Morgunblaðið - 13.08.2006, Page 24
24 C SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sölufulltrúi
Útgáfufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar
eftir sölufulltrúum í fullt starf. Um er að ræða
kynningu og sölu á auglýsingum í þau verk
sem fyrirtækið gefur út. Fyrirtækið gefur út hin
ýmsu blöð og tímarit og sérhæfir sig í útgáfu
til erlendra ferðamanna. Krefjandi starf í
skemmtilegu umhverfi.
Reynsla af sölu- og kynningarmálum æskileg
en ekki skilyrði. Góð laun fyrir rétta aðila.
Umsóknir sendist á umsokn@sagaz.is
Starf óskast
32 ára, reglusamur og skipulagður maður með
mikla reynslu af stjórnun og rekstri óskar eftir
starfi.
Hef góða færni í mannlegum samskiptum.
Er með mikla tölvukunnáttu.
Er samviskusamur og samvinnufús.
Er óhræddur við að axla ábyrgð.
Hef einnig reynslu af störfum erlendis.
Vinsamlegast sendið tölvupóst á
starfsumsokn@hotmail.com
- Einn vinnustaður
Verkamenn á hverfastöðvar
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf.
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og
starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar
Um er að ræða framtíðarstörf. Æskilegt er að
starfsmenn geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjartur
Sigfússon yfirverkfræðingur, skrifstofu gatna- og
eignaumsýslu (gudbjartur.sigfusson@reykjavik.is) og
Pétur Kr. Pétursson (petur.k.petursson@reykjavik.is)
og í síma 411 8000.
Umsóknarfrestur er til 27. ágúst.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í afgreiðslu
mannauðsdeildar, Skúlatúni 2, sem er opin kl. 8.20-
16.15 alla virka daga eða senda umsóknir með
tölvupósti til mannaudsdeild.fs@reykjavik.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Reykjavíkurborgar og Eflingar, nánari upplýsingar
um þau veita starfsmenn mannauðsdeildar í síma
411 11 11.
Framkvæmdasvið óskar eftir að ráða verkamenn
við borgarframkvæmdir til starfa hjá
hverfastöðvum sviðsins.
Starfssvið:
Hverfastöðvar Framkvæmdasviðs sjá um
daglega þjónustu við íbúa borgarinnar vegna
ábendinga og athugasemda um hvaðeina sem
viðkemur starfsemi skrifstofu gatna- og
eignaumsýslu. Bækistöðvarnar sjá m.a. um opin
svæði og skólalóðir, stéttar og grasviðgerðir,
ruslatínslu og stampatæmingar auk þess að sjá
um að ryðja snjó af stofnanalóðum og aðra fínni
snjóhreinsun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Starfsmenn verða að hafa gott atgervi, vera
verklagnir og heilsuhraustir. Einnig er æskilegt
að þeir hafi almenn ökuréttindi.
Starfskona óskast í kvennaathvarfið.
Starfið er krefjandi vaktavinna sem felst í að aðstoða
konur og börn sem til athvarfsins leita. Ekki er krafist
sérstakrar menntunar, en starfskonur skulu vera orðnar
25 ára og búa yfir nærgætni, hæfileikum til að vinna
sjálfstætt og skipulega, og getu til að ráða við
krefjandi aðstæður í mannlegum samskiptum.
Áætluð er tveggja vikna þjálfun í upphafi starfs.
Í kvennaathvarfinu er lögð áhersla á heimilislegt og
notalegt andrúmsloft þar sem ríkir góður starfsandi.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Ásdísardóttir í síma 561 1204
eða netfangi: kvennaathvarf@kvennaathvarf.is.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 20. ágúst.
Upplýsingar um starfsemina er að finna á heimasíðunni:
www.kvennaathvarf.is
Starfskona óskast
Raðauglýsingar
sími 569 1100