Morgunblaðið - 13.08.2006, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.08.2006, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2006 C 13 Styrktarfélag vangefinna Skemmtilegt og krefjandi starf Ás vinnustofa óskar eftir að ráða þroskaþjálfa til starfa nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 50% stöðu, dagvinna og vinnutími er eftir sam- komulagi. Ás er verndaður vinnustaður, staðsettur í Brautarholti 6. Þar starfa um 44 fatlaðir starfsmenn. Við leitum að starfsmanni sem:  Hefur góða skipulags- og samskipta- hæfileika.  Er jákvæður og hefur áhuga á mannleg- um samskiptum.  Er sveigjanlegur og tilbúinn til að til- einka sér nýjungar. Við bjóðum:  Góðan stuðning og ráðgjöf.  Tíma til undirbúnings og funda.  Ágæta starfsaðstöðu.  Samvinnu við góðan starfsmannahóp. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Þroskaþjálfafélags Íslands og Styrktarfé- lags vangefinna. Nánari upplýsingar veitir Valdís Erlends- dóttir í síma 414 0530. Hægt er að nálgast upplýsingar um Styrktarfélagið á heima- síðu þess www.styrktarfelag.is Starfsfólk vantar til að sinna félagslegri heima- þjónustu í félagsmiðstöðinni Hvassaleiti. Helstu verkefni: ● Virkjun og hvatning til tómstunda- og félagsstarfs. ● Hvatning til persónulegrar umhirðu og heilsuverndar. ● Aðstoð við þrif, þvotta og önnur heimilisstörf. - Einn vinnustaður Þjónustu- og rekstrarsvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. Félagsliðar og starfsfólk í stuðningsþjónustu Menntunar- og hæfniskröfur: ● Félagsliðamenntun æskileg en ekki skilyrði. ● Metnaður til að veita úrvalsþjónustu. ● Sveigjanleiki og lipurð í mannlegum samskiptum. Starfshlutfall samkvæmt samkomulagi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar stéttarfélags. Nánari upplýsingar veita Bryndís Torfadóttir, bryndis.torfadottir@reykjavik.is eða Elfa Björk Ellertsdóttir, elfa.ellertsdottir@reykjavik.is, Félagsmiðstöðinni Hvassaleiti 56-58, sími 535 2720. Umsóknum skal skilað á Félagsmiðstöðina Hvassaleiti 56-58, 103 Reykjavík eða á netfangið elfa.ellertsdottir@reykjavik.is fyrir 21. ágúst nk. Iceland Express, Grímsbæ, Efstalandi 26, Sími 5 500 600 www.icelandexpress.is Menntunar- og hæfniskröfur • Stúdentspróf • Nám í ferðamálafræði æskilegt • Góð tölvukunnátta • Hæfni í mannlegum samskiptum • Færni í rússnesku og / eða pólsku ásamt ensku, kostur ef viðkomandi talar einnig þýsku og / eða dönsku, auk íslensku Iceland Express er fyrsta íslenska lágfargjaldaflugfélagið. Þegar félagið var stofnað fyrir þremur árum, gjörbreytti það landslagi flugsamgöngum Íslendinga og starfa nú yfir 130 manns hjá félaginu. Við erum stolt af sigrum og vexti Iceland Express og er starfsfólkið lykillinn að uppbyggingu félagsins. Tækifærin blasa við og framundan eru afar spennandi tímar í starfseminni. Fljúgðu hærra á þínum ferli með Iceland Express. Upplifðu spennandi starfsumhverfi, skemmtilegan vinnuanda og taktu þátt í að móta og skapa framsækna viðskiptastefnu hjá félagi sem er einstakt á Íslandi. SÖLUFULLTRÚI Í SÖLUDEILD Leitað er að ábyggilegum einstaklingi með kurteislegt viðmót og ríka þjónustulund. Viðkomandi þarf að sýna áhuga, sjálfstæði í starfi og geta unnið vel undir álagi. Starfssvið • Símsvörun / ráðgjöf • Sala á flugsætum, hótelgistingu og bílaleigubílum. • Aðstoð við netbókanir Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir skulu sendar á job@icelandexpress.is fyrir 20. ágúst 2006. Störf í Apóteki Vegna ört vaxandi starfsemi Lyfjavals vantar okkur jákvætt og kraftmikið starfsfólk. Lyfjatækna og afgreiðslufólk til starfa í bíla- apóteki Lyfjavals, Hæðasmára 4. Reynsla úr apóteki er kostur. Um hlutastörf getur verið að ræða svo og vakta- vinnu. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Upplýsingar í síma 894 5252, Þorvaldur og 894 3083, Guðni. Umsóknarfrestur er til 21. ágúst nk. og skal senda umsóknir í pósti á Lyfjaval, Þönglabakka 6, 109 Reykjavík. Einnig má senda umsóknir á póstfangið lyfjaval@lyfjaval.is. Lyfjaval er ört vaxandi apótek sem leggur mikið upp úr persónulegri þjónustu og samkeppnishæfu verði. Lyfjaval er apótekið þar sem viðskiptavinir fá góða og trausta þjónustu. Lyfjaval apótek veitir faglega og persónulega ráðgjöf með einu besta og hæfasta starfsfólk- inu sem völ er á. Lyfjaval tryggir starfsfólki sínu fjölskylduvæna starfsmannastefnu og notalegt starfsumhverfi.  á Grenivík. Verður að hafa bíl til umráða Upplýsingar gefur Ólöf Engilberts- dóttir í síma 569 1376. Upplýsingar veitir Elín Ósk í síma 8672548 Óskum eftir rösku fólki til að bera út Morgunblaðið á Blönduósi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.