Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 14
14 F MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is
Bragi Björnsson
lögmaður og
löggiltur
fasteignasali
Úlfar Þ. Davíðsson
sölustjóri
Börkur Hrafnsson
lögmaður og
löggiltur
fasteignasali
HÁTÚN 6A
SÍMI:
5 12 12 12
FAX:
5 12 12 13
NETFANG:
foss@foss.is
FASTEIGNASALA
VANTAR
VEGNA MIKILLAR SÖLU UPP Á SÍÐKASTIÐ VANTAR OKKUR ALLAR GERÐIR
EIGNA Á SKRÁ. ENDILEGA HAFIÐ SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR.
NEÐSTALEITI - FALLEG
Falleg íbúð á 4. hæð (efstu hæð) auk
27 fm stæði í bílageymslu í lyftuhúsi.
Fallegt útsýni. Lyfta er í húsinu og
gengur beint niður í bílageymslu.
Íbúðin snýr í suður frá stofu, útgengt
á svalir frá stofu. 3 svefnherbergi, hol,
eldhús með borðkrók, stofa, svalir,
baðherbergi, þvottahús, geymsla og
stæði í bílgeymslu, auk þess er sam-
eiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. Góð forstofa með fataskáp, eld-
hús með góðri innréttingu, uppþvottavél og ísskápur fylgja. Stofa og borð-
stofa í alrými. Baðherbergi er snyrtilegt með baðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottahús innan íbúðarinnar. Verð 27,9 m.
HRAUNBÆR - GÓÐ
Nýlega endurnýjuð íbúð. Komið er inn
á anddyri með flísum og fatahengi.
Rúmgott hol með flísum á gólfi. Eld-
hús er rúmgott, nýleg falleg innrétting
úr hlyni, vönduð tæki, pláss fyrir eld-
húsborð, innaf eldhúsi er geymsla.
Stofa er björt. Rúmgóðar svalir til suð-
urs. Svefnherbergisgangur með
tveimur svefnherbergjum. Baðher-
bergi með dúk á gólfi og flísum á
veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu. Í sameign er þvottahús á sömu hæð
og íbúðin. Verð 16,9 milljóir.
LÓMASALIR- 3JA HERB. ÚTSÝNISÍBÚÐ
Falleg og vel skipulögð 90,6 fm, 3ja
herbergja íbúð á annarri hæð við Lóm-
asali í Kópavogi. Sérinngangur af svöl-
um. Stæði í bílskýli fylgir eigninni. For-
stofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Alrými sem samanstendur af stofu,
borðstofu og eldhúsi, parket úr rauð-
eik á gólfum. Eldhús með flísum á
gólfi, falleg innrétting. Ca 13 fm flísa-
lagðar svalir, frábært útsýni. Sér-
þvottahús er í íbúð. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með parketi.
Verð 23,9 milljónir.
LAUGATEIGUR - HÆÐ MEÐ BÍLSKÚR
Glæsileg og þónokkuð
endurnýjuð hæð ásamt bíl-
skúr á eftirsóttum stað.
Hæðin er alls 141 fm ásamt
28,9 fm bílskúr. Samtals er
eignin 170 fm. HÆÐIN ER
141 FM OG BÍLSKÚR 28,9
FM, samtals 170 FM. Íbúð-
ið er mjög opin og björt.
Þrjár samliggjandi stofur,
parket á gólfi. Eldhús er
rúmgott með nýjum tækj-
um og innréttingu. Hannað
af innanhúsarkitekt. Baðherbergi er flísalagt hólf í gólf með fallegum tæk-
um. Rúmgott svefnherbergi. UM ER AÐ RÆÐA FALLEGA EIGN Á AFAR EFT-
IRSTÓTTUM STAÐ VIÐ LAUGATEIG Í REYKJAVÍK. Verð 39,7 millj.
FREYJUGATA - RÚMGÓÐ 2JA HERB.
Falleg og rúmgóð 2ja herbergja íbúð á
3. hæð á eftirsóttum stað við Freyj-
ugötu í Þingholtunum. Íbúðin er alls
69,1 fm. Stofa, borðstofa og eldhús í
fallegu alrými, parket á gólfum. Eldhús
með snyrtilegri eldhúsinnréttingu, ný-
leg tæki. Útgengt á svalir frá eldhúsi.
