Morgunblaðið - 12.05.2006, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 2006 B 7
bílar
Toyotasalurinn - Njarðarbraut 19 - Reykjanesbæ
421 4888 421 4888
Toyota Land Cruiser 120 VX
dísel. Nýskr. 12/2005, ekinn 11 þ.
km, sjálfsk., 8 m., 33" breyttur,
aukasæti, filmur, krókur, þver-
bogar. Verð 5.700.000. Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 120 LX
dísel. Nýskr. 9/2004, ek. 33 þ. km,
sjálfsk., 35" br. m. 15" felgum,
krókur, varad.hlíf, filmur, gl.vindhl.
o.fl. Verð 4.700.000. Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 120 LX
dísel. Nýskr. 6/2003, ekinn 60 þ.
km, sjálfskiptur, 35" breyting,
filmur, krókur, varadekkshlíf.
Verð 4.290.000.
Lexus RX 300 Sport Nýskr.
8/2001, ekinn 70 þ. km,
sjálfskiptur, leður, filmur
loftbóludekk. Verð 2.850.000.
Ath. skipti.
Lexus RX 300 EXE NEW Nýskr.
6/2003, ekinn 56 þ. km,
sjálfskiptur. Verð 4.100.000.
Ath. skipti.
Infiniti FX-35 3500 bensín. Nýskr.
1/2005, ekinn 23 þ. m., sjálfskiptur
bíll með gersamlega ÖLLU.
Verð 4.870.000. Ath. skipti.
REYKJANESBÆ
Toyota Land Cruiser 100 new
4.2 dísel. Nýskr. 12/2002, ekinn
95 þ. km, sjálfskiptur, intercooler,
tölvukubbur, leður, lúga. Bíll með
öllu. Verð 5.300.000. Ath. skipti.
Toyota Hilux D/C dísel. Nýskr.
3/1999, ekinn 155 þ. km, 33"
breyttur, krókur, pallhús.
Verð 1.490.000.
Kia Sorento EX 2.5 TDi Nýskr.
8/2005, ekinn 13 þ. km,
sjálfskiptur, krókur, leður. Verð
2.990.000.
Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 90 GX dísel
Common Rail. Nýskr. 10/2002,
ekinn 59 þ. km, sjálfskiptur,
krókur. Verð 3.100.000. Ath. skipti.
Bíllinn er sem nýr.
Toyota Land Cruiser 90 VX dísel
Common Rail. Nýskr. 10/2001,
ekinn 85 þ. km, sjálfskiptur,
krókur, 33" breyttur, samlitur.
Verð 2.890.000.
Toyota Land Cruiser 90 VX dísel.
Nýskr. 2/1997, ekinn 293 þ. km,
sjálfskiptur, krókur. Verð
1.350.000. Ath. skipti.
Toyotasalurinn.is
Spurt: Ég var að kaupa nýjan Santa
Fe-jeppling með dísilvél. Hjá um-
boðinu var mér sagt, þegar ég spurði
um olíuskipti, að einu sinni á ári eða
á 15 þúsund km fresti væri reglan.
Er það óhætt?
Svar: Ef til vill er það óhætt en ég
myndi ekki telja það skynsamlegt.
Sparnað í smurolíuskiptum, sér-
staklega á dísilvél við okkar að-
stæður (hitasveiflur), tel ég vera
vondan bisness. Mín reynsla er sú að
hagkvæmast sé að nota ódýra smur-
olíu og endurnýja hana oft frekar en
dýra smurolíu og endurnýja sjaldn-
ar. Á dísilvél myndi ég skipta um ol-
íu og síu á 5.000 km fresti og á 8.000
km fresti á bensínvél. Það vill
gleymast að eftirlitið, sem fylgir ol-
íuskiptum á betri smurstöðvum, er
mikilvæg forvörn sem oft getur
komið í veg fyrir dýrar viðgerðir.
(Smurstöðvar mættu gera meira af
því að auglýsa þann þátt þjónust-
unnar). Það þarf ekki mikið að ger-
ast til að viðgerðarkostnaður hlaupi
á hundruðum þúsunda króna og því
er kostnaður við tíðari olíuskipti
ódýr trygging, að mínu mati, sem ég
byggi m.a. á notkun og reynslu af
dísilbílum sl. 25 ár og tæplega hálfr-
ar milljónar km akstri.
Lituð dísilolía
Spurt: Hvernig er það með litaða
dísilolíu … ég var að spá í dísilbíl og
eigandinn sagði mér að hann hefði
notað litaða vinnuvélaolíu til að
spara sér útgjöld. Hefur lituð olía
einhver áhrif á vélina? Mér líst illa á
að kaupa eitthvað sem er merkt eða
ólöglegt!
Svar: Dísilolían er sú sama, lituð
eða ólituð. Hafi verið notuð lituð olía
á bílinn, en það er ólöglegt og varðar
sektum eins og flestum er kunnugt,
losnar liturinn ekki úr geyminum
fyrr en eftir dúk og disk og eins víst
að þú gætir lent í vondum málum
þess vegna; t.d. gætir þú lent í mikl-
um vandræðum með að sanna að lit-
urinn væri leifar af lögbroti fyrri
eiganda!
Lágt drif eða ekki
Spurt: Þegar árgerðir 2005 og 2006
af Jeep Grand Cherokee eru sagðar
vera 4x4 – þýðir það að þeir bílar séu
með háu og lágu drifi eins og eldri
gerðirnar t.d. árgerð 1995? Getur þú
jafnframt sagt mér hver sé munur á
Quadra-Trac I og II í þessum bílum?
Svar: Á bandaríska markaðnum
eru flestir svokallaðir sportjeppar
(SUV) fáanlegir með drif einungis á
afturhjólunum (2WD) eða með fjór-
hjóladrifi (4x4). Þótt nýlegur Jeep
Grand Cherokee sé sagður 4x4 er
ekki þar með sagt að hann sé með
bæði hátt og lágt drif. Quadra-Trac I
þýðir að bíllinn er með sítengt aldrif
en einungis með hátt drif. Quadra-
Trac II er með hátt og lágt sítengt
aldrif. En Quadra-Trac II er fáan-
legt í tveimur útfærslum; annars
vegar með aflmiðlun (spólvörn), sem
beitir ABS-kerfinu (brake traction
control), en hins vegar með rafeinda-
stýrðri seiglæsingu í mismunardrifi
að framan og aftan og í millikass-
anum. Það síðastnefnda nefnist, til
aðgreiningar, Quadra-Drive II.
Munurinn á þessum drifkerfum er
töluverður en mest munar um að
bíllinn með spólvörninni, sem byggð
er á ABS-kerfinu (þ.e. Quadra-Trac
II), eyðir meiru en sá sem er með
Quadra-Drive II.
Spurt er …
Olíuskipti – hve oft?
Morgunblaðið/Sverrir
Ekki ætti að spara við sig í olíuskiptum – síst á dísilvélum.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn