Morgunblaðið - 13.08.2006, Síða 14

Morgunblaðið - 13.08.2006, Síða 14
14 C SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Kennari góður, nú er lag Af óviðráðanlegum ástæðum eru lausar tvær stöður kennara við Grunnskólann á Tálknafirði. Annars vegar er um að ræða umsjónarkennara í 1. bekk. Þar er um að ræða alla almenna bekkjarkennslu. Hins vegar vantar okkur kenn- ara í listgreinar, hönnun, smíði og upplýsinga- tækni. Ef þú ágæti kennari hefur áhuga á að starfa í góðum og metnaðarfullum skóla, með fyrirmyndar nemendur, flotta aðstöðu og skemmtilegu samstarfsfólki þá er GT rétti skól- inn fyrir þig. Allar upplýsingar veitir skólastjóri í símum 456 2537, 456 2538 eða 897 6872. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið ingolfur@talknafjordur.is. Umsóknarfrestur er til 16. ágúst. Starf byggingarfulltrúa hjá Akraneskaupstað er laust til umsóknar. Um verksvið byggingarfulltrúa og kröfur til menntunar er vísað til skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997 svo og byggingarreglugerðar. Byggingarfulltrúi er hluti af starfsliði tækni- og umhverfissviðs kaupstaðarins og gegnir fleiri störfum innan sviðsins eftir því sem verk- efni og aðrar aðstæður gefa tilefni til. Tækni- og umhverfissvið hefur umsjón með hönnun og undirbúningi framkvæmda á veg- um bæjarins, bygginga- og framkvæmdaeftir- liti, skipulagsmálum, umsjón með eignasjóði, landupplýsingakerfi o.fl. Nánari upplýsingar um verkefni tækni- og um- hverfissviðs er að finna á heimasíðu Akranes- kaupstaðar: www.akranes.is. Menntun og hæfniskröfur:  Umsækjendur skulu uppfylla skilyrði 48. og 49. greina skipulags- og byggingarlaga.  Æskileg starfsreynsla 5- 10 ár.  Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun CAD-kerfa.  Gerð er krafa um sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð og góða samskiptahæfileika. Umsóknarfrestur er t.o.m. 31. ágúst nk. Umsóknum skal skilað á skrifstofur Akranes- kaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð, 300 Akra- nesi. Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs í síma 433 1050. Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs. Um er að ræða fjölbreytt starf sem felur í sér daglegan rekstur sambandsins og samskipti við aðildarfélög ÍHÍ auk ýmissa starfa í nefndum sambandsins. Leitað er eftir drífandi og sjálf- stæðum einstaklingi sem fer vel að vinna með öðrum og hefur brennandi áhuga á að starfa í íþróttahreyfingunni. Um er að ræða hlutastarf á ársgrundvelli sem er krefjandi en býður jafnramt upp á sveigjanlegan vinnutíma. Helstu verkefni Daglegur rekstur ÍHÍ, Bókhaldsvinna, Starfa með stjórn ÍHÍ, Starfa með nefndum ÍHÍ, Starfa með aðildarfélögum ÍHÍ, Samskipti við fjölmiðla. Menntunnar- og hæfniskröfur Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, Hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi, Frumkvæði og skipulagshæfni, Reynsla af rekstri og stjórnun æskileg. Umsækjendur eru beðnir um að skila umsóknum með tölvupósti til ritara stjórnar á netfangið siggi@kaupa.is fyrir 20. ágúst 2006. Stjórn sambandsins áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum. Íshokkísamband Íslands (ÍHÍ) óskar eftir að ráða framkvæmdarstjóra. Allar umsóknir berist í tölvupósti til bp@olis.is auk þess sem hægt er að fylla út starfs- umsóknir á www.olis.is Má bjóða þér að slást í hópinn? Olíuverzlun Íslands hf. • Sundagörðum 2 • 104 Reykjavík • Sími 515 1000 • Fax 515 1010 • www.olis.is Olíuverzlun Íslands hf. óskar eftir að ráða starfsfólk til þjónustu- og sölustarfa á þjónustustöðvar félagsins. Um er að ræða vaktavinnu á tví- og þrískiptum vöktum. Opnunartími stöðvanna er frá kl 7.30 á morgnana til 23.30 á kvöldin. Störfin henta bæði konum og körlum á öllum aldri en aldurslágmark er 18 ár. Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika í samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð. Umsækjendur þurfa að búa yfir ríkri þjónustulund, vera stundvísir, reglusamir og heiðarlegir í samskiptum. Störf í boði hjá Olís Þjónustu- og sölustörf utanhúss Helstu verkefni eru þjónusta og sala á eldsneyti og öðrum þeim vörum er tengjast rekstri bílsins. Einnig þrif utanhúss og aðstoð við þrif, vöruáfyllingar og sölu innanhúss eftir því sem þörf er á. Vaktstjórn Helstu verkefni vaktstjóra eru umsjón með daglegum störfum og verkstjórn annarra starfsmanna á vaktinni. Vaktstjóri aðstoðar viðskiptavini við vöruval, veitir upplýsingar og leiðbeinir um vörunotkun. Hann leggur sig fram við að veita góða þjónustu og leysir vandamál varðandi þjónustu og/eða afgreiðslu, sem koma upp á vaktinni. Aðstoðarfólk í verslun Helstu verkefni eru þjónusta og sala í versluninni auk þess sem viðkomandi aðstoðar við vöruáfyllingar og þrif innanhúss. H im in n o g h af /SÍA Kvenfataverslun í Kringlunni Þekkt kvenfataverslun í Kringlunni óskar eftir starfskrafti til afgreiðslustarfa. Vinnutími virka daga frá 12.00-18.30 og annan hvorn laugar- dag. Umsóknir sendist til augld. Mbl. merktar: „I — 18895“ eða á box@mbl.is fyrir 24. ágúst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.