Morgunblaðið - 13.08.2006, Side 26

Morgunblaðið - 13.08.2006, Side 26
26 C SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Staða erfðatölfræðings Hjartavernd leitar að tveimur erfðatölfræðingum. Starfið felst í úrvinnslu gagna í tengslum við Öldrunarrannsóknina og aðrar rannsóknir Hjartaverndar. Önnur staðan verður að hluta til í nánum tenglsum við Johns Hopkins háskólann í Baltimore, BNA. Um er að ræða úrvinnslu á erfðamörkum í stórum rannsóknahópum frá almennu þýði. Hæfniskröfur eru PhD eða sambæri- leg menntun í tölfræðilegri erfðafræði og reynsla í meðferð stórra gagnabanka. Hjartavernd (The Icelandic Heart Association) is looking for two statistical geneticists. The positions involve analysis of data collected in the Age Gene/Environment-Reykjavik Study (AGES-Reykjavik) and other studies at Hjartavernd. One position will be partly in collaboration with Johns Hopkins University in Baltimore, USA. The scientists will analyze genetic polymorp- hism data generated in large population based studies. Position requirements are a PhD or similar education in statistical genetics and experience in working with large datasets. Upplýsingar veitir Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar, í síma 535 1800 eða v.gudnason@hjarta.is Staða lífeindafræðings Lausar eru tvær stöður lífeindafræðinga hjá Klíniskri lífefnafræðistofu Holtasmára (KLH ehf). Um er að ræða almenn rannsóknastofustörf í klínískri lífefnafræði. Upplýsingar veitir Alda M. Hauksdóttir, yfirlífeindafræðingur KLH, milli kl. 11-12 alla virka daga. Umsóknum skal skilað fyrir 24. ágúst á netfangið atvinna@hjarta.is. Hjartavernd, Holtasmára 1, 201 Kóp., sími 535 1800. Rannsóknarstöð Hjartaverndar var stofnuð árið 1967 með víðtækri faraldsfræðilegri rannsókn, Hóprannsókn Hjartaverndar, þar sem áhersla var lögð á að finna helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma hérlendis. Nýjasti áfangi í rannsókninni er Öldrunarrannsókn Hjartaverndar þar sem tæplega 6000 manns hafa verið skoðaðir en þeir tóku jafnframt allir þátt í fyrri áföngum Hóprannsóknar Hjartaverndar. Í Öldrunarrannsókninni eru öll helstu líffærakerfi skoðuð og er Hjartavernd með fullkomnustu myndgreiningardeild hérlendis. Hjartavernd vinnur ennfremur að forvörnum á sviði hjarta- og æðasjúkdóma, m.a. með áhættumati Hjartarannsóknar þar sem helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma eru skoðaðir. Hjá fyrirtækinu vinna um 50 manns með þverfaglegan bakgrunn, þar af eru nokkrir sem stunda framhaldsnám við Háskóla Íslands. - vi› rá›um Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • www.hagvangur.is Starfsma›ur í skráningardeild Starfssvi› Umsjón me› öllu sem l‡tur a› n‡skráningu lyfja og vi›haldi marka›sleyfa. Samskipti vi› lyfjafyrirtæki, heilbrig›isyfirvöld og dreifingar- a›ila. Hæfniskröfur Háskólamenntun á heilbrig›issvi›i (lyfjafræ›i, hjúkrunarfræ›i e›a sambærileg menntun). Gó› kunnátta í íslensku, ensku og einu Nor›urlandamáli. Gó› almenn tölvuflekking. Frumkvæ›i og sjálfstæ›i í vinnubrög›um. Fagmennska og hæfni í mannlegum samskiptum. