Morgunblaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Toyota Avensis 1,8 bensín,
nýskr. 6/2005, ekinn 22 þ. km,
.sjálfskiptur, heilsársdekk, motta í
skott. Verð 2.450.000. Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 120 GX
Diesel, nýskr. 10/2004, ekinn 36
þ. km, sjálfskiptur, 33" breyttur,
krókur, filmur. Verð 4.790.000.
Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 120 GX
Diesel, nýskr. 6/2006, ekinn 4 þ.
km, sjálfskiptur, krókur, filmur,
aukasæti. Verð 5.280.000. Ath.
skipti.
420 6600
REYKJANESBÆ
Toyota Reykjanesbæ - Njarðarbraut 19, www.toyotasalurinn.is
420 6600
Toyota Rav4 2,0 bensín,
nýskr. 4/2004, ekinn 18 þ. km,
sjálfskiptur, spoiler. Verð
2.490.000. Ath. skipti.
Nisssan Patrol SE+ Diesel,
nýskr. 1/1999, ekinn 156 þ. km,
beinskiptur, 35" breyttur, topp-
lúga, upptekin vél hjá Kistufelli.
Verð 1.950.000. Ath. skipti.
M. Benz ML-320 AMG útlit 3,2
bensín, nýskr. 1/2002, ekinn 80 þ.
km, sjálfskiptur, sóllúga, krókur,
spoiler, brettakantar, leiðsögukerfi,
leður, bose hljóðkerfi. Verð
3.200.000. Ath. skipti.
Dodge Ram 3500 TD + ferðahús
Diesel, nýskr. 6/2004, ekinn 50 þ.
km, sjálfskiptur, leður, ferðahús
með vaski, eldavél, sturtu, wc,
ískáp o.fl. o.fl. Verð saman
4.990.000. Ath. skipti.
Toyota Land Cruiser 120 LX
Diesel, nýskr. 3/2006, ekinn 17
þ. km, sjálfskiptur, krókur, vara-
dekkshlíf, álfelgur, samlitur spoil-
er, filmur. Verð 4.990.000. Ath.
skipti.
Lexus RX 300 Luxury,
nýskr. 2/2003, ekinn 47 þ. km,
sjálfskiptur, leður, krókur, viðar-
innrétting. Verð 3.350.000. Ath.
skipti.
Toyota Land Cruiser 120 LX
Diesel, nýskr. 03/2006, ekinn 12
þ. km, sjálfskiptur, samlitur, ál-
felgur, húddmerki, krókur. Verð
4.790.000.
Toyota Land Cruiser 100 VX
Diesel, nýskr. 8/2005, ekinn 25
þ. km, sjálfskiptur, aukasæti,
leður, 33" breyttur, topplúga,
spoiler, filmur, webasto, krókur.
Verð 7.800.000. Ath. skipti.
Toyota Avensis 1,8 bensín,
nýskr. 01/2005, ekinn 42 þ. km,
sjálfskiptur, filmur. Verð
2.390.000. Ath. skipti.
MICHAEL Schumacher keppir um
helgina síðasta sinni í Formúlu 1.
Verður það 248. mót hans en hann
hefur fagnað sigri oftar en nokkur
annar eða 91 sinni. Hann segist
stefna að sigri í mótinu og tryggja
Ferrari heimsmeistaratitil bílsmiða.
Schumacher sagðist eftir síðasta
mót vera búinn að tapa fyrir Fern-
ando Alonso hjá Renault í keppninni
um heimsmeistaratitil ökuþóra.
Stærðfræðilega á hann þó enn mögu-
leika á titlinum.
Hann segir Ferrari verðskulda tit-
il bílsmiða og hann muni gera sitt til
að svo megi verða. „Drengirnir verð-
skulda hann. Menn sem rísa upp á
erfiðum tímum og komast á toppinn
aftur og leggja sig fram af jafn mikl-
um áhuga og ástríðu eiga æðstu virð-
ingu skilda,“ skrifar Schumacher á
heimasíðu sína á netinu.
„Ég ber virðingu fyrir þeim og
þeir eru þeir bestu á sínu sviði. Að
mínu mati væri bílsmiðatitillinn
verðskuldaður,“ bætir hann við. Re-
nault þykir líklegra til að hampa titl-
inum þar sem liðið hefur níu stiga
forskot á Ferrari fyrir kappakstur
helgarinnar, sem fram fer í Sao
Paulo í Brasilíu.
„Við munum sækja af fullum
þunga og viljum vinna tvöfalt. Eini
möguleiki okkar á titilinum er að það
megi gerast,“ sagði Schumacher.
„Vitaskuld er ég meðvitaður um að
þetta verður síðasta mót mitt á 16
ára ferli. Það þarf ekki að taka fram
að ég vil ljúka ferlinum með góðu
móti,“ bætir hann við.
Schumacher hefur unnið heims-
meistaratitil ökuþóra oftar en nokk-
ur annar eða sjö sinnum. Hann vann
fyrstu tvo titlana með Benetton 1994
og 1995 og síðan fimm í röð með
Ferrari á árunum 2000–2004.
Síðasta keppni
Schumachers
AP
Endapunkturinn Michael Schumacher fagnar með Jean Todt á Monza
brautinni. Fræknum ferli Schumachers lýkur í Sao Paulo um helgina.
TENGLAR
..............................................
www.michael-schumacher.rtl.de
Í FYRRA lést enski verkfræðing-
urinn Keith Duckworth en hann
stofnaði Cosworth-fyrirtækið með
kollega sínum Mike Costin og með
því að steypa saman fyrri og seinni
hlutum eftirnafna sinna fengu þeir
hið fína nafn Cosworth árið 1958.
Cosworth-fyrirtækið er eitt hið
allra farsælasta í kappakstri og
hefur meðal annars ráðið ríkjum
um lengri tíma í Formúlu 1 og rallíi
þar sem bílar útbúnir vélum frá
Cosworth sýndu yfirburði sína.
Lengst af hefur samstarf Cos-
worth verið mest og best við Ford
en Cosworth hefur einnig selt
þekkingu sína áfram, t.d. til notk-
unar í Mercedes Benz, í 16 ventla
190 bílunum.
Sigursælasta vél Cosworth hefur
líklega verið V8-vélin frá sjöunda
áratug Formúlu 1 en sú vél skilaði
177 sigrum.
Cosworth
Cosworth DFV (Double Four
Valve) vélin er sú sigursælasta í
Formúlu eitt frá upphafi en mis-
munandi útgáfur þessari öflugu V8
vél voru notaðar í rúmlega 20 ár.
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122