Morgunblaðið - 13.08.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.08.2006, Blaðsíða 22
22 C SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ www.toyota.is Toyota á Íslandi Nýbýlavegi 2 - 8 200 Kópavogur Sími: 570-5070 Starfsmaður óskast í fullt starf í Vefdeild Toyota á Íslandi Starfssvið: - Almenn vinna við að setja efni inn á vefi fyrirtækisins - Myndvinnsla og uppsetning - Önnur verkefni tengd vefumsjón Hæfniskröfur: - Þekking á HTML forritun - Reynsla í notkun Photoshop og Macromedia Flash - Færni til að læra á og nýta ýmis veftengd forrit - Reynsla af vinnu við vefumsjónarkerfi er kostur Toyota á Íslandi sækist eftir einstaklingi sem er metnaðargjarn, samviskusamur, jákvæður og lipur í mannlegum samskiptum. Áhugasamir sendi umsókn á atvinna@toyota.is merkt „Vefdeild“. Umsóknarfrestur rennur út 21. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Fanný Bjarnadóttir í síma 570-5070 eða á netfanginu fanny@toyota.is Komdu og keyrðu með okkur ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S TO Y 33 72 08 /2 00 6 Toyota á Íslandi er innflytjandi Toyota bifreiða, vara- og aukahluta. Starfsmenn fyrirtækisins byggja gildi sín og viðmið í starfi á The Toyota Way: Stjórnunar-, þjónustu- og mannauðsstefnu Toyota. Gagnkvæm virðing og náin samvinna eru hornsteinar í daglegri starfsemi Toyota á Íslandi. Hverri áskorun er tekið fagnandi hendi og leita starfsmenn stöðugt leiða til að tryggja áframhaldandi framfarir í öllu því sem við kemur starfsemi fyrirtækisins og þjónustu gagnvart viðskiptavinum þess. Félagsstofnun stúdenta á og rekur átta kaffistofur á háskólasvæ›inu. Kaffistofur stúdenta eru í A›albyggingu, Árnagar›i, Eirbergi, Háskólabíói, Lögbergi, Læknagar›i, Odda og Öskju. Félagsstofnun stúdenta er sjálfseignarstofnun me› sjálfstæ›a fjárhagsábyrg›. A› henni standa stúdentar innan Háskóla Íslands, HÍ og menntamálará›uneyt- i›. Auk Kaffistofa stúdenta rekur FS Bóksölu stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagar›a og Stúdentami›lun. Starfsfólk FS er um 100 talsins. Kaffistofur stúdenta leita a› fljónustulundu›um einstaklingum til a› starfa á Kaffistofum stúdenta. Í bo›i eru heilsdags- og hlutastörf í líflegu umhverfi á flægilegum vinnutíma. Áhugasamir hafi samband vi› Stúdentami›lun FS í s: 570 0888 Viltu starfa í líflegu umhverfi? Störf í boði Hans Petesen hf byggir starfsemi sína á gömlum grunni á nýrri öld. Fyrirtækið hefur í fjölda mörg ár verið leiðandi í þjónustu við lands- menn á sviði framköllunar og ljósmyndunar. Í dag rekur fyrirtækið sex smásöluverslanir en þær eru: í Austurveri, Kringlunni, Smáralind, Laugavegi 178, Firði í Hafnarfirði og þar sem þetta allt hófst í Bankastrætinu. Auk þess rekur fyrirtækið öfluga heildsölustarfsemi. Viðkomandi aðilar þurfa að vera þjónustulundaðir, fljótir að tileinka sér nýjungar og með jákvætt viðmót. Starfssvið er öll almenn sala á vörum í verslunum okkar á eftirfarandi stöðum. Kringlan 100% starf. Vinnutími frá 10:00 til 18:00. 50% starf. Vinnutími frá 14:30 til 18:30 Bankastræti 75% starf. Vinnutími frá 12:00 til 18:00 Laugavegur 178 75% starf. Vinnutími frá 12:00 til 18:00 Smáralind 30% starf. Vinnutími miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga frá 15:00 - 19:00 Fiskislóð 75 | 101 Reykjavík | Sími 570 7500 | Fax 570 7510 hanspetersen@hanspetersen.is | www.hanspetersen.is Hans Petersen óskar eftir að ráða starfsmenn í full störf og hlutastörf í verslanir. EINELTI á vinnustöðum á sér margar birtingarmyndir en oft er það þannig að gerendur gera sér enga grein fyrir afleið- ingum háðs eða aðdróttana sem í þeirra eigin augum eru sak- leysislegar. Þessi mál voru nýverið í fréttum í Bretlandi eftir að kona nokkur að nafni Helen Green fékk sér dæmdar skaðabætur að upphæð 817 þúsund pund vegna vinnustaðaeineltis sem síðar leiddi til taugaáfalls. Helen þessi var lögð í einelti af fjórum sam- starfskonum og einum samstarfsmanni í fjögur ár á meðan hún starfaði fyrir Deutsche Bank. Fantarnir stýra samfélaginu Í hugum margra eru það fautarnir sem ná lengst í nútíma sam- félagi og nú ber svo við að veruleikasjónvarp virðist ýta undir þessa hegðan með sjónvarpsþáttum eins og X Factor, The Wea- kest Link, Stóra