Morgunblaðið - 13.08.2006, Page 29

Morgunblaðið - 13.08.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 2006 C 29 KÓPAVOGSBÆR www.kopavogur.is - www.job.is Frá Salaskóla Starfsfólk óskast í eftirfarandi störf: • Matráður – afleysingar • Stuðningsfulltrúi – hlutastarf • Stundakennari í þýsku – 2 stundir í viku • Starfsfólk í Dægradvöl Laun samkv. samningi Kjaranefndar sveit- arfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar gefur Hafsteinn Karlsson, skólastjóri í síma 570 4600, netfang hafsteinn@ salaskoli.is eða Hrefna Björk Karlsdóttir, aðstoð- arskólastjóri í síma 570 4600, netfang hrefna@ salaskoli.is. Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um störfin. Aðstoð á tannlæknastofu Aðstoð vantar á tannlæknastofu í 101 Reykja- vík. Um er að ræða rúmlega 50% starf eftir há- degi, nema föstudaga fyrir hádegi. Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. eða á box@mbl.is merktar: „A — 18850". Óskum eftir að ráða kraftmiklar, duglegar manneskjur sem sækjast eftir frama í sölu- og sölustjórn, sem lærlinga. 1. 450.000 kr. sölulaun ef sölutakmarki er náð, meðan á þjálfun stendur. 2. Ráðning sem fastráðinn sölumaður, innifalin hlunnindi m.a.; 1. 250.000 kr. grunnlaun. 2. 450.000 kr. sölulaun ef sölutakmarki er náð. 3. Prósentubónus af árangri deildar. 4. Fyrirtækisbifreið til eigin nota. 5. Ferðalög til útlanda ársfjórðungslega. 6. Möguleiki á stöðuhækkun í sölustjóra. Umsækjendur verða að skila inn bæði ferilskrá og mynd til augldeildar Mbl. eða á box@mbl.is merktar: „K — 18899“. Hársnyrtistofa Dóra Óskum eftir að ráða hársnyrti. Góð laun í boði. Uppl. gefur Dóri í síma 899 6637, 557 1878 og Inga í 863 7949. Þjónustustarf SKG veitingar á Hótel Ísafirði óska eftir að ráða starfskraft í veitingasal. Um vaktavinnu er að ræða. Nánari upplýsingar gefur Karl í síma 895 0292 frá kl. 9.00 til 16.00 alla virka daga. Forritari á Kerfishug- búnaðarsviði Marel leitar að drífandi einstakling með óbil- andi áhuga á sínu fagsviði Forritari á Kerfishugbúnaðasviði Þú færð að:  líma við krefjandi verkefni sem krefjast fram- úrskarandi færni í hugbúnaðargerðl  kynnast og vinna með með mjög færum sér- fræðingum á sviði hátækniiðnaðar  þróa nýjan hugbúnað sem settur verður upp hjá viðskiptavinum Marel um allan heim.  vinna í öflugu þróunarumhverfinu: Visual Studio 2005, C# og SQL Server 2005  koma upp öflugustu heildarlausnum sem til eru fyrir matvælaiðnað  starfa í vinnuumhverfi sem er opið, sveigjan- legt, fjölskylduvænt og býður upp á góða aðstöðu til íþróttaiðkunar  ferðast um heiminn, hitta viðskiptavini okkar og fylgja verkefnum þínum eftir Í staðinn verður þú að:  hafa menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðar-, rafmagns- eða tölvuverkfræði  hafa starfað minnst tvö ár við hugbúnaðargerð  hafa þróað hugbúnað fyrir Microsoft NET umhverfi, Microsoft Windows stýrikerfi og einhverja tegund SQL gagnagrunns.  hafa mjög gott vald á ensku og geta ferðast vegna starfsins  eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í samhentu teymi  búa yfir fagmannlegum vinnubrögðum, áhugasemi, skipulagshæfni og styrk í mann- legum samskiptum. Frekari upplýsingar um starfið veitir Helgi Hafþórsson (helgi.hafthorsson@marel.is) í síma 563 8000). Sækja skal um starfið til og með 21.ágúst nk. Við leitum að hársnyrtifólki Ert þú metnaðafullur sveinn eða meistari sem fylgist með stefnum og straumum í hárgreiðslu? Ef svo er hafðu samband við okkur á HÁRSögu harsaga@harsaga.is Hársaga - Hagatorg Hársaga - Austurstræti (Sigrún) 896 8562 / 552 1690 Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á 5 daga endurhæfingardeild öldrunarsviðs. Fjölbreytt starf þar sem áhersla er lögð á teymisvinnu. Hjúkrunarfræðingur óskast í dagvinnu á göngudeild öldrunarsviðs. Fjölbreytt starf. Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu í öldrunarhjúkrun eða vinnu á göngudeild. Umsóknir vegna göngudeildar skulu berast fyrir 28. ágúst nk. til Erlu K. Sigurgeirsdóttur, deildarstjóra göngudeildar, Landakoti og veitir hún jafnframt uppl. í síma 543 9900, netfang erlaks@landspitali.is. Umsóknir vegna 5 daga deildar skulu berast fyrir 28. ágúst nk. til Lúðvíks H. Gröndals deildarstjóra, Landakoti og veitir hann jafnframt uppl. í síma 543 9879, netfang ludvikg@landspitali.is. Hjúkrunarfræðingar Óskum eftir áhugasömum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum á barnaskurðdeild, lyfjadeild, vökudeild og bráðamótttöku barna. Boðið verður upp á markvissa aðlögun með reyndum hjúkrunar- fræðingum ásamt miklum möguleikum á starfsþróun og verkefna- vinnu. Á Barnaspítala Hringsins