Morgunblaðið - 13.08.2006, Page 9

Morgunblaðið - 13.08.2006, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2006 C 9 Langanesbyggð er sameinað sveitarfélag Skeggjastaða- og Þórshafn- arhrepps og þar búa um 550 manns í sérlega fjölskylduvænu um- hverfi. Undirstaða atvinnulífsins er öflugur sjávarútvegur - veiðar og vinnsla - sem hefur tryggt sig í sessi undanfarin ár og skapað forsendur fyrir aukinni þjónustu sveitarfélagsins. Gott og ódýrt íbúð- arhúsnæði er til staðar. Atvinnuástand er gott og því tiltölulega auðvelt um vinnu fyrir maka og sumarvinnu fyrir unglinga. Í sveitarfé- laginu er öll almenn þjónusta, góður leikskóli og glæsileg íþróttamið- stöð ásamt sundlaug með aðstöðu fyrir alla aldurshópa. Fjölbreyttir útivistarmöguleikar eru til staðar í ósnortinni náttúru. Samgöngur eru góðar, m.a. er flug fimm daga vikunnar til Þórshafnar frá Reykja- vík um Akureyri. Eftirtalin störf eru laus til umsóknar hjá sveitarfélaginu Langanesbyggð: Fulltrúi sveitarstjóra! Laust er til umsóknar starf fulltrúa sveitarstjóra Langanesbyggðar með aðsetur á Bakkafirði. Um er að ræða nýtt starf og felast helstu verk- efnin í því að vinna, ásamt sveitarstjóra, að því að framfylgja þeirri stefnu er mörkuð var við sameiningu sveitarfélaganna Skeggja- staða- og Þórshafnarhrepps sl. vor. Fulltrúi sveitarstjóra mun sinna ýmsum sérverkefnum sem honum verða falin af sveitarstjóra s.s. á sviði atvinnu- og umhverfismála, vinnu við fjárhagsáætlunargerð og innra eftirlit auk þess að sinna starfi sveitarstjóra í hans fjarveru. Fulltrúi sveitarstjóra mun hafa aðsetur á Bakka- firði og veita skrifstofu Langanesbyggðar þar forstöðu. Umsækjendur skulu hafa haldgóða menntun á sviði viðskipta og/eða reynslu af störfum á þessum vettvangi. Leitað er eftir einstaklingi með frumkvæði sem er tilbúinn til að takast á við krefjandi en um leið spennandi verkefni í samfélagi sem er í mótun. Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, sveitarstjóri, í síma 468 1220, einnig má hafa samband um tölvupóst í bjorn@thorshofn.is. Íþrótta- og tómstundafulltrúi! Laust er til umsóknar starf íþrótta- og tóm- stundafulltrúa Langanesbyggðar með aðsetur á Þórshöfn. Um er að ræða nýtt starf og felast helstu verk- efnin í því að samræma og efla starfsemi íþrótta- og æskulýðsfélaga í sveitarfélaginu ásamt því að sinna forvarnarstarfi í samvinnu við vímuvarnarráð og vinna almennt að eflingu hvers konar félagsstarfsemi í sveitarfélaginu. Umsækjendur skulu hafa menntun á sviði íþrótta- og tómstundamála og/eða reynslu af störfum á þessum vettvangi. Leitað er eftir einstaklingi með frumkvæði sem er tilbúinn til að takast á við krefjandi en um leið spennandi verkefni í samfélagi sem er í mótun. Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, sveitarstjóri, í síma 468 1220, einnig má hafa samband um tölvupóst í bjorn@thorshofn.is. Deildarstjóri við leikskólann Barnaból á Þórshöfn Á leikskólanum eru um 40 börn á aldrinum 1½ til 5 ára. Boðið er upp á mismunandi langan vistunartíma og mat í hádegi. Unnið er að markvissri uppeldisstefnu við skólann og stefnt að nánu samstarfi leik- og grunnskóla til að tryggja börnunum sem besta þjónustu. Okkur vantar leikskólakennara til starfa Ef þetta er eitthvað fyrir þig? Hafðu þá sam- band við Steinunni Guðnadóttur leikskólastjóra í símum 468 1303 og 845 1191 eða Björn Ingi- marsson sveitarstjóra í síma 468 1220. Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til og með fimmtudagsins 31. ágúst nk. og skal senda umsóknir á skrifstofu Langanesbyggðar, Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn. Bókhald Bókari með mikla reynslu getur bætt við sig verkefnum. Upplýsingar í síma 698 9160.                                    !             !      !                        !           "         #$$$    %                                                        !          ""   "  #                $ %  &''() *+  %,- %   &''(   ""                     ")    )       ! ""             )  "             .          )   /)   /                      #0 1234   ) #0) 5 6 !         %,-                                             )   ) "         " 7  "" !      8  8  9 1 :  1;   (<= >''';1 %        &?1   1             

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.