Verð 19,9 milljónir.
SUMARHÚS Í LANDI DAGVERÐAR-
NESS Í SKORRADAL
Einstaklega fallegt og vandað sum-
arhús í landi Dagvarðarnes. Um er
að ræða einstakt sérsmíðað sumar-
hús. Tvö svefnherbergi auk þriggja
lokrekkna í anda gömlu baðstof-
anna. Eldhús er með vandaðri sér-
smíðari viðarinnréttingu. Baðher-
bergi með sturtu. Á öllum gólfum eru
grárgrænn náttúrusteinn (jaddis). Húsið er með gólfhitakerfi sem gefur jafnan
og góðan hita. Fyrir framan húsið er stór pallur þaðan sem er glæsilegt útsýni
yfir Skorradalinn. Þetta er einstakt og óvenjuglæsilegt sumarhús á fallegri lóð
með góðu útsýni. Verð 19,9 millj.
SUMARHÚS Í LANDI VATNSHOLTS
SUNNAN APAVATNS
Erum með í sölu tvö falleg sumarhús á
fallegum stað sunnan Apavatns. Húsin
eru alls 86,1 fm að stærð (þar af eru 11
fm svefnloft), 32 fm sólpallur fylgir
húsunum. Húsin eru í byggingu. Verð
á fullbúnum bústað er 16,9 milljónir.
Hægt að nálgast teikningar á skrif-
stofu Foss.
LINDARGATA - ELDRI BORGARAR
Vel skipulögð og björt tveggja her-
bergja þjónustuíbúð á sjöttu hæð í
vandaðri lyftublokk. Stofa og eldhús
eru í opnu og björtu rými. Svalir útfrá
stofu. Gott útsýni. Svefnherbergi er
stórt. Íbúðin er einungis ætluð ein-
staklingum 67 ára og eldri. Verð 22
milljónir.
ÁSVALLAGATA - BJÖRT
Falleg 4ra herbergja íbúð alls 92,4 fm
á annarri hæð. Þar af er geymsla 7,7
fm. Gangur með ljósu parketi. Á
vinstri hönd er eldhús með uppruna-
legri eldhúsinnréttingu. Tvær sam-
liggjandi stofur, hægt að breyta einni
stofunni í svefnherbergi. Innaf stofu
er svefnherbergi. Ljóst parket á öllu
nema baðherbergi. Nýjir gluggar að
hluta. Stórt hjónaherbergi með skáp-
um. Baðherbergi er með flísum og
sturtuklefa, bæði innangengt frá
gangi og svefnherbergi. Hátt til lofts.
BREIÐVANGUR - HAFNARFJÖRÐUR
4-5 herbergja íbúð við Breiðvang í
Hafnarfirði. Íbúðin er skráð 118,9 fm,
þar af eru tvennar geymslur (samtals
15 FM). Íbúðin er á fjórðu hæð. Flísa-
lagður inngangur, svefnherbergi á
vinstri hönd. Eldhús með flísum, rúm-
gott pláss fyrir eldhúsborð, innaf eld-
húsi er rými fyrir þvottavél. Útgengt á
svalir, frábært útsýni. Ljóst parket er á
nánast allri íbúðinni. Stofa er rúmgóð
og björt. Tvö svefnherbergi. Baðherbergi flísalagt hólf í gólf. Góður 24,8 fm
bílskúr fylgir íbúðinni. Hiti og rafmagn. Hurðaopnari. Íbúðin er alls 144 fm.
Verð 22,2 milljónir.
HRÍSATEIGUR - SÉRHÆÐ
Góð efri sérhæð við Hrísateig í Reykja-
vík. Íbúðin er alls 142 fm (þar af 32 fm
bílskúr). Flísalagt hol með fataskáp.
Eldhús með eldri innréttingu, pláss fyr-
ir eldhúsborð. Þrjú svefnherbergi eru í
íbúðinni. Tvö rúmgóð með fataskáp-
um, og eitt minna. Tvær samliggjandi
stofur.
HAGAMELUR - FALLLEG
Falleg 116,7 fm neðri sérhæð í tvíbýlishúsi á góðum stað í vesturbænum.