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 21. ágúst nk. Uppl‡singar veitir Elísabet Sverrisdóttir. Netfang: elisabet@hagvangur.is Icepharma er eitt af stærstu fyrirtækjum landsins í sölu- og marka›ssetningu á heilbrig›isvöru- og lækningatækjum. Fjöldi starfsmanna er rúmlega 70 og er fyrirtæki› í eigu Atorku Group. Icepharma er skipa› hæfu starfsfólki me› mikla flekkingu á íslenskum lyfja- og heilbrig›ismarka›i. fia› á a› baki langan starfsaldur og hefur margflætta menntun á svi›i lyfja-, vi›skipta-, og hjúkrunarfræ›i. www.icepharma.is Icepharma óskar eftir a› rá›a starfsmann í skráningardeild. Starfsfólk í mötuneyti Starfsfólk óskast í mötuneyti Reykjalundar endurhæfingar. Upplýsingar veitir Gunnar Jónsson í símum 585 2014 og 896 4171. Ferðaþjónustan Iceland Excursions - Gray Line Iceland óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra Fyrirtækið er leiðandi í nýsköpun fyrir ferða- menn á sviði dagsferða og annarra skipulagðra ferða en starfar einnig á markaði við skipulagn- ingu og akstur hópferða. Fyrirtækið hefur vaxið hratt á undanförnum árum og komið upp góðum samböndum við aðila sem selja ferðir til Íslands. Félagið hefur fullt ferðaskrifstofu- leyfi og mikla möguleika á enn frekari vöruþró- un og vexti. Varðandi frekari upplýsingar er vísað á heimasíðu félagsins www.grayline.is. Leitað er að einstaklingi, manni eða konu, sem vill stuðla að frekari uppbyggingu og leit nýrra tækifæra. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur, áætlunargerð, eftirfylgni og starfsmanna- og skrifstofuhald en um 70 manns vinna hjá fyrir- tækinu. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af fyrir- tækjarekstri og/eða menntun á sviði viðskipta. Reynsla af ferðaþjónustu er æskileg. Umsóknir berist Iceland Excursions - Gray Line Iceland, Höfðatúni 12, 105 Reykjavík fyrir 23. ágúst nk. eða rafrænt á jvi@grayline.is. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnað- armál. Nánari upplýsingar veitir Júlíus Vífill Ingvarsson stjórnarformaður félagsins í síma 540 1313 á milli kl. 13 og 15. Aðalendurskoðandi Seðlabanki Íslands auglýsir eftir aðalendurskoðanda. Aðalendurskoðandi heyrir undir bankaráð og er ráðinn af því. Aðalendurskoðandi stýrir starfi endurskoðunarsviðs bankans sem annast endurskoðun og innra eftirlit með starfsemi bankans. Áskilið er a.m.k. viðskiptafræðimenntun auk löggildingar sem endurskoðandi og starfsreynslu. Aðalendurskoðandi þarf að hafa frumkvæði, getu til sjálfstæðra vinnubragða og mikla samskipta- hæfileika. Upplýsingar um starfið veitir Ingvar A. Sigfússon, rekstrarstjóri, en umsóknir skulu sendar Helga S. Guðmundssyni, formanni bankaráðs, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík, eigi síðar en 8. september nk. KÓPAVOGSBÆR www.kopavogur.is - www.job.is Frá leikskólum Kópavogs Kópavogsbær óskar eftir að ráða leikskólakennara og fleira starfsfólk í leikskóla Kópavogs. • Um er að ræða heilar stöður og hluta- stöður. Kópavogsbær rekur 16 leikskóla og leitast er við að búa sem best að leik- skólunum og þeim sem þar dvelja, börn- um og starfsmönnum. • Leitað er að fólki sem er tilbúið til að taka þátt í metnaðarfullu, skemmtilegu leikskólastarfi og fjölbreyttu þróunar- starfi þar sem starfsgleði er í fyrirrúmi. Kynnið ykkur leikskóla Kópavogs á heimasíðu þeirra www.leikskolar.kopavogur.is þar sem jafnframt er hægt að sækja um stöðurnar í gegnum job.is. Upplýsingar um lausar stöður gefur leikskóla- fulltrúi (sími: 570-1600 eða netfang: sesselja@ kopavogur.is ) og leikskólastjórar í símum leik- skólanna eða í tölvupósti (nafnleikskólans@ kopavogur.is ). Laun eru samkv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um störfin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.