er annast um börn og unglinga að 18 ára aldri. Áhersla er lögð á fjölskylduhjúkrun þar sem barnið og fjöl- skylda þess er í forgrunni. Barnaspítali Hringsins er staðsettur í nýju og björtu húsnæði þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar. Þar er starf- andi hópur fagfólks þar sem samheldni og samvinna allra stétta er höfð í fyrirrúmi. Umsóknir berist fyrir 28. ágúst nk. til Hjálmtýs R. Baldurssonar skrif- stofustjóra, Barnaspítala Hringsins, netfang hjalmtyr@landspitali.is. Upplýsingar veita: • Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir, deildarstjóri á barnadeild 22E, sími 824 5916, netfang johahjor@landspitali.is, • Fríða Ólöf Ólafsdóttir, deildarstjóri á barnaskurðdeild, sími 824 5683, netfang fridaola@landspitali.is, • Ingileif Sigfúsdóttir, deildarstjóri á bráðamóttöku barna, sími 824 5862, netfang ingilsig@landspitali.is og • Elísabet Halldórsdóttir, deildarstjóri á vökudeild, sími 824 5826, netfang elisabha@landspitali.is. Móttökuritari óskast sem fyrst á sýklafræðideild LSH við Barónsstíg. Starfshlutfall 100%, vinnutími frá kl. 08:00-16:00. Starfssvið: Almenn afgreiðsla, símavarsla, frágangur skjala og ýmis sérverkefni. Hæfniskröfur: Lipurð og hæfni í mannlegum samkiptum, tölvukunn- átta og sjálfstæð vinnubrögð. Umsóknir, ásamt starfsferilskrá, skulu berast fyrir 28. ágúst nk. til Helenar R. Gestsdóttur, skrifstofustjóra sýklafræðideildar við Barónsstíg og veitir hún jafnframt uppl. í síma 543 5670, netfang helenag@landspitali.is. Sérhæft skrifstofustarf - bókhald Fjármálasvið óskar eftir að ráða sérhæfðan starfsmann í fjárhags- bókhald spítalans. Nauðsynlegt er að starfsmaðurinn geti unnið sjálf- stætt við bókhaldsverkefni, afstemmingar efnahagsliða og úrlausn ýmissa viðfangsefna við fjárhagsbókhald. Eftirfarandi kröfur eru gerðar til umsækjenda: • Stúdentspróf, verslunarpróf eða önnur sambærileg menntun. • Mikil reynsla af störfum við fjárhagsbókhald. • Sjálfstæði í störfum og framtakssemi í úrvinnslu verkefna. • Hæfni í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að starfsmaðurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir skulu berast fyrir 28. ágúst nk. til Bjarka Þórs Baldvinssonar verkefnastjóra, fjármálasviði, Eiríksgötu 5, 3. hæð E og veitir hann nánari uppl., netfang bjarkiba@landspitali.is. Sérhæft skrifstofustarf - fjárstýring Fjármálasvið óskar eftir að ráða sérhæfðan starfsmann í fjárstýringu og innheimtu spítalans. Nauðsynlegt er að starfsmaðurinn geti unnið sjálfstætt við innheimtuverkefni, afstemmingar efnahagsliða og úrlausn ýmissa viðfangsefna við fjárstýringu. Eftirfarandi kröfur eru gerðar til umsækjenda: • Stúdentspróf, verslunarpróf eða önnur sambærileg menntun. • Mikil reynsla af störfum við fjárstýringu og/eða innheimtu. • Sjálfstæði í störfum og framtakssemi í úrvinnslu verkefna • Hæfni í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að starfsmaðurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir skulu berast fyrir 28. ágúst nk. til Sigrúnar Guðjónsdóttur, deildarstjóra, fjármálasviði, Eiríksgötu 5, 3. hæð E og veitir hún nánari uppl., netfang sgudjons@landspitali.is. Laun ofangreindra starfa eru samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5 og á heimasíðu www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðn- ingar í störf á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali - háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður. Lager/útkeyrsla Heildverslun óskar eftir að ráða starfsmann á lager og til útkeyrslu. Fullt starf. Hentar vel einstaklingi sem hefur ákveðið að taka sér námshlé í 1-2 ár. Starfssvið: Almenn lagerstörf/útkeyrsla. Hæfniskröfur:  Nákvæmur, heiðarlegur og stundvís  Tölvukunnátta er æskileg  Heilsuhraustur. Reyklaus vinnustaður. Vinsamlegast sendið inn umsóknir á auglýs- ingadeild Mbl. eða á box@mbl.is merktar „L-18905“ fyrir fimmtudaginn 17. ágúst. „Au pair“ - Osló Ísl. fjölsk. í Noregi leitar að barngóðri og sjálf- stæðri „au pair“. Verður að vera reyklaus og m. bílpróf. Uppl. í síma 0047 415 35112 / 0047 6712 4830 / fagerstrand@msn.com. Vélamenn, bílstjórar og starfsfólk í mötuneyti Suðurverk hf. óskar eftir að ráða starfs- fólk til starfa í Kárahnjúkum. Unnið er í 12 daga úthöldum og frí í 6 daga. Mjög góð aðstaða fyrir starfsmenn á vinnustað. Vélamenn og bílstjórar Uppbygging jarðvegsstífla. Vaktavinna. Starfsfólk í mötuneyti Aðstoð í mötuneyti. Unnið kl. 7–19. Upplýsingar veittar í síma 892 0067. Umsóknir berist á skrifstofu í Dranga- hrauni 7 eða á heimasíðuna www.sudurverk.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.