Fallegar innréttingar og gólfefni. Stórt forstofuherbergi með nýju eikarpark-
eti. Hol, opið inn í stofu. Eikarparket á öllum gólfum. Opið úr holi inn í eldhús
og stofu sem er eitt stórt alrými. Gengið úr stofu út í glæsilegan hellulagðan
suðurgarð. Í svefnálmu er hjónaherbergi, parket, skápar úr fallegum við,
barnaherbergi, parket og skápar. Baðherbergi flísalagt hólf í gólf með sturt-
uklefa og baðkari. Þvottahús/geymsla í íbúð. Verð 35,9 milljónir.
BERGSTAÐASTRÆTI - RISHÆÐ
Rishæð í húsi byggðu 1993 í hjarta mið-
bæjarins.ÍBÚÐIN ER ALLS 87,2 fm, en er
þónokkuð undir súð þannig að gólfflötur
er þókokkuð stærri. Fallegt útsýni. Rúm-
gott svefnherbergi. Tvö góð svefnher-
bergi. Eikarparket á gólfum. GÓÐ EIGN
Á AFAR EFTIRSÓTTUM STAÐ MEÐ
GÓÐU ÚTSÝNI. Verð 27 milljónir.
Í SÍMA 512 1212
TALSMANNI neytenda ber samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga
nr. 62/2005 um embættið að standa vörð um hagsmuni og
réttindi neytenda og stuðla að aukinni neytendavernd. Hlut-
verk talsmanns neytenda felst skv. d-lið 2. mgr. 6. gr. sömu
laga m.a. í því að setja fram tillögur um úrbætur á lögum og
stjórnvaldsfyrirmælum er varða neytendur sérstaklega og
taka við erindum neytenda og bregðast við þegar hann telur
brotið gegn réttindum og hagsmunum neytenda.
Talsmaður neytenda hefur sent svohljóðandi tilmæli (TN
06-5) til Staðlaráðs Íslands, sem hefur fallist á tilmælin og
upplýst að undirbúningur að endurskoðun staðalsins sé haf-
inn samkvæmt þeim reglum sem þar um gilda:
„Í framhaldi af samtölum við fulltrúa Staðlaráðs Íslands og
að teknu tilliti til sjónarmiða sem komið hafa fram beinir tals-
maður neytenda því vinsamlegast til ráðsins að leiðrétt verði
misræmi í ábyrgðartíma verka sem er í viðskiptum við neyt-
endur, þ.m.t. húsfélög neytenda, á milli ákvæðis 29.1 í íslensk-
um staðli ÍST 30:2003, Almennum útboðs- og samningsskil-
málum um verkframkvæmdir (eins árs ábyrgð), og 2. mgr. 17.
gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup (2ja ára ábyrgð).
Ákvæði 29.1 í ÍST 30:2003 hljóðar svo:
„Verktaki tekur ábyrgð á verkinu í eitt ár frá því að hann
skilar því. Sama gildir um einstaka verkhluta ef þeim er skil-
að sérstaklega.“
Ákvæði 2. mgr. 17. gr. laga um þjónustukaup hljóðar svo:
„Ef neytandi kvartar ekki innan tveggja ára frá afhend-
ingardegi hinnar seldu þjónustu getur hann ekki síðar borið
gallann fyrir sig. Þetta gildir ekki ef seljandi þjónustu hefur í
ábyrgðaryfirlýsingu eða öðrum samningi tekið á sig ábyrgð
vegna galla í lengri tíma.“
Lögin, sem tóku gildi 1. júní 2001,
„taka til hvers kyns samninga um kaup á þjónustu sem
veitt er neytendum í atvinnuskyni gegn endurgjaldi og þeg-
ar veitt þjónusta felur í sér [2.] vinnu við fasteignir, vinnu
vegna byggingarframkvæmda eða aðrar framkvæmdir á
landi, [og 4.] ráðgjafarþjónustu sem veitt er í tengslum við 2.
tölulið.“
Með tilmælum þessum er ekki tekin afstaða til ákvæða
ÍST 30:2003 að öðru leyti eða ábyrgðartíma á efni.
Þetta tilkynnist hér með.“
Misræmi í ábyrgðartíma verka leiðrétt
Morgunblaðið/Sverrir
Talsmaður Gísli Tryggvason lögfræðingur, talsmaður neytenda.Höfundur er talsmaður neytenda.
Eftir Gísla Tryggvason