Morgunblaðið - 23.02.2007, Side 3

Morgunblaðið - 23.02.2007, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 3 KylfingurinnOttó Sig- ursson úr GKG er í 30. til 33. sæti á móti í Scanplan móta- röðinni í Portú- gal eftir tvo hringi. Hann lék á einu höggi yfir pari í gær en tveimur yfir pari í fyrradag og er því á 149 höggum samtals, þremur yfir pari.    Heiðar Davíð Bragason úr Kilivar í gær vísað úr mótinu þar sem hann gleymdi að skrifa undir skorkortið sitt. Fyrri hringinn lék Heiðar Davíð á 3 höggum yfir pari, 76 höggum, en í gær lauk hann leik á 69 höggum, fjórum undir pari vallarins og frávísunin því sár.    Grétar Rafn Steinsson lék allanleikinn með AZ Alkmaar í gærkvöldi þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við Fenerbache í UEFA bikarkeppninni. Hann var bókaður á 61. mínútu. Alkmaar komst áfram í keppninni, gerði 3:3 jafntefli í Tyrklandi í fyrri leiknum og kemst því áfram á fleiri mörkum skor- uðum á útivelli. Fenerbache komst í 2:0 í gær með mörkum í fyrri hálfleik en heimamenn náðu að minnka muninn á 63. mínútu og jafna á 86.    Ademar León, lið Sigfúsar Sig-urðssonar, vann stórsigur á BM Antequera, 34:24, í spænsku 1. deildinni í handknattleik. Sigfús var ekki á meðal markaskorara León í leiknum. Liðið hafði mikla yfirburði í leiknum, var m.a. yfir 26:13 þegar síðari hálfleikur var hálfnaður. León er í 3. sæti, 6 stigum á eftir Portland sem er í efsta sæti.    Einar Örn Jónsson lék ekki með félögum sínum í GWD Minden í gær þegar liðið sótti HSV Hamb- urg heim í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Einar Örn veiktist í vikunni og varð eftir heima í Mind- en þegar samherjar hans töpuðu í Hamborg, 34:26.    Forsvarsmenn Wimbledon-tennismótsins hafa tekið ákvörðun þess efnis að verðlaunafé á stórmótinu verði jafnt í karla - og kvennaflokki. Wimbledon var eina stórmótið sem skar sig úr að þessu leyti en forsvarsmenn keppninnar hafa verið harðlega gagnrýndir á undanförnum misserum. Roger Federer frá Sviss sigraði á Wimbledon-mótinu á síðast ári og fékk hann rúmlega 85 millj. kr. fyr- ir sigurinn en Amelie Mauresmo frá Frakklandi fékk rúmlega 81 millj. kr. fyrir sigur sinn í kvenna- flokki. Á árum áður var mun meiri munur á verðlaunafé á Wimbledon- mótinu en sá munur hefur minnkað jafnt og þétt á undanförnum árum.    Bandaríska skíðakonan LindseyKildow hefur ákveðið að keppa ekki meira á þessum vetri vegna eymsla í hægra hné. Hin 22 ára gamla skíðakona meiddist þeg- ar hún datt á svigæfingu á heims- meistaramótinu í Åre í Svíþjóð í síðustu viku, þar sem hún varð í öðru sæti í risasviginu.    Jón Arnór Stefánsson gerði fjög-ur stig fyrir Lottomatica Roma þegar liðið tapaði 71:69 á heimavelli fyrir Maccabi Elite í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hann lék í 14 mín- útur.    Bobby Convey, miðjumaðurReading, leikur ekkert með félaginu á þessari leiktíð en vonast hafði verið til að hann gæti leikið með í lok tímabilsins. Fólk sport@mbl.is Heimamenn voru ákafari í byrjun en Breiðhyltingurinn Nate Brown hélt liði sínu inni í leiknum með dyggri aðstoð Sveinbjarnar Claessen. Það dugði samt ekki til, KR-ingar bættu vörnina og sigu fram úr þótt þeim tækist aldrei að stinga ÍR af. Um miðjan annan leik- hluta skelltu KR-ingar stundum á gestina pressuvörn sem sló þá aðeins út af laginu og þegar þeir náðu ekki nýta sér gallana í henni tókst KR að ná tíu stiga forskoti en með góðum enda- spretti tókst ÍR að halda forskoti KR við tvö stig í hálfleik. KR-ingar slökuðu á