Morgunblaðið - 19.05.2006, Síða 4

Morgunblaðið - 19.05.2006, Síða 4
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í blaki leikur í fyrsta sinn í níu ár hér á landi í dag þegar liðið mætir Skotum í Evrópukeppni smáþjóða. Íslenska landsliðið hefur trúlega aldrei verið sterkara enda hefur íþróttinni fleytt mikið fram hér á landi hin síðari ár og liðið hefur æft af miklu kappi fyrir þetta mót. Auk Íslands og Skotlands eru Færeyingar og Kýpurbúar í riðlinum sem leikinn verður í Digranesi. Tvö lið komast áfram í úrslitakeppnina sem fram fer í Skotlandi á næsta ári og er markið sett á að kom- ast þangað. Vitað er að róð- urinn verður erfiður því Kýp- urbúar eru trúlega með sterkasta liðið en hin þrjú munu væntanlega berjast um annað sætið. Leikur Íslands og Skotlands hefst klukkan 20 og klukkan 18 leika Færeyingar og Kýpurbúar en íslenskur þjálf- ari, Magnús Aðalsteinsson, sér um þjálfun færeyska liðsins. Níu ára bið eftir landsleik á enda CELTIC varð 16. liðið til að tryggja sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á næstu leiktíð en skosku meist- ararnir fengu farseðilinn eftir sigur Barcelona á Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildar- innar í fyrrakvöld. 32 félög komast í riðla- keppnina og liðin 16 sem eru örugg eru: Anderlecht, Barce- lona, Bayern München, Bor- deaux, Celtic, Chelsea, Juven- tus, Lyon, Manchester United, AC Milan, Olympiakos, Porto, PSV Eindhoven, Real Madrid, Sporting Lissabon og Werder Bremen. Liverpool og Arsenal í 3. umferðina Ensku liðin Arsenal og Liverpool hefja keppni í 3. um- ferð forkeppninnar en sigur- liðin komast í riðlakeppnina. Liðin sem taka þátt í 3. um- ferðinni eru: AEK, Ajax, Ars- enal, Austria Vín, Benfica, CSKA Moskva, Fiorentina, Galatasaray, Hamburg, Inter Milan, Lille, Liverpool, Mac- cabi Haifa, Osasuna, Shaktar Donetsk, Slovan Liberec, Standard Liege og Valencia. Í 2. umferð forkeppninar taka þátt lið á borð við Våler- enga sem Árni Gautur Arason leikur með og Djurgården, lið Kára Árnasonar og Sölva Geirs Ottesen. Íslandsmeistarar FH hefja þátttöku í 1. umferð forkeppn- innar. Sextán klár í Meistara- deildina Tim Duncan fór mikinn í San Ant-onio og gerði 36 stig. Hann setti met í úrslitakeppninni þegar hann hitti úr fyrstu tólf skotum sínum. Duncan tók 12 fráköst. Tony Parker gerði 27 stig. Þrátt fyrir sigurinn eru meistararnir enn undir í einvíginu en þeir hafa nú endurheimt sjálfs- traustið og þá getur allt gerst. Heimamenn í Spurs voru með 60% skotnýtingu í leiknum og til alls lík- legir. Sjötti leikur liðanna verður einnig í San Antonio en ef kemur til oddaleiks verður hann í Dallas. Nick Nowitzki var í stuði í liði Dallas í fyrrinótt og gerði 31 stig. Hann tók einnig tíu fráköst í leikn- um. Manu Ginobili, sem var í byrjunar- liði Spurs á ný eftir að hafa verið á bekknum í síðustu tveimur leikjum, gerði 18 stig. Hann fór á vítalínuna í lokin en hitti aðeins úr öðru skotinu – en það dugði því þetta reyndist sig- urstigið. James kominn í stuð LeBron James gerði 32 stig fyrir Cleveland þegar liðið vann Detroit 86:84 í fimmta leik liðanna og þar með tók Cavaliers 3-2 forystu í ein- víginu. Hann átti einnig stoðsend- inguna á Drew Gooden í lokin þegar hann tryggði sigurinn. Sjötti leikur- inn verður í Michigan en komi til oddaleiks færa liðin sig yfir til Detroit. Leikmenn Cleveland hafa sýnt ótrúlega mikinn styrk því liðið tapaði fyrstu tveimur leikjunum fyrir Detroit og það með tölverðum mun þannig að menn töldu nokkuð ljóst að Pistons kæmist auðveldlega í úr- slitin. En annað er komið á daginn. Cleveland hefur unnið þrjá leiki í röð og er 3-2 yfir í einvíginu. Meistararnir ekki á því að gefast upp MEISTARAR San Antonio Spurs eygja enn von um að komast í úrslit vesturdeildarinnar í NBA körfunni. Liðið lagði Dallas Mavericks 98:97 í fyrrinótt og staðan í einvígi liðanna er 3-2 fyrir Dallas. Þá tók Cleveland 3-2 forystu í baráttunni við Detroit í austurdeildinni. Reuters LeBron