Morgunblaðið - 13.08.2006, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2006 C 11
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið
af jafnréttisáætlun skólans.
Háskóli Íslands v/Suðurgötu, 101 Reykjavík, s. 525 4000
RANNSÓKNAÞJÓNUSTAN
VERKEFNISSTJÓRI
Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands leitar að
háskólamenntuðum verkefnisstjóra til ráð-
gjafastarfa við sókn háskólasamfélagsins eftir
fjármagni til rannsókna- og þróunar úr inn-
lendum og erlendum samkeppnissjóðum.
Í starfinu felst:
• Aðstoð og ráðgjöf við gerð umsókna og
framkvæmd verkefna, sérstaklega samninga
og samskipti við styrktaraðila
• Upplýsingagjöf til starfsmanna og
framhaldsnemenda skólans, m.a. umsjón
með heimasíðunni www.evropusamvinna.is
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi.
Sjálfstæði í starfi, þjónustulund og lipurð í
mannlegum samskiptum er nauðsynleg. Góð
tölvukunnátta áskilin og áhugi á rannsóknum
og vísindum og að tileinka sér nýja hluti mikil-
væg. Reynsla af ráðgjafastörfum og þekking
á alþjóðlegu rannsóknasamstarfi er kostur.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf
sem fyrst, eða samkvæmt samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 28. ágúst n.k.
Sjá nánar www.hi.is/page/storf og
www.starfatorg.is
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software International) óskar eftir
vefritstjóra. Viðkomandi mun sjá um viðhald og þróun vefsvæða
fyrirtækisins, skrif fréttatilkynninga og yfirlestur markaðsefnis á
ensku auk annarra tilfallandi verkefna.
Hæfniskröfur:
• Mjög góð enskukunnátta er nauðsynleg
• Háskólapróf er skilyrði
• Reynsla í vefþróun og viðhaldi vefsvæða er mjög æskileg
• Reynsla í markaðsmálum er æskileg
• Góð þekking og áhugi á tölvumálum er æskilegur
Þverholti 18 • 105 Reykjavík • Sími: 540 7400 • Bréfsími: 540 7401 • www.frisk.is
Umsóknir ásamt starfsferilsskrám
sendist á: jobs@frisk.is
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2006
Nánari upplýsingar veitir:
Erlendur Þorsteinsson, esth@frisk.is
Friðrik Skúlason ehf. (FRISK Software) er alþjóðlegt öryggis- og þekkingarfyrirtæki
sem sérhæfir sig á sviði veiruvarna. Fyrirtækið framleiðir m.a. F-PROT Antivirus
(Lykla-Pétur) og er í samstarfi við fyrirtæki um allan heim. Fyrirtækið starfar að
mestu leyti á erlendum mörkuðum og er í dag eitt af fremstu veiruvarnar-
fyrirtækjum heims. Hjá fyrirtækinu starfa um fimmtíu manns.
F-PROT Antivirus
Vefritstjóri
Spennandi starf hjá
traustu fyrirtæki
Olíuverzlun Íslands hf. • Sundagörðum 2 • 104 Reykjavík • Sími 515 1000 • Fax 515 1010 • www.olis.is
Olíuverzlun Íslands hf. óskar eftir að ráða innkaupastjóra erlendra innkaupa. Starfið
tilheyrir vörustýringarsviði Olís en þar fara fram öll innkaup, lagerhald og dreifing á
vörum félagsins.
Innkaupastjóri
Helstu verkefni
• Umsjón og ábyrgð á erlendum innkaupum.
• Leit að nýjum birgjum erlendis og gerð innkaupasamninga.
• Seta í innkaupahópi, þátttaka í stefnumótun og tilheyrandi
áætlanagerð vörustýringarsviðs.
• Verðákvarðanir og verðlagning.
• Heimsóknir á sýningar.
• Ýmsar tölulegar úttektir.
Menntun og starfsreynsla:
• Háskólamenntun, t.d í vörustjórnun, viðskipta- eða verkfræði.
• Reynsla af erlendum samskiptum í innkaupum og birgðastýringu.
• Færni í tölulegri úrvinnslu.
Eiginleikar:
Viðkomandi þarf að vera skipulagður og nákvæmur í starfi, heiðarlegur og samviskusamur og eiga
gott með samskipti við fólk.
H
im
in
n
o
g
h
af
/SÍA
Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika
í samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð. Skrifstofur Olís eru að Sundagörðum 2 og þar
starfa 60 manns.
Umsóknir þurfa að berast til starfsmannastjóra Olís fyrir 21. ágúst og má annað hvort senda þær í
tölvupósti til rbg@olis.is eða í pósti til Olíuverzlunar Íslands, b.t. starfsmannastjóra, Sundagörðum 2,
104 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir, starfsmannastjóri Olís, á milli
kl. 9 og 12 virka daga eða í tölvupósti rbg@olis.is.
IÐNSKÓLINN Í HAFNARFIRÐI,
Flatahrauni 12, 220 Hafnarfirði,
sími 585 3600, fax 585 3601.
www.idnskolinn.is
Framhaldsskóla-
kennarar
Kennara vantar til kennslu á haustönn í
íslensku og dönsku samtals heil staða.
Nánari upplýsingar gefur skólameistari í síma
585 3600.
Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og stofnana-
samningi skólans. Umsóknir þurfa að berast
fyrir 16. ágúst n.k.
Skólameistari
S. Ármann Magnússon heildverslun
vantar kraftmikla
sölumanneskju
Í starfinu felst að selja og afgreiða vefnaðar-
vöru eins og: gardínuefni, tískuefni, sængur-
fatnað, handklæði, sængur og kodda ásamt
fleiru.
Reynsla af samsvarandi starfi eða áhugi á
saumaskap er kostur en ekki nauðsyn.
Vinnutími er:
- Frá kl. 9-17 alla virka daga.
Vinsamlega sendið umsókn ásamt ferilskrá
á samtex@samtex.is eða hafið samband við
Svein í síma 568 7070 milli kl. 9 og 17 á virkum
dögum.
Skútuvogi 12j, 104 Reykjavík.