bróður og öðru álíka efni þar sem samkeppnin leiðir oft af sér hópa sem leggjast á eitt um að koma öðrum, oft einum tilteknum keppanda, frá. Frægir menn eins og Alex Ferguson, þjálfari Manchester United, og Donald Trump sem einmitt er með veruleikasjón- varpsþátt hafa einnig verið ávíttir fyrir að vera ágengir og harðir í horn að taka í viðskiptum sínum við fótboltamenn, samstarfs- menn og keppinauta. Einelti í einhverri mynd er því fyrir augum flestra dags daglega. Kostar fyrirtækin peninga Málin fara þó að taka á sig skýrari mynd þegar reynt er að slá tölu á kostnaðinn sem hlýst af þessari hegðun. Í Bretlandi einu saman er giskað á að einelti kosti vinnuveitendur um 1,8 millj- arða punda í veikindadögum og minni framleiðni. Þetta er engin smá upphæð, um 240 milljarðar íslenskra króna. Á Íslandi hefur baráttan við einelti verið sterk en dæmigerð einkenni einstaklinga sem verða fyrir einelti geta verið léleg sjálfsímynd, líkamsstyrkur undir meðallagi hjá körlum en það skiptir síður máli hjá konum og er frekar á hinn veginn. Meg- inatriðið er þó það að gerendur nota hvert tækifæri til að gera þolandanum lífið óbærilegt, til dæmis með rógburði, slúðri, slæmu umtali og um margt minnir þessi meðferð á hegðun leik- skóla- og grunnskólabarna. Sérstaklega slæm er hvers konar niðurlæging í viðurvist ann- arra starfsmanna en slíkt er til þess fallið að einangra starfs- manninn félagslega og brjóta niður sjálfsmynd hans. Röð atvika frekar en einn atburður Það verður líka erfiðara að eiga við vandamálið en ella að einelti er oftast röð atvika sem getur verið erfitt að festa hendur á frem- ur en eitt dæmi sem hægt er að skýra frá, t.d. segja yfirmanni frá. Þolanda finnst þá erfitt eða jafnvel vandræðalegt að greina frá samskiptum sem ein og sér kunna að virðast léttvæg en sam- an verða til þess að mælirinn fyllist hægt og rólega. Af þessum sökum er algengt að einelti standi yfir í marga mánuði eða jafn- vel nokkur ár. Bæði í Bretlandi og á Íslandi virðist hafa gengið vel að upp- ræta einelti í skólum en öðru máli gegnir með vinnustaði. Á vinnustöðum getur gerandinn verið hver sem er en yfirleitt hef- ur gerandinn sjálfur lítið sjálfstraust, er óöruggur, er félagslega eða stjórnunarlega vanhæfur og varpar með þessu athæfi at- hyglinni af sjálfum sér og á þolandann. Gróflega er einelti á vinnustöðum skipt í tvo flokka; annars- vegar stýringu með niðurlægingu þar sem gerendur hafa tapað samúð sinni í framaklifrinu og eru geðþekkir í augum yfirmanna sinna en á sama tíma snillingar í að grafa undan samstarfsfólki sínu. Hinsvegar er um að ræða einskonar fullkomnunarkvíða sem hrjáir venjulega yfirmenn sem eru undir miklu álagi en það lýsir sér þannig að yfirmenn sem eru vel meðvitaðir um getu sína og mikilvægi fyrir fyrirtækið krefjast þess sama af öllum öðrum og eiga það til að bregðast illa við ef undirmenn standa svo ekki undir væntingum en það hefur einmitt verið mikið um aukningu eineltis af þessari gerð í Bretlandi hin síðustu ár. Skynsamlegt fólk getur sem betur fer vanið sig af háttalaginu og sér í lagi er auðvelt að benda yfirmönnum sem ekki hafa ann- að á stefnuskránni en að vinna vinnuna sína á að stjórnunarmáti þeirra getur virkað ógnandi og niðurlægjandi fyrir undirmenn. Afleiðingar eineltis og viðbrögð Þolendur eineltis geta meðal annars upplifað eftirfarandi;  Svefnleysi, streitutengda sjúkdóma s.s. höfuðverk og vöðvabólgu.  Minni afkastagetu.  Félagslega einangrun og höfnun.  Minna sjálfsálit og traust til annarra.  Ótta, kvíða eða örvæntingu.  Hjálparleysi, öryggisleysi og andúð á vinnu.  Þráhyggju eða hefndarþorsta. Til að spyrna á móti er best að grípa inn í einelti strax og gagn- rýna þesskonar hegðun. Ef það er ekki nóg þá á að skrá niður hvað gerist, nákvæmlega, í hvert skipti sem viðkomandi er beitt- ur einelti. Það er einnig mikilvægt að ræða við trúnaðarmann, starfsmannastjóra eða yfirmann og gera grein fyrir vanda- málinu og alvarleika þess. Einelti á vinnustöðum Morgunblaðið/Jim Smart Margir sem verða fyrir einelti upplifa það sterkt að skóla- völlurinn hafi verið fluttur inn á vinnustaðinn og vita ekki hvernig á að bregðast við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.