James fagnar naumum sigri Cleveland á Detroit. „ÉG viðurkenni að ég var of fljótur á mér að flauta en ég var algjörlega með það á hreinu hvað gerðist. Markvörðurinn tók framherjann niður og ég blés í flautuna án þess að sjá hvert boltinn fór. Eftir á að hyggja hefði ég átt að bíða í nokkr- ar sekúndur áður en ég tók þá ákvörðun að flauta. Þetta var óheppilegt en hlutirnir gerðust afar hratt,“ sagði norski knattspyrnu- dómarinn Terje Hauge í viðtali við norska blaðið Verdens Gang í gær. Atvikið sem um ræðir er þegar Jens Lehmann markvörður Arsen- al felldi framherjann Samuel Eto’o þegar hann var sloppinn einn í gegn í úrslitaleik Barcelona og Ars- enal í úrslitaleik Meistaradeildar- innar í fyrrakvöld. Í kjölfarið barst boltinn til Ludovic Giuly sem sendi boltann í tómt mark Arsenal en andartaki áður hafði Hauge flautað svo markið stóð ekki. Lehmann fékk hins vegar reisupassann og Börsungar aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Hneyksli að UEFA skildi velja Hauge Fjölmargir sparkspekingar hafa harðlega gagnrýnt Hauge fyrir frammistöðu hans í leiknum og meðal þeirra er Paul Merson, fyrr- um liðsmaður Arsenal, sem lýsti leiknum á Sky-sjónvarpsstöðinni. ,,Við erum að tala um heimsins stærsta leik á milli félagsliða og að UEFA skuli hafa valið Hauge til að dæma er hneyksli,“ sagði Merson. Hauge er á öðru máli. Ánægður með frammistöðuna ,,Við höfðum full tök á leiknum og ég er yfir höfuð ánægður með frammistöðu mína. Ég get vel skilið gremju Arsenal-manna enda sárt að tapa svona stórleik,“ sagði Hauge við norska blaðið Dagbladet en hann var ekki valinn í hóp þeirra dómara sem dæma á HM í sumar. Reuters Jens Lehmann, markvörður Arsenal, grípur í fót Samuel Eto’o, sóknarmanns Barcelona, í úrslita- leiknum í fyrrakvöld á Stade de France í París þegar Eto’o var rétt að komast gegn opnu marki. Var of fljótur á mér FÓLK  THEÓDÓR Elmar Bjarnason og Kjartan Finnbogason eru í hópi tíu leikmanna frá skoska knattspyrnu- félaginu Celtic sem taka þátt í árlegu móti í Hong Kong á næstu dögum. Þar er leikið í sjö manna liðum en á nokkuð stórum velli og Celtic er í riðli með PSV Eindhoven, Hong Kong FC og Shanghai Shooters frá Kína. Með- al þátttökuliða á mótinu eru einnig Arsenal, Manchester United, Aston Villa og Southampton.  THEÓDÓR Elmar og Kjartan hafa leikið með Celtic í hálft annað ár. Theódór Elmar er að ganga upp úr unglingaliðinu nú í sumar. Kjartan var í varaliði Celtic í vetur en missti af stærstum hluta tímabilsins þar sem hann meiddist í tvígang.  MARKÚS Máni Michaelsson Maute skoraði tvö mörk þegar lið hans Düsseldorf tapaði 34:24, fyrir Kronau/Östringen í þýsku 1. deild- inni í handknattleik í fyrrakvöld. Gunnar Berg Viktorsson lék með Kronau/Östringen í leiknum en tókst ekki að skora mark.  VIÐ tapið féllu Markús og samherj- ar niður í 16. sæti deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir. Liðið, sem endar í 16. sæti þegar upp verður staðið, leikur tvo leiki um sæti í 1. deildinni við það lið sem hafnar í 2. sæti í 2. deild í fyrri hluta júní, um svipað leyti og íslenska landsliðið leik- ur við Svía í undankeppni HM í hand- knattleik.  ARPAD Sterbik, handknattleiks- maður ársins 2005 hjá Alþjóða hand- knattleikssambandinu og markvörð- ur og samherji Ólafs Stefánssonar hjá Ciudad Real, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2014. Sterbik er 27 ára og aðalmark- vörður serbneska landsliðsins. Fá- heyrt er að íþróttamenn geri svo langa samninga við félög.  SILJA Úlfarsdóttir, hlaupakona úr FH, hefur þekkst boð um að taka þátt í 400 m grindahlaupi í hinu þekkta og vinsæla frjálsíþróttamóti í Hengalo í Hollandi um aðra helgi.  DANISLAV Jevtic, serbneskur knattspyrnumaður sem kom til liðs við úrvalsdeildarlið Víkings í vor, hef- ur verið lánaður til 2. deildar liðs Aft- ureldingar. Jevtic er sóknarmaður en þótti ekki sterkari en þeir leik- menn sem fyrir voru í röðum Víkinga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.