klónni í byrjun seinni hálfleiks. Slíkt létu Breiðhylt- ingar ekki bjóða sér tvisvar og með góðri sókn tókst þeim að snúa blaðinu við og ná níu stiga forystu. Þá loks hristu KR-ingar af sér slenið, snar- bættu vörnina og eftir mikinn sprett Pálma Sigurgeirssonar og Tyson Pat- terson náðu þeir að minnka muninn í tvö stig í lok þriðja leikhluta með flautukörfu Tysons. Þeir fylgdu því síð- an eftir, náðu 73:71 forystu á fyrstu tveimur mínútum fjórða leikhluta og sá munur hélst þar til rúm mínúta var eft- ir en eftir klaufalegt brot og tæknivillu á Keith Vassel fengu heimamenn fjög- ur vítaskot, sem þeir nýttu til hins ýtr- asta auk þess að halda boltanum. Það kom KR í 6 stiga forskot – bil sem ÍR tókst ekki að brúa. Ryðgaðir í byrjun „Mér fannst við frekar ryðgaðir meirihlutann úr leiknum,“ sagði Bene- dikt Guðmundsson, þjálfari KR, eftir sigurinn. „Það hafa verið þrjú tíu daga hlé í deildinni svo að liðin ná sér ekki eins mikið á flug og maður vonaðist eft- ir en það verður ekki frá ÍR-ingum tek- ið að þeir eru með gott lið og þeir sem héldu að við myndum valta yfir þá í kvöld voru á villigötum því að þeir eru með eitt besta lið landsins.“ Jeremiah Sola fór á kostum í byrjun þegar hann skoraði grimmt og tók 4 fráköst en síðan fór minna fyrir honum þegar Tyson Patterson tók upp hansk- ann. Fleiri áttu góða spretti, eins og Darri Hilmarsson sem tók 5 fráköst og var sterkur í vörninni. „Það var strögl í byrjun en við kláruðum þetta í lokin,“ sagði Darri eftir leikinn. „Við þurftum bara að spila góða vörn og berjast, það dugir ekkert annað. Við slökuðum að- eins á um tíma en þegar við bættum í kom þetta með vörninni. Við þurftum að spila vörn og berjast og halda kraft- inum í leiknum enda gekk þetta upp hjá okkur í síðari hálfleik þegar við fór- um að tala saman. Þessi sigur er gott veganesti fyrir leikinn gegn Njarðvík á sunnudaginn – sem við vinnum. Einbeitingin fór upp í Breiðholt Hjá ÍR var Nate Brown öflugur í byrjun, gaf meðal annars 5 stoðsend- ingar og tók 6 fráköst auk þess að stela boltanum 5 sinnum. Ómar Sævarsson tók syrpu í byrjun en síðan fór minna fyrir honum. Keith Vassel hrökk í gang þegar á leið og tók líka 6 fráköst en hittnin var ekki góð. Sveinbjörn Claes- sen lagði rækilega sitt af mörkum þeg- ar hann dreif liðið áfram auk þess að skora flest stig fyrir ÍR. „Við komumst níu stig yfir en þá fór einbeitingin upp í Breiðholt,“ sagði Sveinbjörn eftir leik- inn. „Ég held að flestir hafi búist við að myndum mæta og glutra leiknum nið- ur, eins og hefur einkennt okkar lið, en við mættum tilbúnir en kláruðum ekki leikinn eins vel tilbúnir. Við misstum einbeitingu í lokin og það var lélegt að gera ekki út um þennan leik. Við erum inni í leiknum um þrjátíu mínútur en það er ekki nóg og þar liggur mun- urinn á liðunum, sýnir af hverju þeir eru í efstu sætunum en við ekki. Svona gera góð lið, þau klára leiki.“ Það er ekki seinna vænna fyrir bik- armeistarana að sinna deildinni þar sem liðið er í sjöunda sæti en tvö önnur lið eru með jafnmörg stig. „Við verðum að taka á þessu því að við erum ekki einu sinni lausir við fallbaráttuna, þurf- um fyrst að losa okkur úr henni áður en við förum að hugsa um úrslita- keppnina. Það eru fjórir leikir eftir og við þurfum að vinna allavega þrjá,“ hélt Sveinbjörn áfram. „Bikarsigurinn var góður fyrir okkur en við þurftum að ná okkur niður á jörðina. Við gerð- um það en bikarinn er bara byrjunin og við ætlum okkur þann stóra. Þegar komið er í úrslitakeppnina skiptir ekki máli hvort við erum í sjöunda eða átt- unda sæti, það getur allt gerst.