljónir í verði við slíkt slys.“
Hálsbrotið eftir hraðahindrun | Sjálfur hefur Gunnar sloppið tiltölulega vel frá
slíkum slysum, með einni undantekningu þó. „Reyndar var það ekki á flugferð
heldur í bíl,“ segir hann. „Þá var sellóið mitt ekki skorðað nægilega vel aftur í
og bílnum var ekið á töluverðri ferð yfir hraðahindrun. Það dugði til þess að
það hálsbrotnaði. Í rauninni var mjög heppilegt að hljóðfærið skyldi hálsbrotna
í staðinn fyrir að búkurinn færi því það er miklu alvarlegra mál. En þegar ég
Hjartabörnin
í kassanum Hvít, járnbent taska íeigu Gunnars Kvaran
sellóleikara er víðförul og
vinsæl til láns
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur