Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.2007, Blaðsíða 3
Kári Elíson, næturvörður á Grund, hefur
leikinn:
Eitt sinn um nótt þurfti ég að laga ljós yfir
rúmi einnar heimiliskonunnar. Til þess að
komast að ljósinu varð ég að fara að einhverju
leyti upp í rúmið til hennar og segi þá um leið:
„Ég er bara komin upp í rúm til þín, frú mín
góð.“
„Já,“ svaraði sú gamla. „Það fer nú hver að
verða síðastur til þess.“
*
Ómar Ragnarsson fór að sjálfsögðu mikinn
þegar hann fyrir síðustu alþingiskosningar
opnaði kosningaskrifstofu Íslandshreyfingar-
innar í Suðvesturkjördæmi. Þar réðist hann
meðal annars að Frjálslynda flokknum og
stefnu hans í innflytjendamálum og sagði þá
þetta:
„Það besta sem myndi gerast er ef við
næðum atkvæðum Frjálslynda flokksins og
myndum þurrka hann út. Þeir eru á móti inn-
flytjendum, en það er bara staðreynd að inn-
flytjendur hafa gert okkur svo margt gott ...
Til dæmis hafa innflytjendur kynnt okkur
fyrir framandi mat og kryddi. Innflytjendur
hafa tekið að sér að vinna í fiski sem engir
Íslendingar vilja taka að sér.Þeir hafa tekið að
sér byggingavinnu. Og að sofa hjá forse-
tanum.“
*
Séra Valdimar Eylands fæddist á Tittlinga-
stöðum í Víðidal í Þorkelshólshreppi í Vestur-
Húnavatnssýslu árið 1901. Þar ólst hann enn-
fremur upp, en flutti vestur til Kanada í árslok
921, hvar hann starfaði sem prestur mestan
hluta ævinnar, meðal annars hjá íslenskum
söfnuðum. Einnig var hann prestur um eins
árs skeið á Útskálum í Garði er hann og séra
Eiríkur Sv. Brynjólfsson skiptu á presta-
köllum.
Vafalítið finnast huggulegri bæjarheiti en
það sem æskuheimili Valdimars bar, enda fór
það svo að þegar hann á fullorðinsárum var
spurður að því hvaðan hann væri, hikaði hann
eilítið en síðan kom svarið:
„Frá Smáfuglastöðum.“
Hér læðast inn örfá mismæli úr ljósvakamiðl-
unum:
Seinni hlutann í febrúar 2006 var viðtal í
fréttatíma á RÚV við Vernharð Guðmundsson,
fulltrúa í launanefnd slökkviliðsmanna, en hún
var þá nýbúin að hafna launatilboði. Þegar
ástæðu þess svaraði hann:
„Fólk verður að gera sér grein fyrir því að
við erum búnir að fá okkur fullsadda á því að
hætta bæði lífi, limi...“
Í fréttum á sömu stöð, það er RÚV, sagði
Gunnar Gunnarsson fréttamaður:
„Litlar líkur eru á því að fleiri lík finnist á
lífi...“.
Ingólfur Bjarni Sigfússon var að lesa fréttir
á Stöð 2 og varaði þá meðal annars við óholl-
ustu í tilreknum matvælum. Fréttinni lauk
hann á þennan veg:
Þetta á einkum við um vanfærar konur á
barneignaraldri.
Einhverju sinni bar svo til að truflanir urðu
á rafmagninu í húsi læknishjónanna á Sauðár-
króki, þeirra Torfa Bjarnasonar og Sigríðar
Auðuns. Þórður Pétursson rafvirkjameistari
var kvaddur til að kanna hvað ylli þessum
vandræðum og eftir ýmsar mælingar hrópaði
hann upp yfir sig úr eins manns hljóði:
„Það er barasta vitlaust riðið í þessu húsi,“
sem á máli rafmagnsfræðinnar þýðir eitthvað á
þá leið, að straumtíðnin sé öðruvísi en hún
ætti að vera.
Læknisfrúin hafði fylgst nokkuð grannt með
vinnu Þórðar. Hún þekkti lítið til fagmáls raf-
virkja og varð því fremur hvumsa við þessa
yfirlýsingu hans. Lét þó ekki á neinu bera, en
létti hins vegar mjög í sinni þegar rafvirkinn
lýsti því yfir einhverjum mælingum síðar, að
„líklega væri nú rétt riðið í húsinu eftir allt
saman“. Missti hún þá reyndar út úr sér:
„Mikið þykir mér nú vænt um að heyra það,
Þórður minn.“
A N T O N Y
B E E V O R
STALÍNGRAD
JÓLABÆKUR ÁRSINS!
Íslenskar gamansögur
Fyrsti
vestur-íslenski
feministinn
Þættir úr baráttusögu
Margrétar J. Benedictsson
Björn Jónsson
Njósnari í Þýskalandi nasista?
Ráðgátan um Olgu Tsékovu
Hér segir Sveinn í Kálfskinni frá því þegar hann:
– var fóðurmeistari á dönskum búgarði og vann með amerískum indíánum á Keflavíkurflugvelli
– var tekinn í landhelgi í Jórdaníu á ólöglegri siglingu á seglbretti
– svaf í svítu á diplómatahóteli í Berlín og lá úti í grenjandi stórhríð, einn og týndur uppi á öræfum Íslands
– ók í brynvörðum bíl um Bronx og Harleem og sat á spjalli við
þriggja kvenna ættarhöfðingja í Afríku
– bjó til bæði flugvöll og stöðuvatn upp á eigin spýtur
– seldi ferðamönnum allt frá slori og fjósalykt upp í þyrluferðalög.
holar@simnet.is
M
bl
9
42
51
5
Bráðskemmtileg ævisaga Sveins í Kálfskinni; ævintýramannsins sem
aldrei hefur séð eftir neinu og ætlar, hvað sem hver segir, að byggja
kláfferju upp á Vindheimajökul áður en yfir lýkur.
3. sætið
á metsölulista Mbl.
– ævisögur!
Orrustan um Stalíngrad kostaði
meira en milljón mannslíf.
Orrustan um Stalíngrad var
ekki einungis sálfræðilegur
vendipunktur síðari heims-
styrjaldarinnar – hún breytti
einnig nútímahernaði.
Margrét J. Benedictsson
helgaði líf sitt jafnréttis-
báráttu kvenna.
Saga hennar
má ekki gleymast.
Átti breski flotinn einhver
svör við togvíraklippum
Landhelgisgæslunnar?
Mögnuð og spennandi bók
um hatrömm átök, bæði á
hafi úti og í landi.
Kenningar höfundanna eru afar
umdeildar og þeir setja fram djar-
far tilgátur sem snerta hugmyndir
og viðhorf allra kristinna manna.
Bókin varð kveikjan að
Da Vinci lyklinum og fleiri bókum.
Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út Íslenskar gamansögur 1
í samantekt Guðjóns Inga Eiríkssonar.
Hér á eftir fara nokkrar sögur úr þessari bráðsmellnu bók.
Hin unga og fagra Olga Tsékova
átti ekkert nema demantshring
þegar hún fór frá Moskvu 1920.
Leið hennar lá til Þýskalands og
hún varð uppáhaldsleikkona
Hitlers – starfaði um leið fyrir
leyniþjónustu Sovétríkjanna.