Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 23
LJÚFUR SVEFN Í GÓÐU RÚMI Skeifunni 6, sími 5687733 / fax 5687740, epal@epal.is, www.epal.is Góður nætursvefn skiptir megin- máli í nútímaþjóðfélagi þar sem hraðinn er mikill og kröfurnar enn meiri. Þess vegna er rétt að líta á Wonderland-rúmin í Epal þegar kaupa á rúm sem gefur góða hvíld. Wonderland-rúmin eru norsk framleiðsla sem byggir á hátt í 40 ára reynslu góðra fagmanna en hér á landi hafa rúmin verið seld í Epal í tíu ár. Í dýnunum eru svokallaðir pokagormar sem gefa staðbundið eftir undan þunga þess sem í rúminu hvílist. Stífleiki dýnanna er svæðisskiptur þannig að mýkra er undir öxlum og kálfum en það gerir svefninn enn ljúfari. Dýnukantar eru stífir svo þægilegt er að setjast á rúmstokkinn. Gæðaefni eru í Wonderland- dýnunum og tryggt að í þeim séu engin ofnæmisvaldandi eða skaðleg efni. Auk þess er rétt að benda á að auðvelt er að taka utan af öllum dýnum og þvo þær við 60°C. Wonderland-dýnurnar fást í fjórum stífleikum, verin fást í ýmsum litum og svo er að sjálfsögðu hægt að velja sér rafstillanlega botna svo auðvelt er að sitja eða liggja í rúminu á þægilegan hátt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.