Morgunblaðið - 13.08.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2006 C 17
Starfssvið:
• Afgreiðsla í skýlum
• Afgreiðsla í plötuhúsi
• Afgreiðsla við plötusögun
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Jákvætt viðmót og þjónustulipurð
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Stundvísi og nákvæm vinnubrögð
Um fullt starf er að ræða
Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Góð laun í boði fyrir rétta manneskju
Nánari upplýsingar veita Stefán Valsson,
verslunarstjóri í síma 515-4177 og með tölvupósti,
stebbi@byko.is og Elfa, starfsþróunarstjóri í
síma 515-4161 og með tölvupósti, elfa@byko.is
í boði hjá BYKO Breidd
Umsóknir berist fyrir 21. ágúst til Elfu B. Hreinsdóttur,
Skemmuvegi 2, 200 Kópavogi eða með tölvupósti, elfa@byko.is
Einnig er hægt að sækja um starfið á vef BYKO, www.byko.is
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál
FRAMTÍÐARSTÖRF
Starfsfólk óskast
í timburverslun Breidd
GÆÐI Á LÆGRA VERÐI
Starfsfólk óskast
í verslun Breidd
BYKO ER LEIÐANDI
FYRIRTÆKI Á SÍNU SVIÐI
Mikil fjölbreytni ríkir í starfsemi
BYKO og erum við ávallt
að leita að góðu fólki.
Það fólk sem við ráðum til starfa
þarf að búa yfir hæfileikum
til að starfa sjálfstætt,
vera jákvætt og eiga mjög gott
með að vinna með öðrum.
Starfssvið:
• Afgreiðsla við þjónustuborð
• Afgreiðsla við kassa
• Afgreiðsla í Hreinlætistækjadeild
• Afgreiðsla í Gólfefnadeild
Einnig vantar afleysingafólk um helgar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Jákvætt viðmót og þjónustulipurð
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Stundvísi og nákvæm vinnubrögð
Um fullt starf er að ræða
Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veita Rúnar, verslunar-
stjóri í síma 515-4245 og með tölvupósti,
runar@byko.is og Elfa, starfsþróunarstjóri í
síma 515-4161 og með tölvupósti, elfa@byko.is
Sálfræðingur
Laus er til umsóknar afleysingastaða sálfræð-
ings við barna- og unglingageðdeild FSA.
Umsækjandi skal hafa lokið Cand. Psych. prófi
í sálfræði og hlotið löggildingu til starfsins.
Reynsla af meðferð og athugun barna er æski-
leg. Sálfræðingur annast sálfræðilegar athug-
anir, meðferð og ráðgjöf. Næsti yfirmaður sál-
fræðings er yfirlæknir barna- og unglingageð-
deildar FSA.
Starfsskylda er við Heilbrigðisstofnanir á Norð-
ur- og Austurlandi.
Umsóknarfrestur er til 15. september 2006.
Staðan veitist frá 1. október eða samkvæmt
samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Stéttarfé-
lags sálfræðinga á Íslandi og Fjármálaráðu-
neytisins.
Við ráðningu er lögð áhersla á faglega þekk-
ingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, sam-
vinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Umsóknum um starfið skulu fylgja ítarlegar
upplýsingar um menntun, starfsferil, rannsókn-
ir, ritstörf og kennslustörf. Umsóknir, ásamt
fylgigögnum, skuli sendast í tvíriti til Páls
Tryggvasonar yfirlæknis barna- og unglinga-
geðdeildar FSA, 600 Akureyri, sem jafnframt
veitir nánari upplýsingar í síma 463 0100 eða
í tölvupósti pall@fsa.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
- Einn vinnustaður
Skólaárið 2006-2007 eru eftirfarandi
stöður grunnskólakennara lausar við
grunnskóla Reykjavíkurborgar:
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar
má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinn-
ar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Menntasvið Reykjavíkur
Austurbæjarskóli, sími 411 7202
● Smíðakennari
● Sérkennari á unglingastigi
Breiðholtsskóli, símar 557 3000/664 8150
● Danskennari í 60% stöðu
● Kennari í tæknimennt (smíði)
Fellaskóli, sími 557 3800
● Heimilisfræðikennari í 50% - 80% stöðu
Foldaskóli, símar 540 7600/664 8180
● Stærðfræðikennari á unglingastig
í 100% stöðu í 1 ár
Fossvogsskóli, símar 568 0200/664 8190
● Verk- og listgreinakennari. Um er að ræða kennslu
í smíði, dans og leiklist í 75% - 100% stöðu
Hamraskóli, sími 567 6300
● Danskennari í hlutastöðu
● Smíðakennari
Hlíðaskóli, símar 552 5080/664 8225
● Íþróttakennari í 50% stöðu við sundkennslu
Hólabrekkuskóli, sími 557-4466
● Forfallakennari
Hvassaleitisskóli, sími 570 8800
● Kennari í tæknimennt / smíði
● Landafræðikennari í 8. og 9. bekk
Ingunnarskóli, símar 411 7828/664 8265
● Forfallakennari
Langholtsskóli, símar 553 3188/664 8280
● Náttúrufræðikennari á unglingastigi
Laugalækjarskóli, símar 588 7500/664 8290
● Smíðakennari
● Stærðfræðikennari
Laugarnesskóli, símar 588 9500/664 8300
● Bekkjar- og samvinnukennari á miðstigi
● Tónmenntarkennari í 60-80% stöðu
Selásskóli, sími 567 2600
● Forfallakennari frá 15. ágúst
til 15. nóvember 2006
Seljaskóli, sími 411 7500
● Leiklistarkennari óskast, um er að ræða
2 kennslustundir á viku
Víkurskóli, sími 545 2700
● Bókasafnskennari
● Sérkennari
Vogaskóli, símar 553 2600/664 8350
● Danskennari óskast, um er að ræða
7 kennslustundir á viku
● Íþróttakennari í 75% - 100% stöðu
Frekari upplýsingar um hverja stöðu og umsóknarfresti
eru á heimasíðu Menntasviðs, www.menntasvid.is.
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðarskólastjórar í
viðkomandi skólum. Laun eru skv. kjarasamningi
Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög.
Öll laus störf á Menntasviði eru auglýst á
www.menntasvid.is
Menntasvið annast starfsemi og rekstur grunnskóla og leikskóla. Í því felst þróun grunnskóla- og leikskóla-
starfs, undirbúningur stefnumörkunar, mat og eftirlit með skólastarfi og upplýsingamiðlun fyrir menntaráð og
starfshópa á vegum ráðsins.
Lagerstarf
Óskum að ráða starfsmann á lager.
Helstu viðfangsefni:
Vörumóttaka
Tiltekt og pökkun
Umhirða
Vöruafgreiðsla
Helstu kröfur:
Vandvirkni og heiðarleiki
Snyrtimennska
Frumkvæði og samstarfshæfni
Grunntölvukunnátta æskileg
Kostur er að viðkomandi reyki ekki, en reyking-
ar eru ekki leyfðar á vinnustað. Þarf að geta
hafið störf fljótlega.
Skriflegar umsóknir merktar „Lagerstarf“
berist skrifstofu Fálkans á Suðurlandsbraut 8,
eigi síðar en fimmtudaginn 17. ágúst nk.
Umsóknir má einnig senda með tölvupósti á
netfangið: falkinn@falkinn.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
Fálkinn hf. er leiðandi þjónustu- og tæknifyrirtæki sem sérhæfir
sig í bíla- og vélahlutum, véltæknivörum og raftæknivörum.
Fyrirtækið rekur verslun og þjónustuverkstæði á
Suðurlandsbraut 8 í Reykjavík.