Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 F 33 GRÓFARSEL - 109 RVK 252 fm einbýlishús á besta stað í Seljahverfinu. Stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Húsið sem er byggt 1980, er á 2 hæðum og með rúmgóðum bílskúr. Einnig er séríbúð á jarðhæð, sem er með sérinngangi. Þetta er hús sem bíður uppá mikla möguleika, hægt er t.d. að leigja út íbúðina á neðri hæðinni. Einnig er fermetrafjöldi mun meiri en gefinn er upp í fasteignamati, því undir bílskúrnum er pláss sem er rúmir 30 fm, með góðri lofthæð og steyptu gólfi. Einnig er háloft, sem er á milli 40-50 fm sem gæti nýst t.d. sem geymsla eða þá leikherbergi fyrir börn. Þetta er stór og vönduð eign, sem vert er að skoða. Verð 49.800.000,- ENGJAVELLIR - 221 HFJ Stórglæsileg og vel búin 4ra herbergja íbúð. Sem skiptist í forstofu, 3 stór og góð herbergi, geymslu með sérinn- gang, baðherbergi með hita í gólfi, baði og sturtu. Eldhús með fallegri kirsuberjainnréttingu, og náttúrustein á gólfi. Þvottahúsi inn af eldhúsi. Stór og rúmgóð stofa með útgang á stórar svalir. Parket og náttúrusteinn á gólfum, maghony hurðir og skápar. Tvöfaldur ískápur og 42” flatskjár geta fylgt með. Stutt er í skóla og aðra þjónustu. Umhverfið er mjög fallegt í þessu nýja hverfi á Völlunum í Hafnarfirði. Eign sem vert er að skoða. Verð 29.200.000,- UNUFELL - 111 RVK Íbúðin er 101,4 fm á jarhæð með útgengi á notalega ver- önd. Komið inn á hol með korkflísum og parket á gólfi. Af holi er gengið inn í svefnherbergin. Hjónaherbergi er með dúk á gólfi og skáp. Herbergi þar við hlið með dúk á gólfi og þriðja herbergið með parket á gólfi. Baðherbergi er flís- alagt. Stofan er björt og rúmgóð, parket á gólfi og útgengi á suðvestur-verönd. Í eldhúsi og borðstofu er korkur á gólfi og inn af eldhúsi er lítið þvottaherbergi. Stór geymsla fylgir íbúðinni. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Verð 16.900.000,- HEIÐARVEGUR - 800 SELF. Glæsilega 94,2 fm 3ja herbergja íbúð á besta stað á Sel- fossi. Komið er inn í flísalagða forstofu. Björt og stór stofa, 2 svefnherbergi með nýju parket á gólfum. Eldhúsið er með glæsilegri kirsuberjainnréttingu, hiti í gólfinu með nýjum flísum. Baðherbergið er með sturtu og fallegri kirsu- berjainnréttingu. Stórt þvottahús með flísum á gólfi. Bíl- skúrsréttur fylgir eigninni. Glæsileg eign í alla staði. Verð 18.200.000,- SPORÐAGRUNN - 104 RVK 102,3 fm 3-4 herb. íbúð með sérinngang á besta stað. Parketlagt hol. Barnaherb. með parketi. Hjónaherbergi er bjart og rúmgott með parketi og skápum. Baðherbergi er með dúk á gólfi, flísum á veggjum og baðkari með sturtu- aðstöðu. Stofan er rúmgóð með teppi á gólfum. Úr for- stofu er komið inn í eldhús með dúk á gólfi, nýlegri hvítri innréttingu með halogen lýsingu. Inn af eldhúsi er þvotta- hús með dúk á gólfi og hillum. Geymsla er með flísum á gólfi og hillum. Sameiginlegur garður í rækt fylgir eigninni. Leyfilegt er að byggja sólstofu í framhaldi af stofunni. Góð eign á góðum stað. Stutt í alla helstu þjónustu. Verð 21.900.000,- SKIPHOLT - 105 RVK Góð 3ja herb. 88,5 fm íbúð á fjórðu hæð á þessum frábæra stað, miðsvæðis í borginni. Stofan er björt og rúmgóð, með útgengi á stórar vestursvalir. Eldhúsið er með upprunalegri innréttingu og korkdúk á gólfi. Baðher- bergi er með fallegum flísum á veggjum, dúk á gólfi og baðkari. Herbergin, baðherbergi og geymsla/fataherbergi eru innaf gangi sem hægt er að loka. Íbúðin er parketlögð. Góð eign á þessum vinsæla stað í höfuðborginni þar sem stutt er í allar áttir og öll þjónusta innan handar. Verð 18.300.000,- SANDAVAÐ - 110 RVK Erum með í einkasölu þessa glæsilegu og fullbúnu 3ja herbergja íbúð (96 fm). Íbúðin er tilbúin til afhendingar strax fullbúin með eikarparketi og nýjum og vönduðum húsgögnum. Þar telur hvítt leðursófasett, glæsilegt borðstofuborð og stóla, skenk, fallegar gardínur frá Álnabæ ofl. Stórar vestursvalir. Glæsileg sameign, lyfta, ofl. Stæði í bílageymslu. Ath. Frábær greiðslukjör í boði eða allt að 95% fjármögnun. Sölufulltrúar Stórborgar sýna eignina eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 869 2217 og 823 2600. Verðtilboð. RAUÐHELLA - 221 HFJ Erum með í sölu síðasta bilið í þessum góða og stein- steypta atvinnuhúsnæði. Um er að ræða u.þ.b. 120 fm pláss með allt að 6 m. lofthæð. Samþykktur byggréttur að u.þ.b. 25 fm millilofti. Dyrahæð rúmlega 4 m og skilast með hurðaopnara. Húsið skilast í því ástandi sem það er að utan. Lóðin er grófjöfnuð. Allar lagnir eru til staðar fyrir milliloft. Hentar vel fyrir iðnað, verkstæði, lager eða dóta- kassann. Laust fljótlega. Verð 18.200.000,- BÆJARHRAUN - 220 HFJ Vorum að fá í sölu þetta glæsilega íbúðarhótel á þremur hæðum. Stendur við Bæjarhraun, á áberandi stað rétt við stofnbraut og er auglýsingargildi eignarinnar mikið. Góð malbikuð lóð með nægum bílastæðum. * Allir veggir tvöfaldir gipsveggir. Allar lagnir nýjar, lýsing, brunakerfi, loftræsting, flóttaleiðir og fl. * Öll herbergi 2-3 manna (38 herb.), herbergin eru með eikar- innréttingum og hurðum. Öll tæki og húsgögn fylgja, allt nýtt. * Lyklakerfi er skv. ströngustu hótelreglum (tölvuspjöld). Að auki er aðstaða/móttaka f/húsvörð (gestamóttaka), setustofur m/ nýjum húsgögnum, geymslur, þvottahús m/ tækjum, línherb. * Ný lyfta og sameign öll ný, öll gólfefni, lýsing og fl . * Miklir tekjumöguleikar t.d. með að reka sem fullkomið 3 stjörnu hótel eða íbúðarleigu og hótel. Verðtilboð. HÁTEIGSVEGUR - 105 RVK Góð og notaleg 3ja herbergja, 77,3 fm íbúð á 2. hæð. Komið er inn á gang, sem er með góðu skápaplássi og parketi á gólfum. Tvær parketlagðar stofur eru í íbúðinni og úr þeim báðum er fallegt útsýni. Eldhús er lítið en þó með góðu skápaplássi. Svefnherb. er með skápum og parketi á gólfi. Baðherb. er með steyptu og flísalögðu baðkari, upphengdu klósetti, flísum á gólfi og í kringum baðker. Sameiginl. þvottahús er í kjallara en þar er einnig herb. með salernisaðstöðu. Garður er vel gróinn og falleg- ur. Eign í rólegu og fallegu umhverfi sem vert er að skoða. Verð 18.800.000,- HRÍSATEIGUR - 105 RVK Vorum að fá í sölu gott atvinnupláss á götuhæð (gengið beint inn) á vinsælum og grónum stað við Laugalæk í Reykjavík. Plássið er u.þ.b. 50 fm og getur hentað undir ýmiskonar atvinnustarfsemi svo sem nuddstofu, hárgreiðslu- eða snyrtistofu, skrifstofupláss og aðra þjónustustarfsemi. Húsnæðið er í góðu standi. Afhending samkl. Verð 10.900.000,- ÞORLÁKSGEISLI - 113 RVK 7 íbúðir í vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu í þessu vinsæla hverfi í Grafarholti. Íbúðirnar eru 3ja og 4ra herbergja og skilast með flísalögðu baðherbergi og þvottahúsgólfi, en annars án gólfefna. Innréttingar og skápar eru með spón- lagðri eik frá HTH/Ormsson. Stáltæki eru frá AEG. Stæði í bílskýli fylgir flestum íbúðum. Svalagólf skilast flísalögð. Húsin afhendast fullbúin að utan, lóð fullbúin svo og bíla- stæði. Traustur byggingaraðilli JB byggingafélag ehf sem byggt hefur fjölmargar byggingar við góðan orðstír. Verðdæmi : 3ja herbergja 101,4 fm 24,4 milljónir 4ra herbergja 114,8 fm 27,6 milljónir 4ra herbergja 139,5 fm 33,5 milljónir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.