Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 23
LJÚFUR
SVEFN Í
GÓÐU
RÚMI
Skeifunni 6, sími 5687733 / fax 5687740, epal@epal.is, www.epal.is
Góður
nætursvefn skiptir megin-
máli í nútímaþjóðfélagi þar sem
hraðinn er mikill og kröfurnar
enn meiri. Þess vegna er rétt
að líta á Wonderland-rúmin í
Epal þegar kaupa á rúm
sem gefur góða
hvíld.
Wonderland-rúmin eru norsk framleiðsla sem
byggir á hátt í 40 ára reynslu góðra fagmanna
en hér á landi hafa rúmin verið seld í Epal í tíu ár.
Í dýnunum eru svokallaðir pokagormar sem gefa
staðbundið eftir undan þunga þess sem í rúminu
hvílist. Stífleiki dýnanna er svæðisskiptur þannig
að mýkra er undir öxlum og kálfum en það gerir
svefninn enn ljúfari. Dýnukantar eru stífir svo
þægilegt er að setjast á rúmstokkinn.
Gæðaefni eru í Wonderland-
dýnunum og tryggt að í þeim séu
engin ofnæmisvaldandi eða skaðleg
efni. Auk þess er rétt að benda á
að auðvelt er að taka utan af öllum
dýnum og þvo þær við 60°C.
Wonderland-dýnurnar fást í
fjórum stífleikum, verin fást í ýmsum
litum og svo er að sjálfsögðu hægt
að velja sér rafstillanlega botna
svo auðvelt er að sitja eða liggja í
rúminu á þægilegan hátt.