Morgunblaðið - 13.08.2006, Blaðsíða 18
18 C SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, SHS, þarf á slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum
að halda vegna fjölgunar í liðinu. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu við sjúkraflutninga,
slökkvistörf og reykköfun, björgun og neyðarflutninga með möguleika á starfsmenntun og þjálfun
erlendis og innanlands. Laun eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands
slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Umsækjendur með reynslu:
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn með reynslu eru sérstaklega hvattir til að sækja um.
Gott væri ef þeir gætu hafið störf sem fyrst en annars eftir nánara samkomulagi.
Umsækjendur þurfa að:
• Vera reglusamir og háttvísir.
• Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, góða sjón og heyrn, rétta
litaskynjun og vera lausir við lofthræðslu og innilokunarkennd.
• Hafa aukin réttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið. Nóg er að umsækjandi hafi öðlast
aukin ökuréttindi þremur mánuðum eftir ákvörðun um ráðningu.
• Hafa iðnmenntun (sveins- eða vélstjórapróf) sem nýtist í starfi eða sambærilega menntun
(stúdentspróf) og reynslu.
Umsóknir
Umsóknareyðublöð eru hjá þjónustuveri SHS og á www.shs.is. Umsóknum og fylgigögnum
skal skila til þjónustuvers SHS, Skógarhlíð 14, eigi síðar en 22. ágúst nk. Fylgigögn: Læknis-
vottorð um almennt heilbrigði, sakavottorð, prófskírteini, ljósrit af ökuskírteini og ökuferilsskrá,
passamynd. Konur eru hvattar til að sækja um.
Ráðningarferlið
Reynsluráðning er áætluð frá 1. nóvember 2006. Að loknum sex mánaða reynslutíma verður tekin
ákvörðun um fastráðningu. Þeir sem uppfylla almenn skilyrði þurfa að vera reiðubúnir að gangast
meðal annars undir:
• Styrkleikapróf, 3.000 m hlaup og sund
• Aksturspróf
• Próf vegna lofthræðslu og innilokunarkenndar
• Göngupróf á bretti í eldgalla með reykköfunartæki á bakinu
• Próf í almennri þekkingu og tungumálum
• Læknisskoðun, hjóla- og áreynslupróf
Nánari upplýsingar:
Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 17. ágúst kl. 16.00 í Björgunar-
miðstöðinni Skógarhlíð. Frekari upplýsingar veitir Kristín Þorsteinsdóttir starfsmannastjóri
(kristin.thorsteinsdottir@shs.is) í síma 528 3000 á skrifstofutíma.
Einnig á www.shs.is.
SHS er byggðasamlag sem sinnir slökkvistarfi, sjúkraflutningum, viðbrögðum við mengunaróhöppum, forvörnum,
almannavörnum og öðrum verkefnum sem stjórn SHS ákveður hverju sinni og varða velferð íbúa. Að rekstri SHS
standa sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær,
Mosfellsbær, Seltjarnarneskaupstaður og Álftanes. Framkvæmdastjórar sveitarfélaganna skipa stjórn SHS.
Skógarh l íð 14
105 Reyk jav ík
s ím i 528 3000
shs@shs . i s
www.shs . i s
G
A
R
Ð
A
R
G
U
Ð
JÓ
N
S
S
O
N
/
F
O
R
S
T
O
F
A
N
0
8
/0
6
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn
Akureyrarbær
Hjúkrunarfræðingar
Við leitum eftir hjúkrunarfræðingum til starfa með góðum og
samhentum hópi starfsmanna við Dvalar- og hjúkrunarheimil-
ið Hlíð á Akureyri. Framundan eru miklar breytingar á starfsemi
heimilisins. Tekið verður í notkun nýtt og glæsilegt húsnæði í
haust og breytingar eru fyrirhugaðar á eldra húsnæði.
Áhersla verður lögð á nýsköpun og innleiðslu nýrra hugmyn-
da. Starfinu fylgja mikil og krefjandi samskipti við fólk.
Það krefst hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum ásamt frum-
kvæði og lipurðar í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að
viðkomandi hafi góða starfsreynslu auk þekkingar á sviði
öldrunarhjúkrunar. Um er að ræða vaktavinnu og starfshlutfall
er samkomulag. Hjúkrunarfræðingar eru á bakvöktum á
næturnar. Vilt þú vera þátttakandi í uppbyggingu í þjónustu
við aldraða?
Öldrunarhjúkrun er framtíðin!
Akureyrarbær rekur umfangsmikla öldrunarþjónustu bæði
innan og utan stofnana. Heimilin eru Dvalar- og hjúkrunar-
heimilið Hlíð, þar eru 108 hjúkrunarrými og 16 dvalarrými,
heimili aldraðra í Kjarnalundi, þar eru 48 dvalarrými, sambýli
aldraðra við Bakkahlíð en þar eru 8 hjúkrunarrými og
hjúkrunarheimili í Skjaldarvík en þar eru 15 hjúkrunarrými.
Dagþjónusta er starfrækt í tengslum við dvalarheimilið Hlíð og
eru þar 12 rými.
Fjöldi starfsmanna stofnananna er um 260.
Upplýsingar um starfið veita:
Helga Tryggvadóttir hjúkrunarforstjóri, helgat@akureyri.is
Helga Erlingsdóttir hjúkrunardeildarstjóri helgae@akureyri.is
Maríanna Hansen hjúkrunardeildarstjóri marianna@akureyri.is
í Hlíð, Austurbyggð 17, Akureyri, eða í síma 460 9100.
Laun eru skv. gildandi kjarasamningum Launanefndar sveitar-
félaga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Tekið verður tillit til samþykkta bæjarstjórnar Akureyrar um
jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Hlíðar og í þjónustuand-
dyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Einnig á heimasíðu Akureyrabæjar: www.akureyri.is
Umsóknir skulu berast á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hlíð,
Austurbyggð 17, 600 Akureyri, fyrir 28. ágúst 2006.
Bílstjórar/skóflumenn
Vegna mikilla verkefna framundan er BM Vallá
að leita að kraftmiklum, duglegum og sam-
viskusömum starfsmönnum með meirapróf
og tækjaréttindi til starfa hjá fyrirtækinu. Við
erum að leita að steypubílstjórum, dælu-
stjórum og skóflumönnum. Starfsmönnum
sem geta unnið sjálfstætt, eru nákvæmir, hafa
gaman af mikilli vinnu og geta unnið undir
álagi. Verið að leita að starfsmönnum í framtíð-
arstörf.
Bílstjórar eru í mörgum tilfellum í beinum sam-
skiptum við viðskiptavini og þurfa því að hafa
góða framkomu og þjónustulund.
Bílafloti og tækjakostur fyrirtækisins er í mjög
góðu ástandi, að miklum hluta nýr eða nýlegur
og vel útbúinn til að auðvelda starfsmönnum
vinnuna.
Framundan er mikil vinna og góð laun í boði.
Unnið er eftir bónuskerfi sem gefur góða tekju-
möguleika.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður Árna-
son í síma 585 5010. Sendið umsóknir og fyrir-
spurnir á sigurdur@bmvalla.is
Bíldshöfða 7.
Tækniteiknari
óskast til starfa. Upplýsingar í síma 894 5101,
netfang gudjon@arkform.is.