“ KR-ingar lögðu bikar- meistara ÍR á seiglunni Morgunblaðið/ÞÖK Krappur dans Keith Vassel úr ÍR varð að sætta sig við tap fyrir KR í gærkvöldi. Hér er hann í kröppum dansi en með augun á boltanum og KR-ingarnir Pálmi Sigurgeirsson og Jeremiah Sola fylgjast með. BARÁTTUÞREK KR-inga reyndist meira þegar þeir fengu nýbakaða bikarmeistara ÍR í heimsókn í gær- kvöldi í Iceland Express-deildinni. Breiðhyltingar reyndust þó ekki auðveld bráð og náðu níu stiga for- skoti en Vesturbæingum, með efsta sæti deildarinnar innan seilingar, tókst að ná upp baráttu sem dugði til 89:81 sigurs og efsta sætis deild- arinnar. Eftir Stefán Stefánsson ste@mbl.is sér á tnsæt- s-deild gær- á móti r hafði ngdan rð að remur ir liðið sleikj- sliðinu Hauka í inn- gi all- kúndu Damon Hann tók frákast við eigin körfu, rakti boltann aðeins út úr teignum og skaut frá eigin þriggja stiga línu og beint ofan í körfu Fjölnis hinum megin á vellinum. Hörður Axel Vilhjálmsson var hetja Fjölnis í gær. Hann jafnaði metin með erfiðu þriggja stiga skoti í lokin, 83:83, og fór svo fyrir sínum mönnum í framlengingunni ásamt Árna Ragnarssyni. Í Grindavík höfðu heima- menn betur gegn Tindastóli, 109:99 í jöfnum leik þar sem Grindvíkingar náðu góðum leik- kafla í lokin og tryggðu sér sig- ur. enn komnir æðinu KVENNALIÐ ÍBV í handknattleik mun ekki draga sig úr keppni á yfirstandandi Íslandsmóti samkvæmt yfirlýsingu sem aðalstjórn ÍBV íþróttafélags sendi frá sér í gær. Nokkuð hefur verið rætt um það síðustu vikurnar að Eyjamenn myndu draga lið sitt úr keppni vegna manneklu en aðalstjórnin tók af allan vafa í gær og sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Ekki kemur til greina af hálfu ÍBV að draga liðið úr keppni á yfirstandandi Ís- landsmóti. Stjórn félagsins, leikmenn, þjálfarar og allir stuðningsmenn ÍBV nær og fjær eru einhuga um að þjappa sér saman og yfirstíga þá erfiðleika, sem við er að etja. Aðalstjórn ÍBV hvetur stuðningsmenn félagsins alls staðar á landinu til að fjölmenna á leiki liðsins og sýna þannig stuðning í verki.“ Kvennalið ÍBV heldur áframMIKIL spenna var á öðrum keppnisdegi á heikmsmótinu í holukeppni í golfi í Arizona í gær. Tiger Woods hélt upp- teknum hætti frá fyrstu umferð- inni og vann Tim Clarke á fjór- tándu holu, 5/4. Vijay Singh tapaði fyrir Steph- en Ames á 19. holu og er úr leik líkt og Padraig Harrington sem tapaði á 18. holu fyrir Stewart Cink. Sömu sögu er að segja af Colin Montgomerie sem tapaði 4/3 fyrir Paul Casey. Retief Goo- sen er einnig úr leik, tapaði fyrir Niclas Fasth á 18. holu og Jose Maria Olazabal getur einnig tek- ið saman settið sitt því hann lá 2/1 fyrir Geoff Ogilvy. Toms vann Crane 3/2 og Chad Campbell lagði Jim Furyk á 19. holu, en Furyk var raðað í efsta sæti á öðrum vængnum, líkt og Woods á hinum. Woods mun mæta Nick O’Hern í átta manna úrslitum en O’Hern lagði Rory Sabbatini 2/1 í gær. Englendingurinn Justin Rose sýndi allar sínar bestu hliðar í gær og það dugði til að sigra Phil Mickelson 3/2. Rose leikur í dag á móti Charles Howell II sem gerði sér lítið fyrir og vann Ser- gio Garcia 4/2. Trevor Immelman vann Chris DiMarco 3/1 og mætir Ian Poulter sem lagði Bradley Dredge 3/1. Luke Donald varð að játa sig sigraðan á 18. holunni í leik sín- um við Aaron Baddeley og mun Baddeley mæta Henrik Stenson sem vann K.J. Choi í gær á sautjándu holunni. Margir góðir úr leik

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.