Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 16
SONY kynnti á dögunum nýa gerð af bíl-
útvarpi með MP3-stuðningi,
MEX1GP. Til að koma músík í
tækið smella menn einfaldlega
framhliðinni af og stinga henni
svo í samband við tölvu með
venjulegu USB-tengi. Í
framhliðinni er nefnilega
innbyggður MP3-spilari
með 1 GB minni, sem ætti
að duga fyrir allt að 60 tíma
af tónlist eftir þjöppun. Ekki
þarf sérstakan hugbúnað til að
lesa MP3-skrárnar á milli, sem er
óneitanlega merkilegt í ljósi þess hver
framleiðandinn er. Einnig er í útvarpinu innbyggður geislaspilari.
Spilastokkur í bílinn
HÁTÆKNIBRENNSLA
Þó DVD-spilarar séu til margs brúklegir sakna margir þess að geta ekki tekið upplíkt og var hægt með gamla myndbandinu. Þeim spilurum sem það geta fjölgar þóog Pioneer DVR-433H er gott dæmi um það hvert tæknin er komin á því sviði.
Ekki er bara að hann geti tekið upp á DVD-diska heldur er líka innbyggður í spilarann 80
GB harður diskur sem hægt er að safna efni á, allt að 227 klukkutímum af sjónvarpsefni.
Spilarinn spilar eiginlega allar gerðir af geisladiskum og DVD-diskum, brennda og
steypta; DVD-Video, DVD-R, DVD-RW, Dual-layer DVD-R, DVD-RAM, DVD+R, DL
DVD+R, DVD+RW, CD, SVCD, VCD, CD-R og CD-RW. Hann brennir VR/Video mode
DVD-R, DVD-RW, DVD-R, DVD-RW, Dual-layer DVD-R og venjulega diska, en á DL
DVD-diska er hægt að koma allt að 24 tímum af sjónvarpsefni eftir gæðum. Spilarinn styð-
ur PAL/NTS.
Mjög einfalt er að setja spilarann upp og notkun er að sama skapi einföld. Valmynd fyrir
upptöku er skýr og þægilegt að taka upp á harða diskinn. Þegar upptökur eru síðan skoð-
aðar er hægt að sjá í valmyndinni smámyndir með því sem á diskinum er, horfa síðan á það
eða brenna á disk.
Spilarann má líka nota fyrir tónlist, til að mynda er hægt að „rippa“ tónlistardiska beint
inn á harða diskinn í honum, og líka einfalt að afrita myndir þannig að á einum stað má
geyma músík heimilisins, stafrænar ljósmyndir og svo sjónvarpsefnið.
Pioneer DVR-433H fæst hjá Ormsson og kostar þar 54.900 kr.
GRÆJUR | ÁRNI MATTHÍASSON
Nýi SANYO PLV Z4
MYNDVARPINN hef-
ur fengið fína dóma
um heim allan og
gjarnan kallaður
bylting í myndvarpa-
framleiðslu. Bylting-
in felst ekki síst í því
að hann notar LCD-
tækni en skákar þó
DLP-myndvörpum í gæðum og verði. Því hefur verið haldið fram
að LCD-myndvarpar muni ekki hafa roð við DLP-varpa í mynd-
gæðum, enda sé DLP-tæknin fullkomnari þó hún sé almennt dýr-
ari. Þessi nýi Sanyo myndvarpi afsannar þetta, því ekki er bara að
hann er með bestu 720p-myndvörpum, heldur er hann líka mun
ódýrari en sambærilegi 720p-myndvarpar. Skerpa í honum er
7000:1, sem er býsna gott, og birtan 1000 lumen.
Sanyo PLV-Z4 fæst meðal annars hjá Skjavarpi.is og kostar þar
189.900 kr.
Byltingarkenndur myndvarpi
Ítarlegri leit | Panta auglýsingu | Vinsælustu leitirnar | Mínar auglýsingar | Spurt og svarað | Setja í leitarstiku | Emblan þín!
Íslenska leitarvélin
Embla, íslenski leitarvefurinn á mbl.is hefur svo sannarlega slegið í gegn. Ekkert skrítið við það því Embla er umfangsmesta íslenska
leitarvélin og jafnast í leitargetu á við það sem best þekkist hjá erlendum leitarvélum og búin einstökum eiginleikum fyrir íslenskar aðstæður.
Embla kann skil á beygingum íslenskra orða. Sé slegið inn orðið „hestur“ skilar hún einnig niðurstöðum úr texta sem inniheldur
beygingarmyndirnar „hest“, „hesti“ og „hests“. Embla leiðréttir einnig innsláttarvillur í íslenskum orðum sem slegin eru inn þegar leit er
framkvæmd og býður upp á ítarlegri leit til að ná fram enn betri niðurstöðum.
Emblaðu á íslensku leitarvélinni á mbl.is