Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 10
10 | 12.2.2006
G löggir gestir á útskrift Háskólans í Reykjavík í janúar síðastliðnumtóku eftir nýjum og glæsilegum viðhafnarskikkjum sem rektor ogdeildarforsetar báru við athöfnina en útskriftin var sú fyrsta síðanskólinn sameinaðist Tækniháskóla Íslands. Skikkjurnar eru
sprottnar úr kolli Guðjóns Sigurðar Tryggvasonar, nema á þriðja og síðasta ári við
fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands, en hann varð hlutskarpastur í samkeppni
sem efnt var til meðal nemenda þar um nýjan viðhafnarklæðnað fyrir HR.
„Þegar skólarnir tveir sameinuðust gaf það tilefni til að endurhugsa allt sem við-
kemur hefðum og siðum,“ segir Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor HR. „Það er hefð
í háskólum út um allan heim að hafa slíkan viðhafnarklæðnað en skikkjurnar sem
við höfðum áður voru upprunnar í Kanada. Okkur fannst
hins vegar mikilvægt að hönnun nýju skikkjanna yrði ís-
lensk og hún hefði tilvísun í íslenskan handverksiðnað.
Því leituðum við til Listaháskólans með þetta verk-
efni. Sömuleiðis vildum við að litir skólans, sem
eru blátt og gyllt, myndu endurspeglast í hönn-
uninni.“
Samkeppnin um viðhafnarklæðin var tvískipt
því annars vegar var óskað eftir því að hannaðar
yrðu skikkjur fyrir rektor og deildarforseta
en hins vegar skikkjur fyrir nemendur
sem þó yrðu ekki saumaðar fyrr en síðar.
Vinningstillaga Guðjóns felur í sér svarta
rektorsskikkju úr svokölluðu ullar-twilli
með borðum úr flaueli og gullbrydd-
ingum, sem vísa til baldýringa á ís-
lenskum þjóðbúningum og embættis-
fatnaði fyrr á tímum. Á enda
borðanna og á baki er merki skólans
bróderað.
Lausar og loftkenndar | „Ég vildi
að skikkjurnar yrðu fágaðar og klass-
ískar án þess þó að vera leiðinlegar,“
segir hönnuðurinn. „Skólinn þarf að
geta notað þær um aldur og ævi eða
svo lengi sem hann starfar. Að því
leyti var þetta svolítið öðruvísi verk-
efni en annað sem við erum að fást
við í skólanum því þar erum við fyrst
og fremst að búa til tískufatnað. Ég
vildi líka frekar hanna þetta sem
skikkjur en einhvers konar kirtla
þannig að það væri meira flæði í þeim
og þær yrðu lausari um sig og loft-
kenndari.“ Hann segir hafa verið nær-
tækast að leita í íslenskan þjóðararf
eftir hugmyndum. „Í þessu tilfelli var
mikilvægt að vinna góða rannsóknar-
vinnu því maður hefur svo skýra
mynd af því hvernig þessum hlutum
er háttað í Bandaríkjunum. Reyndar
er grunnhugmyndin sú sama um
allan heim en ég þurfti að finna góðan íslenskan vinkil og tengingu sem hefði ein-
hverja dýpt.“
Guðjón seilist heldur ekki grunnt í pælingum sínum, a.m.k. ef marka má lýsingu
á rektorsskikkjunni. Á henni eru tveir borðar sem binda skikkjuna saman að fram-
an. Eiga þeir að tákna þá umhyggju og yfirvald sem þarf að samtvinnast í embætti
rektors. „Þessir tveir þættir halda skikkjunni saman, því ef annan vantar fellur hún
af herðum þess sem í henni er og það sýnir fram á mikilvægi þess að jafnvægi þess-
ara þátta ríki.“ Á baki skikkjunnar mynda borðarnir eins konar fléttu utan um
þann þriðja sem stendur fyrir embætti skikkjuberans. Loks sýna borðarnir mik-
ilvægi samvinnu því þrír eru sterkari en einn.
Hönnuðurinn játar að það hafi verið gaman að sjá hug-
myndir sínar verða að veruleika þegar hann var viðstaddur
útskriftina. „Maður tók eftir því að rektor og deildarforseta-
rnir voru beinir í baki og gengu þannig að það sópaði að
þeim í skikkjunum. Það skemmtilega við föt er að þau geta
hreinlega breytt því hvernig fólk ber sig.“
Framundan er lokaverkefni og útskrift hjá Guðjóni og þá
er varla nokkur undankoma að spyrja hvað taki við. „Mað-
ur verður bara að bíða og sjá – ég er með alla möguleika
opna,“ svarar hann æðrulaus. „Þetta veltur voðalega
mikið á því hvar tækifærin bjóðast. Mín reynsla er að
þau koma ef maður vinnur vel, er heiðarlegur og sam-
viskusamur. Þá tekur gott fólk eftir því og hjálpar
manni áleiðis í lífinu.“ | ben@mbl.is
Viðhafnarskikkja
deildarforseta.
Rauðu brydding-
unum var skipt út
fyrir gylltar í loka-
útgáfunni.
Útskriftarskikkja
nemenda eins og
Guðjón sér hana
fyrir sér.
Borðarnir þrír í fléttunni á
baki skikkjunnar tákna um-
hyggju og yfirvald og svo
embætti þess sem hana ber.
Guðjón Sigurður Tryggvason, nemi í fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands, varð hlutskarpastur
í samkeppni um nýjan viðhafnarklæðnað á rektor og deildarforseta við Háskólann í Reykjavík
NÝJA SKIKKJAN
SKÓLAMEISTARANS
L
jó
sm
yn
di
r:
B
ry
nj
ar
G
au
ti
„Það skemmtilega við
föt er að þau geta hreinlega
breytt því hvernig fólk ber sig.“
Guðjón sléttar
úr skikkju skóla-
meistarans Guðfinnu
Bjarnadóttur.
Texti Bergþóra Njála Guðmundsdóttir Ljósmyndir Brynjar Gauti